Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fortíð CIA-stjóra á huldu Porter J. Goss, sem tilnefndur var í gær sem næsti forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, var leyniþjónustumaður í Mið-Ameríku á miklum umbrotatímum í bandarískum öryggismálum á 7. áratugnum. Margt er á huldu um fortíð Goss sem verið hefur formaður leyniþjónustunefndar bandaríska þingsins. 11.8.2004 00:01
Sænskum börnum haldið á Gaza Palestínskur maður hefur numið á brott fimm börn sín sem hann á með sænskri konu og dvelur nú með þau í Gaza-borg. 11.8.2004 00:01
Íranar hóta öllu illu Íranar hóta Bandaríkjamönnum öllu illu vegna bardaganna í írösku borginni Najaf en þar berjast Bandaríkjamenn við fylgismenn shíta- klerksins Muqtada al-Sadr og er mannfall mikið.</font /> 11.8.2004 00:01
Ósló og París dýrastar Ósló og París eru dýrustu borgir Evrópu samkvæmt nýrri könnun rannsóknarstofnunarinnar EIU. 11.8.2004 00:01
Glæpsamleg vanræksla Stjórnendur sjúkrahússins Ullevål í Osló viðurkenndu í gær að mistök hefðu átt sér stað við meðferð geðsjúka mannsins sem sakaður er um að hafa stungið mann til bana í miðborg Óslóar í síðustu viku. 11.8.2004 00:01
Stórárás vofir yfir Harðir bardagar hafa staðið í Najaf í heila viku. Bandaríkjamenn undirbúa stórárás á borgina. Sjíaklerkurinn al-Sadr hvetur sína menn til dáða. </font /></b /> 11.8.2004 00:01
90 prósent lán í haust Árni Magnússon félagsmálaráðherra mun í haust leggja fram frumvarp á Alþingi um breytingu á húsnæðislánakerfinu þannig að heimild verði til að veita lán fyrir 90 prósent af kaupverði íbúðar. 11.8.2004 00:01
Górillu tvíburar Það er ekki á hverjum degi sem tveir górilluungar líta dagsins ljós, hvað þá að þeir séu tvíburar. Móðirin var stolt á að líta með ungana sína tvo fyrir framan myndavélarnar en hún býr ásamt karli sínum í friðuðum þjóðgarði í Rúanda þar sem 16 górilluungar hafa komið í heiminn síðasta árið. 11.8.2004 00:01
Austurbæjarbíó verður ekki rifið Austurbæjarbíó verður ekki rifið. Formaður skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkurborgar segir að núverandi eigandi hússins ætli að reka það áfram og að hann eigi ekki rétt á bótum frá borginni. Heimilt verður að byggja allt að 30 íbúðir á reitnum á bak við Austurbæjarbíó. 11.8.2004 00:01
Fá ekki að leggja vatnslögn Bæjarstjórinn í Kópavogi furðar sig á því að borgarstjórn Reykjavíkur skuli neita að leyfa Kópavogsbæ að leggja vatnslögn um land borgarinnar. Hann telur að ekki sé heil brú í röksemdafærslu Reykjavíkurborgar og er reiðubúinn að fara með málið fyrir dómstóla. 11.8.2004 00:01
Rútuslys í Austurríki Fimm létust og 40 eru slasaðir, þar á meðal fjögur börn, eftir að rúta fór út af vegi suður af borginni Salzburg í Austurríki í gær. 49 voru í rútunni, flestir þeirra Bretar í sumarleyfi. Talið er að lítil rúta hafi ætlað að taka fram úr rútunni, en þegar bíll kom á móti minni rútunni ók hún á þá stærri sem valt rúma 30 metra niður brekku. 11.8.2004 00:01
Bílsprengja sprakk í Jerúsalem Tveir létust og 19 særðust þegar bílsprengja sprakk við ísraelskar eftirlitsstöðvar fyrir utan Jerúsalem í dag. Þeir sem létust voru Palestínumenn. Vígamenn úr Fatah-hreyfingu Yassers Arafats, forseta Palestínu, hafa lýst tilræðinu á hendur sér, en þeir báðust afsökunar á því að tveir Palestínumenn hefðu látið lífið, 11.8.2004 00:01
Hestaferð þvert yfir landið Hópur hestamanna lauk tæplega 800 kílómetra ferð þvert yfir landið í dag. Ekki er hægt að ríða lengri leið yfir landið, frá Langanesi og allt vestur á Reykjanestá. 11.8.2004 00:01
Skilur að Íslendingar sæki ekki um Sjávarútvegsráðherra Bretlands hefur fullan skilning á því að Íslendingar vilji ekki sækja um aðild að Evrópusambandinu meðan núverandi fiskveiðistefna sé við lýði. 11.8.2004 00:01
Búist við meiri vatnavöxtum Ekki er búist við að flóðið í Jökulsá á Dal í kvöld verði mikið meira en var í gærkvöldi, en þá komst rennslið í 830 rúmmetra. Á morgun er hins vegar búist við meiri vatnavöxtum, en því er spáð að þeir verði ekki meiri en þegar mest var í síðustu viku, en þá var rennslið um 900 rúmmetrar. 11.8.2004 00:01
Undirbúa árásir á uppreisnarmenn Bandaríski herinn undirbýr harðar árásir á uppreisnarmenn í Írak. Vígamenn hóta að ráðast á olíuleiðslur láti Bandaríkjamenn sverfa til stáls í borginni Najaf. Barist var í mörgum borgum í Írak í dag. Yfir 350 uppreisnarmenn eru dánir. 11.8.2004 00:01
Gæti misst heyrn á öðru eyra Óttast er að maðurinn sem var höfuðkúpubrotinn í Öxnadal í síðustu viku geti misst heyrn á öðru eyra. Sjö manns voru á vettvangi þegar atburðurinn átti sér stað, þar af tvö börn. 11.8.2004 00:01
Eiga nóg í verkfallssjóði Kennarar eiga nóg í verkfallssjóði til að greiða verkfallsbætur í rúmlega tvo mánuði og eru tilbúnir til að nota hann allan. Verkfall hefði í för með sér gríðarlega röskun á efnhagslífinu, en 45 þúsund börn eru í grunnskólum landsins. 11.8.2004 00:01
Útvegsmönnum heitinn stuðningur Ríkisstjórnin heitir útvegsmönnum fullum stuðningi ef þeir halda áfram síldveiðum við Svalbarða í trássi við bann Norðmanna sem tekur gildi um næstu helgi. Ríkisstjórnin telur að Norðmennirnir séu komnir langt út fyrir það sem leyfilegt sé. 11.8.2004 00:01
Fjórföld sala Verksmiðjur Emmessís munu starfa aukalega alla helgina til þess að fylla á lager fyrirtækisins að sögn Atla Hergeirssonar markaðsfulltrúa. Ísblöndusala fyrirtækisins var fjórum sinnum meiri í hitabylgjunni í gær en á venjulegum degi. 11.8.2004 00:01
Aldrei heitara í Reykjavík Hitinn í Reykjavík náði 24,8 stigum í gær og er það hæsti hiti sem mælst hefur í höfuðborginni. Hlýjasti loftmassi síðan mælingar hófust, segja veðurfræðingar. Heitavatnsnotkun höfuðborgarbúa var sérstaklega lítil en notkun á köldu vatni lítið eitt meiri en venjulega. 11.8.2004 00:01
Sundrung sjálfstæðismanna Gunnar I. Birgisson segist túlka höfnun borgarráðs á vatnslögn Kópavogsbæjar frá Vatnsendakrikum sem árás Valhallar á sjálfstæðismenn í Kópavogi. Þetta komi spánskt fyrir sjónir því borgin þurfi að fara yfir lögsögu Kópavogs vegna Hellisheiðarvirkjunnar. </font /></b /> 11.8.2004 00:01
Aðild þýðir afsal Sjávarútvegsráðherra Breta, Ben Bradshaw, segir að aðild Íslendinga að Evrópusambandinu myndi kosta afsal eigin fiskveiðistjórnunar. Hann segir fulla þörf á sameiginlegri fiskveiðistefnu. </font /></b /> 11.8.2004 00:01
Landhelgisbrot við Svalbarða Íslensk skip á Svalbarðasvæðinu fá viðvörun og verða handtekin fari þau ekki eftir norskum lögum. Norska sjávarútvegsráðuneytið segir íslensk stjórnvöld ekki hafa greint frá fyrirhuguðum veiðum eftir 15. ágúst þegar Norðmenn setja veiðibann á svæðið. 11.8.2004 00:01
Sjúkrastarfsmenn hóta verkfalli Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo greiðir ekki laun samkvæmt samningum og virðir óskir starfsmanna sinna að vettugi. Sjúkrastarfsmenn hafa fengið nóg og hóta verkfalli nema bót verði ráðin á hið fyrsta. 11.8.2004 00:01
Aldrei hlýrra í Reykjavík Hitinn í Reykjavík náði 24,8 stigum í gær og er það hæsti hiti sem mælst hefur í höfuðborginni. Hlýjasti loftmassi síðan mælingar hófust, segja veðurfræðingar. Heitavatnsnotkun höfuðborgarbúa var sérstaklega lítil en notkun á köldu vatni lítið eitt meiri en venjulega. </font /> 11.8.2004 00:01
Öllu vatninu dælt burt Steypuvinna við undirstöður Kárahnjúkastíflu hefst væntanlega í dag eftir nokkurra daga hlé þar sem búið er að dæla öllu vatni, sem lekið hefur í gegnum um varnargarð ofan við stíflustæðið, í burtu. Þá er lokið vinnu við að hækka varnargarðinn, a.m.k. að sinni. 10.8.2004 00:01
Hryðjuverkaárásir í Tyrklandi Tveir eru látnir og sjö sárir eftir sprengjuárásir á tvö hótel og gasverksmiðju í Tyrklandi í nótt. Tvær sprengjur sprungu samtímis við hótel í ferðamannahverfi í borginni Istanbúl og kenna yfirvöld hryðjuverkamönnum um. 10.8.2004 00:01
Bjargað á hestbaki Hjálparsveitarmenn úr Eyjafjarðarsveit og sjúkraflutningamenn frá Akureyri notuðu hesta við að koma slasaðri konu til hjálpar í Skjóldal, vestur úr Eyjafjarðardal, í gær. Fluttu þeir búnað sinn á hestum og bjuggu um konuna til bráðabirgða og að því loknu teymdu þeir undir henni til byggða. 10.8.2004 00:01
Al-Sadr fer hvergi Átök brutust út í íröksku borginni Najaf í morgun, sjötta daginn í röð. Viðlíka átök hafa verið í sjítahverfum í fleiri borgum Íraks, þar á meðal í höfuðborginni Bagdad, þar sem sprengja sprakk í vegkanti í morgun. 10.8.2004 00:01
Metfjöldi ferðamannna Erlendir ferðamenn settu heimsóknarmet hingað til lands í síðasta mánuði þegar rösklega sextíu og fjögur þúsund útlendingar heimsóttu landið, en þeir kaupa minna hér en áður. 10.8.2004 00:01
Skemmdarverk á olíuleiðslum Skemmdarverk voru unnin á annarri af tveimur olíuleiðslum á Faw-skaganum í Írak í morgun. Leiðslan er hundrað og tuttugu metrar í þvermál og vegna skemmdanna hefur framleiðslugeta Íraka minnkað úr 1,9 milljónum tunna á dag í 1,1 milljón. 10.8.2004 00:01
Góðri grásleppuvertíð lokið Einni bestu grásleppuvertíð til þessa er lokið og varð aflinn 11.500 tunnur samkvæmt samantekt Landssambands smábátaeigenda. Aðeins á vertíðinni í fyrra og vertíðinni fyrir sjö árum varð aflinn heldur meiri. Veitt var á átta veiðisvæðum í níutíu daga á hverju svæði. 10.8.2004 00:01
Börnum bjargað af eyju Þrjú áströlsk börn, sem lifðu af nokkurra daga dvöl á lítilli eyju í hafinu norður undan Ástralíu, segjast hafa lifað á ostrum, kókoshnetum og berjum. Börnin eru á aldrinum tíu til fimmtán ára. 10.8.2004 00:01
Kertafleyting á Reykjavíkurtjörn Hópur fólks kom saman við Reykjavíkurtjörn í gærkvöldi til að minnast fórnarlamba kjarnorkuárása Bandaríkjamanna á á japönsku borgirnar Nagasakí og Híroshíma árið 1945. Fólkið fleytti kertum í blíðunni og var þetta í tuttugasta sinn sem samstarfshópur friðarhreyfinga stóð fyrir kertafleytingu af þessu tilefni. 10.8.2004 00:01
Íslandsbryggju lokað vegna slysa Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur ákveðið að loka höfninni við Íslandsbryggju, tímabundið að minnsta kosti, vegna tveggja slysa þar. Tíu ára drengur drukknaði þar í gær og þremur dögum áður drukknaði þar karlmaður. 10.8.2004 00:01
Kjarnorkuver verði yfirfarin Ríkisstjórn Japans fyrirskipaði rafveitufyrirtækjum að yfirfara kjarnorkuver sín í morgun í kjölfar þess að sprenging varð í kjarnorkuveri í japönsku borginni Míhama, rúmum 300 km vestur af Tókýó, í gær. Fjórir létust í slysinu og sjö slösuðust þegar gufa streymdi út um sprungur á leiðslu. 10.8.2004 00:01
Sþ meti ástandið í Darfur Evrópusambandið lýsti því yfir í gær að það væri undir Sameinuðu þjóðunum komið að ákvarða hvort óöldin í Darfur-héraði í Súdan jafngilti þjóðarmorði. 10.8.2004 00:01
Bendlaður við atburðina 11. sept. Réttarhöld yfir þrjátíu ára gömlum Marokkómanni, sem grunaður er um aðild að hryðjuverkunum 11. september, hófust í Hamborg í Þýskalandi í morgun. Mounir el Motassadeq er ákærður fyrir að hafa verið í slagtogi við þrjá flugræningja sem rændu vélum daginn örlagaríka í Bandaríkjunum en mennirnir bjuggu allir í Hamborg. 10.8.2004 00:01
Kóreuríkin sem eitt Ólympíulið Norður- og Suður-Kóreu munu ganga saman inn á Ólympíuleikvanginn við setningarathöfn leikanna á föstudaginn. Þetta er til marks um batnandi sambúð ríkjanna á Kóreuskaganum. 10.8.2004 00:01
Bændur banna hreindýraveiðar Þrír bændur á Mýrum í Hornafirði leyfa ekki hreindýraveiðar á jörðum sínum þrátt fyrir að þær séu á veiðisvæði, að því er kemur fram á fréttavefnum Horn.is í dag. Stærsta jörðin sem um ræðir er Flatey á Mýrum sem er jörð í eigu ríkisins. Forsvarsmenn Skotveiðifélags Íslands eru ósáttir. 10.8.2004 00:01
900 Bandaríkjamenn hafa fallið Rúmlega níu hundruð bandarískir hermenn hafa látið lífið í Írak en flestir þeirra, eða rúmlega átta hundruð, létust eftir að George Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu í Írak væri lokið í maí á síðasta ári. Af níu hundruð hafa yfir tvö hundruð látist af slysförum. 10.8.2004 00:01
Höfuðhögg banamein Sri Banamein Sri Rhamawati var höfuðhögg samkvæmt niðurstöðum krufningar. Um er að ræða bráðabirgðaniðurstöður en alvarlegir höfuðáverkar voru á líki Sri og er talið að hún hafi látist af þeim samstundis. 10.8.2004 00:01
Vatnsból víða þurr Á meðan jökulár bólgna vegna mikillar bráðnunar jökla í hlýindunum þessa dagana eru vatnsból sumstaðar orðin þurr og vatn farið að skorta vegna þurrka. Aðeins tíu mínútna regnskúr hefur til dæmis gert á átján daga langan leiðangur hestamanna þvert yfir landið. 10.8.2004 00:01
Segir ÁTVR á villigötum Orri Hlöðversson, bæjarstjóri í Hveragerði, er harðorður í garð stjórnenda ÁTVR í grein sem hann ritar í Bæjarblaðið. Hann segir ÁTVR sniðganga nýja verslunarmiðstöð sem bærinn og einkaaðilar hafa reist við Sunnumörk. Ákvörðun um að velja Ríkinu stað í bensínstöð ESSO hafi valdið Hvergerðingum vonbrigðum og fylgjendum einokunarsölu ríkisvaldsins á áfengi fari ört fækkandi í Hveragerði. </font /> 10.8.2004 00:01