Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. júlí 2025 08:32 Dejphon Chansiri, eigandi Sheffield Wednesday, vill frekar halda ungum leikmönnum sem hann getur selt. getty Fjárhagsstaðan er afar slæm hjá Sheffield Wednesday, sem spilar í Championship deildinni á Englandi. Um mánaðamótin borgaði félagið bara leikmönnum undir 21 árs aldri laun, því þeir eru verðmæt söluvara, og nú má allt aðalliðið rifta samningi sínum ef þeir vilja.
Fjórföldu Englandsmeistararnir í Sheffield greiddu einnig þjálfaranum Danny Rohl laun og greiddu þjálfarateymi hans hluta af launum sem þau eiga inni, en aðrir fengu ekki greitt, annan mánuðinn í röð. Samkvæmt reglum FIFA mega leikmenn rifta samningi sínum með fimmtán daga fyrirvara ef þeir fá ekki greidd laun tvo mánuði í röð en forseti leikmannasamtakanna í Bretlandi segir samninginn nú þegar margbrotinn og ekki hægt að krefjast fimmtán daga frests lengur. „Því miður á Sheffield Wednesday sér sögu af vangoldnum launum, ég held að þetta sé í þriðja skipti síðustu fjóra mánuði. Við höfum verið í samskiptum við leikmenn, okkar hlutverk er ekki að segja þeim hvað þeir eiga að gera, heldur veita þeim tækifæri til að sækja sinn rétt. Það er síðan þeirra að ákveða hvað þeir vilja gera“ sagði forseti leikmannasamtakanna (PFA), Maheta Molango. Sheffield Wednesday hefur nú þegar fengið félagaskiptabann í þessum og næstu tveimur gluggum og eigandi félagsins, Dejphon Chansiri, hefur verið kærður af deildarsamtökunum EFL. Félagið er til sölu og án æfingasvæðis eins og er, nýi völlurinn á æfingasvæðinu er ekki tilbúinn og liðið hefur ekki heldur bókað neina æfingaleiki á undirbúningstímabilinu.
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira