Gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út vegna asahláku á Vestan- og Norðanverðu landinu. Viðvörunin tók gildi klukkan sex í morgun og gildir til tvö í nótt. Þar kemur fram að búast megi við miklum leysingum, auknu afrennslu og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.

Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að samfara svona hlýindum ryðji ár og lækir sig gjarnan. Víða á norðurhelmingi landsins eru vatnsfarvegir ísilagðir. Stundum myndast klakastíflur sem geta valdið staðbundnum flóðum og jafnvel haft áhrif á vegi, ræsi og brýr. Sama á við ræsi og niðurföll í þéttbýli þar sem við á, þá þarf að hreinsa frá svo vatn komist greiðlega í burtu.
Í nótt og fyrramálið styttir svo aftur upp. Þá verður yfirleitt bjart á morgun og áttin er suðvestlægari. Á Norðurlandi verður suðvestan hvassviðri eða stormur á stöku stað, en hægari sunnantil. Um kvöldið dregur úr vindi. Kólnar aðeins í veðri.
Á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, kemur fram að víða á landinu sé hálka og hálkublettir. Þá er einnig víða krapi.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag og þriðjudag:
Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt og léttskýjað, en skýjað með köflum við vesturströndina. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Á miðvikudag:
Austan 3-8 m/s, en suðaustan 8-13 við suðvesturströndina. Víða bjartviðri, en skýjað með köflum við ströndina sunnantil. Hiti 5 til 0 stig vestanlands, en um frostmark fyrir austan.
Á fimmtudag og föstudag:
Útlit fyrir norðlæga átt og bjartviðri suðvestanlands, hiti 2 til 8 stig að deginum, en skýjað norðaustantil og stöku él, frost 0 til 6 stig.
Nánar á vef Veðurstofunnar.