Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Aron Guðmundsson skrifar 10. febrúar 2026 21:30 Clive Mason/Getty Images Leikmenn Chelsea naga sig í handarbökin eftir að hafa glutrað niður tveggja marka forystu gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld í leik sem endaði með 2-2 jafntefli. Leikmenn Chelsea naga sig í handarbökin eftir að hafa glutrað niður tveggja marka forystu gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld í leik sem endaði með 2-2 jafntefli. Liðin mættust á Stamford Bridge í Lundúnum og leikurinn byrjaði vel fyrir Chelsea. Joao Pedro kom liðinu yfir með marki á 24.mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins. Pedro verið iðinn við kolann upp á síðkastið. Chelsea fékk svo vítaspyrnu nokkuð snemma í seinni hálfleik, nánar tiltekið á 58.mínútu. Cole Palmer. stjarna liðsins tók spyrnuna, kom boltanum fram hjá Karl Darlow í markinu og boltinn endaði í netinu, staðan orðin 2-0 Chelsea í vil. Gestirnir í liði Leeds United voru hins vegar ekki á þeim buxunum að gefast upp. Þjóðverjinn Lukas Nmecha minnkaði muninn fyrir Leeds með marki úr vítaspyrnu á 67.mínútu og aðeins nokkrum mínútum síðar jafnaði Noah Okafor metin fyrir gestina í stöðuna 2-2. Og þar við sat. Liðin skiptu á milli sín stigunum og eru það gestirnir í Leeds United sem leggjast sáttari á koddann í kvöld. Chelsea varð af mikilvægum stigum í Meistaradeildarbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið situr í 4.sæti með 44 stig. Leeds United er í 15.sæti með 30 stig, sjórum stigum frá fallsæti.
Leikmenn Chelsea naga sig í handarbökin eftir að hafa glutrað niður tveggja marka forystu gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld í leik sem endaði með 2-2 jafntefli. Liðin mættust á Stamford Bridge í Lundúnum og leikurinn byrjaði vel fyrir Chelsea. Joao Pedro kom liðinu yfir með marki á 24.mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins. Pedro verið iðinn við kolann upp á síðkastið. Chelsea fékk svo vítaspyrnu nokkuð snemma í seinni hálfleik, nánar tiltekið á 58.mínútu. Cole Palmer. stjarna liðsins tók spyrnuna, kom boltanum fram hjá Karl Darlow í markinu og boltinn endaði í netinu, staðan orðin 2-0 Chelsea í vil. Gestirnir í liði Leeds United voru hins vegar ekki á þeim buxunum að gefast upp. Þjóðverjinn Lukas Nmecha minnkaði muninn fyrir Leeds með marki úr vítaspyrnu á 67.mínútu og aðeins nokkrum mínútum síðar jafnaði Noah Okafor metin fyrir gestina í stöðuna 2-2. Og þar við sat. Liðin skiptu á milli sín stigunum og eru það gestirnir í Leeds United sem leggjast sáttari á koddann í kvöld. Chelsea varð af mikilvægum stigum í Meistaradeildarbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið situr í 4.sæti með 44 stig. Leeds United er í 15.sæti með 30 stig, sjórum stigum frá fallsæti.
Enski boltinn Chelsea FC Leeds United Mest lesið Blaðamannafundi Heimis frestað og von á yfirlýsingu Fótbolti „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Allt vitlaust á landsliðsæfingu þegar ungir mættu gömlum Sport Sjáðu stórkostlega aukaspyrnu Daníels Tristans gegn Frökkum Fótbolti Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti Celtic og Rangers áfrýja Sport Nafnarnir í KA sáu um Val Sport Fleiri fréttir Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Sjá meira