Uppgjörið: Fram - ÍBV 3-4 | Nýliðarnir unnu í sjö marka leik Gunnar Egill Daníelsson skrifar 25. apríl 2026 14:55 Eyjakonur gerðu góða ferð upp á fasta landið. vísir/guðmundur Nýliðar ÍBV byrjuðu tímabilið á því að vinna frækinn sigur á Fram, 4-3, í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í dag. Leikurinn hófst afskaplega fjörlega og var Fram búið að taka forystuna eftir aðeins þriggja mínútna leik. Sending Katrínar S. Vilhjálmsdóttur vinstra megin við vítateiginn fór þá af varnarmanni, skoppaði inn í teiginn þar sem Taylor Hamlett var á undan Guðnýju Geirsdóttur í boltann og skóflaði honum yfir markvörðinn. Einungis mínútu síðar var ÍBV búið að jafna metin. Allisom Clarl tók þá hornspyrnu með jörðinni frá hægri, boltinn barst í gegnum pakkann þar sem Færeyingurinn Fridrikka Marie Clementsen tók við honum, þrumaði svo að marki vinstra megin við vítapunktinn og skoraði. Staðan orðin 1-1 og aðeins fjórar mínútur liðnar af leiknum. Á 21. mínútu sneri ÍBV svo taflinu við. Clark tók þá aftur hornspyrnu frá hægri, hún var hreinsuð frá en Clark fékk boltann aftur, gaf fyrir með vinstri þar sem Emma Kate Young í vörn Fram misreiknaði boltann illilega og skallaði hann í eigið net. Áður en fyrri hálfleikur var úti bætti ÍBV við þriðja marki sínu. Enn átti Fram í vandræðum með hornspyrnur Clark frá hægri. Fridrikka Marie fékk boltann á svipuðum stað og hún skoraði fyrr í leiknum, þrumaði að marki en Ashley Orkus varði út í markteiginn, Allison Lowrey var eldsnögg að átta sig og rúllaði boltanum yfir marklínuna. Staðan var því 3-1, ÍBV í vil, í hálfleik. Síðari hálfleikur var öllu rólegri framan af en þegar tæpur stundarfjórðungur var til leiksloka minnkaði Fram muninn í 3-2. Varamaðurinn Alda Ólafsdóttir var þá skyndilega ein á auðum sjó í vítateignum með skoppandi bolta fyrir framan sig og lyfti honum einfaldlega yfir varnarlausa Guðnýju. Meðbyr Framara varði þó ekki lengi þar sem ÍBV gerði svo gott sem út um leikinn aðeins fjórum mínútum síðar, á 80. mínútu. Lið Fram var þá komið mjög framarlega á völlinn, Lowrey slapp alein í gegn, hljóp nánast allan vallarhelming Framara og lagði boltann af öryggi niður í hornið. Á þriðju mínútu uppbótartíma tókst Fram að minnka muninn. Guðný varði þá glæsilega skot frá Brookelynn Entz, mikill darraðardans upphófst og Hamlett náði að lokum til boltans og kom honum í netið. Staðan þá orðin 4-3 og reyndust það lokatölur. Atvik leiksins Þau eru þrjú. ÍBV skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik, öll eftir eða strax í kjölfarið af hornspyrnum Allison Clark frá hægri. Það hlýtur að vera sjaldgæft og áfellisdómur yfir varnarleik Framara að geta ekki varist þeim betur. Stjörnur og skúrkar Nöfnurnar Allison Clark og Lowrey, sem skoraði tvö mörk í dag, litu afskaplega vel út í fyrsta leik í Bestu deildinni. Það sama má segja um Færeyinginn Fridrikku Marie Clementsen sem skoraði í fyrsta leik og lítur út fyrir að vera toppspilari. Virkilega tæknilega góð, róleg á boltanum og góður skotmaður. Taylor Hamlett lék frábærlega í fremstu víglínu hjá Fram, hélt boltanum vel uppi, er ógnarsterk og skoraði tvö mörk. Skúrkur dagsins er Emma Young í vörn Fram sem misreiknaði fyrirgjöf Clark í öðru marki ÍBV mjög illa og skallaði boltann í eigið net. Dómarinn Ronnarong Wongmahadthai var með prýðileg tök á leiknum og allar stórar ákvarðanir réttar. Hann flautaði hins vegar mjög lítið. Ofanritaður er ánægður þegar leikurinn fær að fljóta en oft sleppti Ronnarong augljósum brotum á miðjum velli sem vakti ekki mikla gleði hjá hvorugu liðinu. Stemning og umgjörð Stemning var lítil sem engin enda aðeins 202 áhorfendur sem lögðu leið sína á Lambhagavöllinn í dag. Umgjörð hjá Frömurum er hins vegar fyrsta flokks, allt er til alls á glæsilegum vellinum. Það hefðu bara fleiri mátt nýta sér það í dag. „Þessi leikur bauð upp á allt“ Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV var að vonum ánægður með 4-3 sigur á Fram í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna á Lambhagavellinum í dag. Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBVvísir/daníel „Það er góð líðan, mikill léttir. Þetta var að ég held frábær leikur til að horfa á. Eins og ég hef sagt áður var allt í þessum leik. Það voru gæði, það voru engin gæði, hraði, spenna, mistök, glórulaus mistök og svo frábær tilþrif,“ sagði Jón Ólafur í samtali við Sýn Sport eftir leikinn. Spurður hvort mikið af mörkum og skemmtun sé það sem koma skal hjá ÍBV sagði hann: „Uppleggið er svo sem að reyna að skora mikið af mörkum og fá ekki mörk á sig en það gengur ekki alltaf eftir.“ Gífurlegur vindur var í Úlfarsárdal í dag sem setti töluvert strik í reikninginn fyrir bæði lið. „Já, þessi vindur, ég held að hann hafi haft töluverð áhrif í dag. Það sem í sjálfu sér bjargar okkur í seinni hálfleik er hvernig við fáum mjög óvænt þetta færi þegar við skorum fjórða markið. Eins og ég sagði fyrir leikinn gæti hann byggst á heppni, sigurinn, og við vorum bara heppnar í dag. Framararnir, þær voru bara jafn góðar og við og ég held að þetta hafi verið helvíti skemmtilegur leikur,“ sagði Jón Ólafur. Telurðu að þessi leikur lofi góðu fyrir framhaldið hjá ykkur? „Já, ég geri mér allavega miklar vonir um það,“ sagði Jón Ólafur Daníelsson. „Engar afsakanir, við verðum að gera betur“ Hildur María Jónasdóttir fyrirliði Fram sagði Framara hafa hugsað sér að byrja tímabilið betur en með 3-4 tapi fyrir nýliðum ÍBV í fyrstu umferð Bestu deildarinnar á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í dag. Hildur í leik dagsinsVísir/Guðmundur Þórlaugarson „Þetta fór svona í dag og við verðum bara að einbeita okkur að næsta leik,“ sagði Hildur María í samtali við Sýn Sport eftir leikinn. Aðspurð sagði hún ekkert hafa komið Frömurum á óvart í uppleggi ÍBV. „Nei, ekki þannig. Við vissum alveg hvert uppleggið þeirra væri. Ég held að það hafi ekki endilega verið neitt sem kom okkur á óvart. Þetta voru bara ódýr mörk og við þurfum greinilega að fara að æfa hornspyrnur. Það er klárlega eitthvað sem við þurfum að fara yfir. Það var erfitt að reikna boltann í dag. Mikill vindur og það vafðist greinilega aðeins fyrir okkur. Það eru samt engar afsakanir, þetta er eitthvað sem við verðum að gera betur,“ útskýrði fyrirliðinn. Þrátt fyrir tap í fyrsta leik er engan bilbug á Frömurum að finna. „Mér líst ágætlega á framhaldið. Það var nú planið að byrja þetta sterkt og vinna en það er bara upp með hausinn og halda áfram. Mótið er bara nýbyrjað og við höfum nægan tíma til að koma til baka og sanna okkur,“ sagði Hildur María Jónasdóttir. „Töpuðum fyrir sjálfum okkur í dag“ Anton Ingi Rúnarsson þjálfari Fram var niðurlútur eftir tap sinna kvenna fyrir ÍBV, 3-4, í fyrstu umferð Bestu deildarinnar á Lambhagavellinum í dag. Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari FramVísir/Guðmundur Þórlaugarson „Þetta er virkilega svekkjandi. Við töpuðum í rauninni svolítið fyrir sjálfum okkur í dag. Ódýr mörk og það er á okkar eigin ábyrgð þetta tap í dag,“ sagði Anton Ingi í samtali við Sýn Sport eftir leikinn. Fyrstu þrjú mörk ÍBV komu eftir hornspyrnur frá hægri, öll í fyrri hálfleik. „Vindurinn hjálpaði náttúrlega til í þessum hornspyrnum. Mér fannst við vera að gefa þeim of margar hornspyrnur og vorum kærulausar í dekkningunni. Þær skoruðu þrjú mörk eftir hornspyrnur í fyrri hálfleik,“ sagði hann. Anton Ingi sagði það jákvætt að hafa skorað þrjú mörk en að morgunljóst væri hverju Framarar þyrftu að byggja ofan á eftir þennan leik. „Það er náttúrlega bara að nýta sér mörkin og bæta þennan varnarleik. Varnarleikurinn í föstu leikatriðunum er það sem varð okkur að falli í dag,“ sagði Anton Ingi Rúnarsson. Besta deild kvenna ÍBV Fram