Fótbolti

„Að sjálfsögðu eru það vonbrigði“

Sindri Sverrisson skrifar
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Guðrún Arnardóttir voru skiljanlega svekktar eftir tapið stóra í Þýskalandi í kvöld.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Guðrún Arnardóttir voru skiljanlega svekktar eftir tapið stóra í Þýskalandi í kvöld. Getty/Gerrit van Cologne

„Við töpuðum bara fyrir góðu liði. Náðum kannski ekki alveg að spila agressívt á móti þeim. Þær unnu öll návígi og það var erfitt fyrir okkur,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, í viðtali við RÚV í Bochum eftir 4-0 tap Íslands gegn Þýskalandi í Þjóðadeild kvenna í fótbolta.

Íslenska liðið lenti undir eftir tæplega tuttugu mínútna leik og var 2-0 undir í hálfleik. Þýska liðið hafði í raun fullkomna stjórn á leiknum allan tímann.

„Auðvitað er alveg hægt að segja það að uppleggið hafi ekki gengið upp. Við töpuðum náttúrulega 4-0. Við náðum aldrei að flytja boltann fram á við til að raunverulega eiga möguleika á að pressa þær uppi. Það var vandamál.

Okkur gekk illa að halda í boltann, og töpuðum návígum þegar við vorum með boltann, þannig að það er erfitt að flytja liðið upp þegar þú tapar alltaf boltanum á eigin vallarhelmingi. Þetta var svona það erfiðasta. Þær [þýsku] voru bara drullugóðar á móti okkur. Vel agressívar og pressuðu okkur hátt. Bara læti í þeim allan tímann,“ sagði Þorsteinn við RÚV.

Ísland skapaði sér ekki eitt einasta færi í leiknum.

„Já, að sjálfsögðu eru það vonbrigði. En ef við setjum þetta í samhengi þá vorum við ekki fyrir fram að leggja upp með það að við kæmum til Þýskalands og myndum vinna. Við auðvitað förum í alla leiki til að vinna og gerum allt sem við getum, en auðvitað var sóknarleikurinn erfiður og þungur hjá okkur. Sendingar, móttaka og önnur „basic“ atriði voru erfið og þung hjá okkur.

Svona er þetta bara. Leikurinn fór illa en það breytir því ekki að við þurfum bara að gíra okkur upp og vera áfram í þessari baráttu,“ sagði Þorsteinn.

Spurður út í stöðuna á Sveindísi Jane Jónsdóttur, sem missti af leikjunum við Þýskaland og Wales vegna meiðsla, og hvort hún yrði með í lok október þegar Ísland mætir Danmörku og Þýskalandi á Laugardalsvelli, svaraði Þorsteinn:

„Nei, ég veit raunverulega ekki neitt fyrr en í næsta glugga.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×