Veður

Blaut og vindasöm Menningar­nótt í vændum

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Myndin er frá Reykjavíkurmaraþoninu á Menningarnótt árið 2018.
Myndin er frá Reykjavíkurmaraþoninu á Menningarnótt árið 2018. Vísir/Vilhelm

Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp. 

 Yfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer á morgun. Uppselt er í tíu kílómetra í keppnisflokki og stuttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon.

„Menn þurfa bara að búa sig undir vatn á götum og bleytu á göllunum,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur en hann var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 

Hann segir lægð stefna að landinu úr suðvestri og seint í kvöld byrji að rigna. Búast megi við því að úrkoman verði samfelld í fyrramálið og fram eftir degi. Samhliða því verði suðvestanátt í miðborginni á bilinu sex til níu metrar á sekúndu. 

„Þetta er ekki strekkingur bara svona léttur blástur. En sums staðar eru byggingar sem skýla eða magna vindinn enn meira,“ segir Einar.

Möguleiki sé á að stytti upp um miðjan dag á morgun. „Það er kannski frekar óskhyggja heldur en raunhyggja,“ segir Einar. 

Síðdegis á morgun megi búast við að bætist í vind og hann geti orðið um og yfir tíu metrar á sekúndu „og slagveðursrigning í einhvern tíma.“

Gestir miðborgarinnar gætu þó átt von á að geta notið flugeldasýningunnar í þurru en um tíuleytið á að bæði lægja og stytta upp. Flugeldasýningin hefst að Tónaflóði loknu á Arnarhóli, klukkan tíu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×