Allhvöss sunnanátt með rigningu Lovísa Arnardóttir skrifar 27. apríl 2026 07:16 Það verður líklega nokkuð blautt sunnan- og vestanlands í dag. Vísir/Vilhelm Í dag er búist við allhvassri sunnanátt með rigningu sunnan- og vestantil. Veðurfræðingur varar við sunnan hvassviðri eða stormi í vindstrengjum á norðvestanverðu landinu í kvöld og í nótt. Það geti verið varasamt ökutækjum sem taki á sig mikinn vind.
Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings verður þó úrkomulítið á Norður og Austurlandi og hiti verður á bilinu sjö til 14 stig. Seinnipartinn og fram á kvöld hvessir heldur en lægir síðan aftur. Á morgun má svo samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar búast við að vindur verði suðvestlægari en áfram verður vætusamt. Þá verður þurrt og lengst af bjart veður norðan- og austanlands, áfram hlýtt en fer að kólna vestast um kvöldið. Síðan verður vindur vestlægari og mun svalara en þokkalega milt austantil. Veðurfræðingur segir alla jafna kulda koma úr vestri eða norðri á þessum árstíma og að kudlinn úr vestri sé mildari en þegar norðanáttin nái sér á strik. Nánar um veður hér á vef Veðurstofu og færð vega á vef Vegagerðar. Víðast hvar er greiðfært en þó varað víða um land við slæmum vegum og holum í vegum. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðvestan 8-15 m/s og rigning með köflum, en að mestu þurrt norðaustantil. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Norðausturlandi, en yfirleitt svalara á Vestfjörðum. Á miðvikudag: Suðvestan 8-15 m/s og skúrir eða slydduél, en hægari vindur og léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti 2 til 10 stig, svalast norðvestantil. Á fimmtudag: Suðvestan 3-10 m/s og skúrir eða slydduél, en að mestu bjart á Norðausturlandi. Heldur svalara. Á föstudag, 1. maí: Norðvestlæg átt með dálitlum skúrum eða slydduéljum, en þurrt sunnan heiða. Svalt í veðri, einkum fyrir norðan. Á laugardag og sunnudag: Útlit fyrir svala vestlæga eða breytilega átt með stöku skúrum eða slydduéljum í flestum landshlutum.
Veður Færð á vegum Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Sjá meira