Upp­gjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyja­menn og halda í vonina

Árni Gísli Magnússon skrifar
Þór vann gríðarlega mikilvægan sigur.
Þór vann gríðarlega mikilvægan sigur. Hulda/Vísir

Þór vann mikilvægan 1-0 sigur á ÍBV á VÍS vellinum á Akureyri í dag. ÍBV er fallið eftir tapið þegar tvær umferðir eru óleiknar en Þórsarar freista þess enn að halda sér uppi en liðið er þó áfram tveimur stigum frá öruggu sæti.

Þórsarar mættu ákveðnir til leiks og ljóst frá fyrstu mínútu að þeir ætluðu að mæta Eyjamönnum af fullum krafti.

Þorri Ingólfsson og Kristófer Kristjánsson ógnuðu marki gestanna á fyrsta stundarfjórðungi leiksins en skot þeirra rötuðu ekki í netið.

Á 19. mínútu leiksins kom stórt atvik þegar Vicente Valor setti boltinn inn fyrir vörn Þórs þar sem Aron Lucas Vokes komst í boltann en fékk Aron Birki Stefánsson í marki Þórs á móti sér á fullri ferð og úr varð samstuð og vildu Eyjamenn fá aukaspyrnu og mögulega rautt spjald á Aron Birki en ekkert var dæmt. Gult spjald hefði þó verið líkleg niðurstaða þar sem varnarmenn Þórs voru samsíða Aroni.

Eftir hálftíma leik komst Christian Jakobsen í gott færi eftir góðan undirbúning Kristófer Kristjánssonar en Ari Petersen varði frá honum.

Andartaki síðar kom þó Jakobsen boltanum í netið eftir fyrirgjöf frá vinstri frá Ágústi Eðvaldi Hlynssyni. Ari kom stutt út úr markinu og ætlaði að grípa boltann en Jakobsen náði að setja löppina í boltann sem fór í stöngina og inn.

Þórsarar voru óheppnir að bæta ekki við marki undir lok hálfleiksins en skalli Gyrðis Hrafns Guðbrandssonar fór í þverslána af stuttu færi eftir hornspyrnu.

Þórsarar einu marki yfir í hálfleik.

Eyjamenn komu boltanum í netið á upphafsmínútum síðari hálfleiks þegar Mattias Edeland skallaði boltann í netið en bakhrinding var dæmd á Edeland þar sem hann lagði hendurnar á Sverri Pál Ingason þegar hann skallaði boltann og því staðan enn 1-0.

Þórsarar voru áfram betri aðilinn í leiknum en náði ekki skapa sér mörg færi.

Eyjamenn þurfti sárlega á marki að halda til að falla ekki og aftur kom Edeland boltanum aftur í netið á ólöglegan hátt þegar hann var vel fyrir innan eftir að boltinn barst aftur inn á teig eftir hornspyrnu og rangstaða dæmd.

Stuttu seinna var Christian Jakobsen í besta færi leiksins en á ótrúlegan hátt setti hann boltann yfir markið eftir fyrirgjöf Einars Freys Halldórssonar.

Fannar Daði Malmquist kom inn á fyrir Þór stuttu síðar og var næstum búinn að skalla boltann inn með sinni fyrstu snertingu en sendingin var föst og há og fór boltinn yfir markið.

Þórsliðið féll neðar og neðar á völlinn og Eyjamenn leituðu stíft eftir jöfnunarmarki en tókst ekki skapa sér almennileg færi en Sigurður Arnar Magnússon fékk ágætis færi í blálokin en Aron Birkir varði skalla hans.

ÍBV er því fallið en Þór heldur áfram baráttu sinni um áframhaldandi sæti í deildinni að ári.

Atvik leiksins

Christian Jakobsen skoraði markið sem skilur liðin að. Gerði vel í að setja löppina í boltann en Ari Petersen í marki ÍBV misreiknaði eitthvað stöðuna og hélt að boltinn kæmi bara í fangið á honum.

Stjörnur og skúrkar

Aron Birkir Stefánsson átti enn eina frábæru frammistöðuna í sumar. Hélt hreinu og gerði vel í öllum sínum aðgerðum en misreiknaði sig vissulega eitthvað þegar hann fór í úthlaupið á móti Aron Vokes.

Varnarlína Þórs í heildina var frábær og virtist fjarvera Yann Affi ekki hrjá liðið.

Heilt yfir mjög góð liðs frammistaða.

ÍBV liðið er fallið og þá hlýtur liðið í heild sinni skúrks titilinn fyrir frammistöðuna í sumar þar sem taflan lýgur ekki. Liðið var neðst eftir hefðbundna deildarkeppni og er svo fallið nú þegar tvær umferðir eru eftir.

Dómarinn

Vilhjálmur Alvar átti ekki sinn besta dag en leikurinn var krefjandi á köflum. Það var mikil harka og mikið brotið en fullt af augljósu peysutogi og alls kyns brotum sem hann hreinlega sleppti á meðan stundum var flautað á hitt og þetta.

Ég held að Aron Birkir brjóti klárlega á Aron Vokes þegar þeir lenda saman í fyrri hálfleik en Vilhjálmur dæmdi ekkert. Margt sem er hægt að skoða eftir þennan leik.

Stemning og umgjörð

469 áhorfendur mættu á VÍS völlinn og myndaðist ágætis stemmning en ég veit að Þórsarar vilja sjá enn betri mætingu í næsta leik sem er gríðarlega mikilvægur en Þór getur fallið ef liðið tapar og KA vinnur sinn leik.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira