Stífri norðanátt beint til landsins og vegir lokaðir Atli Ísleifsson skrifar 13. mars 2026 07:13 Sunnanlands verður úrkomulítið þó að reikna megi með dálitlum éljum suðvestanlands. Vísir/Vilhelm Lægðasvæði norðaustur af landinu beinir stífri norðvestlægri átt yfir landið með snjókomu á norðanverðu landinu og víða skafrenningi á fjallvegum. Sunnanlands verður úrkomulítið þó að reikna megi með dálitlum éljum suðvestanlands.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði hvassast suðaustantil í dag, en suðvestanlands muni lægja smám saman. Gulu viðvaranirnar sem voru í gildi í nótt á norðvestanverðu landinu eru nú allar fallnar úr gildi. „Lægðardrag kemur nær landi úr norðri í kvöld og þá hvessir heldur og vindátt verður vestlægari á Norður- og Austurlandi en jafnframt dregur úr úrkomu. Dálítill úrkomubakki kemur inn á Norðurland í fyrramálið með snjókomu eða slyddu,“ segir á vef Veðurstofunnar. Holtavörðuheiðin lokuð Vegum var víða lokað á Vestfjörðum í gær og í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu. Lögreglan á Vestfjörðum lokaði seint í gærkvöldi veginum um Eyrarhlíð, á milli Ísafjarðar og Hnífsdals. Ratsjá Veðurstofunnar greindi þrjú snjóflóð ofan Flateyrar í gær, eitt í Innra‑Bæjargili og tvö í Skollahvilft. Stærstu tvö snjóflóðin náðu að varnargörðunum ofan bæjarins en sköpuðu ekki hættu í byggð. Snjóflóðahætta er á Flateyrarvegi var veginum verður lokað í gærkvöldi þá féllu mörg flóð á veginn um Súðavíkurhlíð og hefur hann verið lokaður frá því fyrir hádegið í gær. Búist er við næstu upplýsingum um væntanlega opnun á þessum svæðum um klukkan tíu. Að auki greindi Veðurstofan frá því í gær að snjóflóð hafi fallið á veg í Súgandafirði, utan við Suðureyri. Líklegt er að fleiri snjóflóð hafi fallið á svæðinu en þar sem skyggni er takmarkað koma þau væntanlega ekki í ljós fyrr en birtir nú í morgunsárið.Og samkvæmt upplýsingasíðu Vegagerðar nú í morgunárið er að auki lokað á Steingrímsfjarðarheiði og um Þröskulda. Veðurhorfur á landinu næstu daga Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Á laugardag: Vestlæg átt, 8-15 m/s austantil á landinu, en hægari vestanlands. Snjókoma eða él á fyrir norðan og slydda eða rigning við ströndina, en bjart sunnan heiða. Dregur úr vindi og úrkomu eftir hádegi, en vaxandi austanátt seinnipartinn og þykknar upp sunnanlands. Strekkings eða allhvöss austanátt vestantil á landinu um kvöldið, en mun hægari austanlands. Snjókoma eða slydda syðst, en víða él eða snjókoma fyrir norðan. Hiti 0 til 5 stig. Á sunnudag: Norðaustan 13-20, hvassast norðvestantil og við suðausturströndina, en mun hægari norðaustanlands. Snjó- eða slydduél, en léttir til suðvestanlands eftir hádegi. Hiti 1 til 5 stig. Á mánudag: Vaxandi norðaustanátt með éljum, en úrkomulítið sunnanlands. Norðaustan hvassviðri og bætir í ofankomu fyrir norðan. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Stíf norðanátt með talsverðri ofankomu fyrir norðan, lengst af mun hægari vindur og slydda eða rigning austast á landinu, en þurrt að kalla suðvestanlands. Kólnandi. Á miðvikudag: Minnkandi norðanátt með éljum og léttir víða til. Frystir um allt land. Á fimmtudag: Útlit fyrir ákveðna sunnanátt með slyddu en síðar rigningu, einkum sunnan- og vestanlands og hlánar.
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira