Fær lengra leikbann og er til rannsóknar fyrir að hrinda boltastráki Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. mars 2026 18:02 Pedro Neto brást illa við rauða spjaldinu og fékk eins leiks bann til viðbótar. Shaun Botterill/Getty Images Pedro Neto, leikmaður Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, hefur verið dæmdur í auka eins leiks bann og missir af leiknum gegn Newcastle á morgun. Hann gæti líka verið dæmdur í bann í Meistaradeildinni fyrir að hrinda boltastrák.
Neto fékk að líta tvö gul spjöld með þriggja mínútna millibili í 2-1 tapi gegn Arsenal þann 1. mars. Fyrsta spjaldið var fyrir kjaftbrúk en seinna spjaldið var fyrir að tækla Gabriel Martinelli. Rautt spjald fór á loft. Hann tók út bann gegn Aston Villa um síðustu helgi og hefur nú verið dæmdur til að taka út bann í leiknum gegn Newcastle á morgun, fyrir óviðeigandi viðbrögð við rauða spjaldinu. Neto sást mótmæla dómnum þegar hann labbaði af vellinum. Fyrir það fékk hann eins leik bann og sjötíu þúsund punda sekt. Portúgalinn er einnig til rannsóknar hjá aganefnd UEFA og gæti verið dæmdur í leikbann í Meistaradeildinni, fyrir að hrinda boltastráki í 5-2 tapi Chelsea gegn PSG á miðvikudag. „Ég hef séð PSG atvikið aftur núna og þetta lítur ekki vel út… En ég skil hlið Pedro. Hann vill fá boltann aftur eins fljótt og hægt er. Hann vill vinna leikinn. Þetta er kannski ekki leiðin til þess. Ég dáðist samt að því, og það var hans hugmynd, að hann baðst strax afsökunar. Eins og ég hef sagt, hvort sem þú ert markmaður, ég sem þjálfari og allir hinir leikmennirnir, við gerum mistök. Þetta snýst um að læra af þeim og sjá til þess að þau endurtaki sig ekki,“ sagði Liam Rosenior, þjálfari Chelsea á blaðamannafundi fyrr í dag.
Chelsea FC Enski boltinn Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira