Arnór ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. desember 2024 11:26 Björn Steinar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, og Arnór Smárason, yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. valur Arnór Smárason hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Val. Hann tekur við starfinu 1. janúar næstkomandi.
Arnór lagði skóna á hilluna í haust en síðasti leikur hans á ferlinum var á Hlíðarenda. ÍA tapaði þá fyrir Val, 6-1. Arnór þekkir vel til hjá Val en hann lék í tvö tímabil með liðinu. „Ég er afar þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt með því að ráða mig sem yfirmann knattspyrnumála hjá eins stórum og metnaðarfullum klúbbi og Valur er. Að sama skapi hlakka ég mikið til samstarfsins við allt það frábæra fólk sem ég veit að er í Val við að byggja upp og móta framtíðarsýn félagsins,“ segir Arnór í fréttatilkynningu frá Val. Valsmönnum hefur verið legið á hálsi fyrir að vera með fáa uppalda leikmenn í sínum liðum. Arnór segist skynja vilja hjá Val að breyta þessu. „Iðkendafjöldinn hefur tvöfaldast á síðustu árum og mér er sagt að í dag séu yfir 900 iðkendur í fótbolta í Val. Mitt hlutverk verður að virkja fólkið í félaginu og búa til umgjörð og nýta þau tækifæri sem fjölgun iðkenda færir félaginu þannig að leiðin fyrir þessa krakka verði greiðari. Við eigum að hafa metnað til þess að skila af okkur bæði góðu fótboltafólki en ekki síst góðum manneskjum,“ segir Arnór. Hann kom víða við á leikmannaferlinum. Hann lauk ferlinum á Íslandi en spilaði þar áður í Hollandi, Svíþjóð, Rússlandi og Noregi. Arnór spilaði 26 leiki fyrir íslenska A-landsliðið auk fjölda leikja fyrir yngri landsliðin. Valur endaði í 3. sæti Bestu deildar karla á síðasta tímabili og 2. sæti Bestu deildar kvenna auk þess að vinna Mjólkurbikar kvenna.
Besta deild karla Besta deild kvenna Valur Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira