Enski boltinn

Yfir­­­­­­­lýsing Greenwood: „Ég gerði ekki þá hluti sem ég var sakaður um“

Aron Guðmundsson skrifar
Mason Greenwood yfirgefur Manchester United 
Mason Greenwood yfirgefur Manchester United  Getty/Marc Atkins

Mason Greenwood mun yfirgefa herbúðir enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United. Þetta staðfestir félagið í yfirlýsingu í dag og nú hefur Greenwood sjálfur gefið út yfirlýsingu.

Greenwood hefur ekki spilað fyrir United síðan hann var sakaður um að beita kærustu sína ofbeldi. Myndböndum og myndum af því var lekið á netið. Greenwood var ákærður fyrir tilraun til nauðgunar, líkamsárás, valdbeitingu og stjórnsemi skömmu eftir að greint var frá málinu í fjölmiðlum en seinna meir voru ákærur á hendur honum felldar niður.

„Ég vil byrja á því að segja að ég skil að fólk muni dæma mig vegna þess sem það hefur séð og heyrt á samfélagsmiðlum og ég veit að fólk mun hugsa það versta.

Ég var alinn upp við að vita að ofbeldi eða misnotkun, í hvaða formi sem er, er aldrei í lagi. Ég gerði ekki þá hluti sem ég var sakaður um og í febrúar var ég hreinsaður af öllum ákærum.“

Hann hafi hins vegar gert mistök í sínu sambandi

„Og ég tek fulla ábyrgð á þeim aðstæðum sem urðu til þess að færslan sem birtist á samfélagsmiðlum var sett inn.“

Hann sé að læra að skilja skyldur sínar.

„Að sýna gott fordæmi sem atvinnumaður í fótbolta, og ég einbeiti mér að þeirri miklu ábyrgð að vera faðir, sem og góður maki.“

Og um ákvörðun dagsins, að hann yfirgefi Manchester United, hefur hann þetta að segja:

„Ákvörðun dagsins hefur verið hluti af samvinnuferli Manchester United, fjölskyldu minnar og mín. Besta ákvörðunin fyrir okkur öll er að ég haldi áfram fótboltaferli mínum fjarri Old Trafford, þar sem nærvera mín mun ekki trufla félagið. Ég þakka félaginu fyrir stuðninginn sem ég hef fundið fyrir frá því að ég gekk til liðs við félagið aðeins sjö ára gamall. Það mun alltaf vera hluti af mér sem er tengdur Manchester United.“

„Ég er afar þakklátur fjölskyldu minni og öllum ástvinum mínum fyrir stuðninginn og það er nú mitt að endurgjalda traustið sem í kringum mig hefur sýnt. Ég ætla að verða betri knattspyrnumaður, en síðast en ekki síst vera góður faðir, betri manneskja og nýta hæfileika mína á jákvæðan hátt innan sem utan vallar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×