Tónlist

„Held að við séum hrædd við eðli­lega þjáningu“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sverrir Norland frumsýnir hér tónlistarmyndband við lagið Mér líður best illa (Kletturinn). Hann ræddi við blaðamann um listina, karlmennskuhugmyndir, tilfinningar og fleira.
Sverrir Norland frumsýnir hér tónlistarmyndband við lagið Mér líður best illa (Kletturinn). Hann ræddi við blaðamann um listina, karlmennskuhugmyndir, tilfinningar og fleira. Vísir/Vilhelm

Tónlistarmaðurinn og rithöfundurinn Sverrir Norland sendi frá sér lagið Mér líður best illa (Kletturinn) í október og frumsýnir hér tónlistarmyndband við lagið.

Hér má sjá tónlistarmyndbandið:

Klippa: Mér líður best illa (Kletturinn) - Sverrir Norland

„Þeir sem spila með mér eru góðir vinir mínir og frábærir tónlistarmenn. Helgi Egilsson bassasnillingur og líka bakraddir, Óskar Þormarsson á trommur og Ragnar Jón Ragnarsson, kallaður Humi, á hljómborð, syntha og bakraddir. 

Ég syng og spila á gítarinn. Ólafur Daðason tók upp og hljóðblandaði ásamt Halldóri Gunnari Pálssyni Fjallabróður. Myndbandið skaut Hákon Örn Helgason sem klippti það líka og sá um alla eftirvinnslu. Ég elska þá alla,“ segir Sverrir. 

Sverrir gaf út skáldsöguna Kletturinn fyrr á árinu.Kápa eftir Alexöndru Buhl

Mikilvægt að geta sett sig í spor annarra

Sverrir gaf út skáldsöguna Kletturinn fyrr á árinu en segir skáldskapinn og tónlistina vinna vel saman.

„Ég hef alltaf haft áhuga á tónlist og gaf út plötu 2008 sem hét því frumlega nafni Sverrir Norland. Núna bauðst mér að taka upp plötu og lög. Þetta vatt svolítið upp á sig, núna er ég búinn að gera plötu með eiginlega sömu hljómsveit og ég spilaði mikið með hér áður fyrr.

Lagið varð til í kjölfar bókar sem ég gaf út í ár og heitir einmitt Kletturinn. Þegar maður er að skrifa eitthvað og búa til tónlist þá flæðir sköpunin á milli. Mér finnst líka gaman að semja lög þar sem persónur sem ég skrifa um fá að tala og tjá sig. Í einu lagið er til dæmis rúmlega tvítug kona að tala og það er mjög frelsandi. 

Það er svo algengt að semja lag út frá sjálfum sér, ef maður er ástfanginn syngur maður um það og svo framvegis. Sem getur verið svolítið sjálfsmiðuð textagerð. Það er skemmtilegt að semja persónu og setja þig inn í hennar hugarheim. Að geta sett sig í spor annarra.“

Sverrir segir að Kletturinn sé skrifuð í fyrstu persónu, eins og sumar aðrar bóka hans, og því haldi fólk oft að hann eigi mikið sameiginlegt með aðalpersónunni.

„Sögupersónan er mjög ólík mér og þetta er allt bara skáldskapur. Við þurfum að þjálfa okkur í að tala ekki bara um okkur sjálf. 

Að mínu mati gengur listin út á að setja sig í spor annarra, annars gæti þetta bara verið dagbókarfærsla. Ef þú ætlar að gefa eitthvað út verður það að vera stærra en þú.“
Sverrir Norland segir mikilvægt að geta sett sig í spor annarra og að listsköpun þurfi að vera eitthvað stærra en þú.Vísir/Vilhelm

Listafólki líði oft best illa

Aðspurður hvort honum líði þá ekki best illa eins og lagið gefur til kynna svarar Sverrir hlæjandi:

„Mér líður almennt bara ágætlega en mér finnst þetta skemmtileg lína. Þjáningin gerir okkur oft áhugaverð og klæðir marga vel. Ég held að í dag séum við hrædd við eðlilega þjáningu. Við grípum svo oft símann til að dreifa huganum eða deyfa okkur eða erum á lyfjum. Oft held ég að þetta sé hluti af því að vera til en við erum þó að sjúkdómsvæða. Það er allt í lagi að manni líði illa stundum, ég held listafólki líði oft best illa.“

Í bókinni Kletturinn lendir aðalpersónan í hræðilegu atviki og veltir fyrir sér hvort hann hafi jafnvel viljað lenda í einhverju slæmu svo hann geti mögulega notað það sem afsökun síðar. Söguþráður lagsins er skyld hugmynd að sögn Sverris.

„Sumir eyðileggja líf sitt næstum því viljandi. Persónan sem er að syngja gefur skít í allt og vill bara líða illa.“

Sverrir segir mikilvægt að geta liðið illa stundum og vera meðvitaður um að það sé allt í lagi. Vísir/Vilhelm

Heillandi að velta fyrir sér karlmennsku

Í tónlistarmyndbandinu er Sverrir í fjórum hlutverkum – venjulegi Sverrir, karlmennsku-Sverrir (Kletturinn), klikkaði-Sverrir (vonsvikni, reiði karlinn) og svo dapri Sverrir sem kann ekki að binda bindishnút og er alltaf í svörtum fötum eins og hann sé á leið í jarðarför.

„Í textanum við lagið og Klettinum (bókinni) eru svipuð þemu. Ég nota línur úr bókinni í laginu og er að velta fyrir mér tilfinningalífi karlmanna. Mér finnst heillandi að pæla í karlmennsku og Kletturinn, skáldsagan sem sagt, fjallar að stóru leyti um ólíkar tegundir karlmennsku. 

Vangetu karla til að tjá sig, metinginn á milli þeirra og oft svona ógnarjafnvægi og svo vináttu karlmanna almennt. Líka hvernig þeir elska. Og sýna það, eða sýna það ekki.“

Þá segir hann að karlmennska geti bæði verið jákvæð og neikvæð.

„Ég tengi karlmennsku við óeigingjarnar hetjudáðir og aðdáunarverða hörku eins og þegar karlar hættu lífi sínu til að bjarga öðrum á öldum áður, til dæmis eftir skipbrot, eða reru út í litlum bátum til að fiska í soðið og drukknuðu oft auðvitað. Það er viss tegund af aðdáunarverðri karlmennsku. Fórnfýsi. Ást.

Önnur tegund, mjög algeng í samtímanum, er svona karlmennska sem bælir niður allt skemmtilegt. Til dæmis gamla vinnumenningin: Þú átt að sitja í vinnunni 9-5, drekka kaffi og stara á tölvuskjáinn. Það er viss tegund af ömurlegri karlmennsku, að sitja við borð átta tíma á dag óháð því hvort það er eitthvað að gera eða ekki. Bara vinna, drengur!“

Karlmennskuhugmyndir eru Sverri hugleiknar.Vísir/Vilhelm

Hatar svoleiðis karlmennsku

Sverrir nefnir einnig birtingarmynd karlmennskunnar sem snýr að því að tala endalaust um íþróttir og drekka bjór.

„Að alls ekki fara neitt djúpt í hlutina, hvað þá ræða hvernig þér líður. Vera bara á yfirborðinu og klæða þig í svört eða grá föt. Byrja svo að gera grín að þeim sem berskjaldar sig eða opinberar veikleika og skýla sjálfum sér á bak við boltann og bjórinn. 

Svoleiðis karlmennska er ennþá undarlega ríkjandi. Karlmennska sem eins konar blinda á möguleika tilverunnar og andúð á fegurð og hugmyndaauðgi. 

Ég hata svoleiðis. Karlmennsku sem ótta við tilfinningar og hugmyndir.

Karlmennska er líka oft fælni við tjáningu, það að berskjalda sig. Að kunna á tjá sig og eyða tíma í það þykir oft kvenlegt. Karlar eru miklu verri í því (með mörgum undantekningum) og karlar eru líka miklu ofbeldisfyllri. Ég held að þetta haldist í hendur. Ofbeldi er tjáning. 

Við sjáum hvernig börn berja oft frá sér af frústrasjón þegar þau geta ekki tjáð sig. Fullorðinn karlmaður sem lemur aðra er bara eins og barn. Getur ekki tjáð sig öðruvísi.

En ekkert okkar er svona hart í alvörunni. Klettar molna. Ef mér líður best illa þá hleypi ég því bara út – og dansa.“
Sverri þykir gott að hleypa tilfinningunum út og dansa!Vísir/Vilhelm

Skilvirkur athyglisbrestur

Sverrir stefnir á að gefa út tólf laga breiðskífu í upphafi næsta árs sem mun bera heitið Mér líður best illa. Hann segir að í kjölfarið muni hann mögulega koma meira fram og spila en á döfinni sé að kynna bókina.

„Ef ég á að kynna bók langar mig að flytja tónlist og það er örugglega öfugt svo ef ég á að halda tónleika, þá myndi ég örugglega frekar vilja lesa upp úr bók. Það er líka oft þannig hjá mér að ef ég er með eitt verkefni þá geri ég tíu önnur í staðinn. Þetta er svona skilvirkur athyglisbrestur.“

Hreyfing er órjúfanlegur hluti af sköpunarferli Sverris sem þykir mjög gott að geta verið einn með hugsunum sínum, til dæmis úti að hlaupa.Vísir/Vilhelm

Hreyfing spilar veigamikið hlutverk í sköpunarferli Sverris.

„Frá því ég var lítill var ég alltaf að semja sögur og lög í hausnum en það hefur alltaf verið nátengt hreyfingu hjá mér. Ef ég er úti að ganga eða hlaupa eða í fótbolta sem dæmi. Ég verð að vera alveg laus við tónlist og leyfa mér bara að vera úti einn með hausnum mínum. 

Ég hef stundum áhyggjur af því að fólk gefi sér aldrei tíma eitt með hausnum sínum, fyrir mér er það svo ótrúlega mikilvægt. 

Þetta lag kom til dæmis til mín þegar ég var úti að hlaupa. Ég samdi lagið í kollinum á mér, tók upp demó þegar ég kom heim og sendi á félaga mína sem spila með mér. Á einu kvöldi var lagið svo tilbúið.“

Hann segir einnig að með aldrinum hafi hann lært að einfalda líf sitt.

„Ég lærði á jazzgítar þegar ég var ungur og ég lagði oft upp úr því að semja svo flókin lög til að sýna hvað ég kynni. Núna einfalda ég allt rosa mikið og ég vil frekar hafa einhver skilaboð í laginu sem eru grípandi og einföld. Vonandi er þetta listrænn þroski. Þú þarft ekki að sanna fyrir þér að þú getir gert eitthvað flókið. Frekar að hafa eitthvað að segja sem fólk getur skilið,“ segir Sverrir að lokum. 

Hér má hlusta á Sverri Norland á streymisveitunni Spotify


Tengdar fréttir

Sadískt um­sóknar­ferli um lista­manna­laun

„Ég sit hér í næði á kontórnum og skrifa næstu bók,“ segir rithöfundurinn Sverrir Norland. Hann var að senda frá sér nýja sögu sem heitir Kletturinn og þegar byrjaður á þeirri næstu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×