Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Freyja Þórisdóttir skrifar 17. júní 2026 07:36 Svipað veður á að vera út vikuna. Vísir/Vilhelm Búast má við hvössum vindstrengjum og varasömum aðstæðum fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, svo sem húsvagna, við suðausturströndina. Það er lægð suður af landinu sem veldur stífri norðaustanátt og henni fylgja skúrir og svalt veður um landið austanvert en víða má reikna með 8 til 15 metrum á sekúndu.
Á Vesturlandi verður þurrt að mestu og sæmilega milt ef marka má spá Veðurstofu Íslands en þar segir þó að einhverjir dropar geti fallið á Suðurlandsundirlendinu. Í dag er, líkt og hefur ekki farið fram hjá neinum, þjóðhátíðardagur Íslendinga og í tilefni hans er fjölbreytt dagskrá í boði um allt land. Spákort Veðurstofunnar klukkan 15:00 í dag, miðvikudaginn 17. júní.Veðurstofan Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á höfuðborgarsvæðið verði veðuraðstæður í góðu lagi en að þar nái vindur sér varla á strik og „ætti því að viðra vel til hátíðarhalda“. Næstu daga verður lítil breyting á veðri en þó á að draga smám saman úr vindi á Suðausturlandi. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á fimmtudag og föstudag: Norðaustan 8-15 m/s og rigning, en lengst af þurrt um landið vestanvert. Hiti 6 til 15 stig, mildast á Suðvesturlandi.Á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt 3-10. Skúrir á sunnanverðu landinu, einkum seinnipartinn, en stöku skúrir norðanlands. Hiti 8 til 15 stig.Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt. Dálítil rigning norðantil, en skýjað með köflum og stöku skúrir syðra. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi.Á mánudag og þriðjudag: Breytileg átt og skúrir á víð og dreif. Hiti 8 til 15 stig.
Reykjavík 17. júní Veður Tengdar fréttir Veðrið best á höfuðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardaginn Útlit er fyrir að veðrið verði einna best á höfuðborgarsvæðinu á morgun þegar landsmenn fagna þjóðhátíðardeginum en rignt gæti á hátíðargesti á Austurlandi. 16. júní 2026 12:18 Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Fleiri fréttir Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Snarpar vindkviður á Austfjörðum og sunnan við Vatnajökul Varað við hviðum á Austurlandi en blíðu í höfuðborginni Skýjað með köflum „Góðar líkur“ á því að margir sjái til sólar Rofar til og allt að tuttugu stig suðvestanlands Vara við allhvössum vindi á Snæfellsnesi Sjá meira
Veðrið best á höfuðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardaginn Útlit er fyrir að veðrið verði einna best á höfuðborgarsvæðinu á morgun þegar landsmenn fagna þjóðhátíðardeginum en rignt gæti á hátíðargesti á Austurlandi. 16. júní 2026 12:18