Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Lovísa Arnardóttir skrifar 30. mars 2026 07:25 Von er á lægð til landins í kvöld. Vísir/Vilhelm Í dag er spáð suðvestan og vestan fimm til þrettán metrum á sekúndu og dálitlar skúrir eða él, en að mestu bjart og þurrt austanlands. Snýst í austan- og suðaustanátt seint í kvöld með snjókomu eða slyddu.
Samkvæmt spá Veðurstofu verður svo vestan átta til þrettán metrar á sekúndu austanlands. Él, en snjókoma norðaustantil fram eftir degi, en léttir til þar annað kvöld. Hiti um eða yfir frostmarki að deginum. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að á Grænlandssundi sé grunnlægð og því verði vestan og suðvestanátt á landinu í dag og að á morgun komi lægð upp að sunnanverðu landinu með suðaustanátt og snjókomu eða slyddu. „Lægðin fer allhratt norðaustur yfir landið og því snýst aftur í vestan kalda eða stinningskalda með éljum í fyrramálið en norðaustantil mun snjóa fram eftir degi en annað kvöld léttir til í þeim landshlutum,“ segir að lokum í hugleiðingunum. Á vef Vegagerðar kemur fram að flughált sé á Holtavörðuheiði. Þá eru ýmsir vegir lokaðir á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Vegur um Dynjandisheiði er lokaður, Víkurskarð, Dalsmynni og Siglufjarðarvegur. Þá er víða snjóþekja og hálka. Hægt er að fá nánari upplýsingar á vef Vegagerðar og um veður á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Breytileg átt 8-15 m/s um morguninn og víða snjókoma, slydda eða rigning. Snýst síðan í vestan- og suðvestanátt með éljum. Styttir upp austanlands seinnipartinn og hvessir um tíma. Hiti um eða undir frostmarki. Á miðvikudag: Vestan og suðvestan 8-15 m/s og dálítil él, en bjart að mestu á Suðaustur- og Austurlandi. Hiti breytist lítið. Hægari seinnipartinn, en vaxandi suðaustanátt sunnan- og vestantil um kvöldið og snjókoma eða slydda með köflum. Á fimmtudag: Austan og suðaustan 13-20 og slydda eða snjókoma með köflum, en úrkomulítið á Norðurlandi. Snýst í heldur hægari suðvestanátt með éljum seinnipartinn og um kvöldið. Hiti um eða yfir frostmarki. Á föstudag: Breytileg átt og víða stöku él, einkum við sjóinn. Kólnar í veðri. Á laugardag: Útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt og snjókomu, en stöku él á Suður- og Vesturlandi. Hiti í kringum frostmark. Á sunnudag: Líklega norðanátt og él eða snjókoma, einkum norðantil. Hiti breytist lítið.
Veður Færð á vegum Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira