Enski boltinn

Utan vallar: Mann­legur Greal­ish ber af hjá Evrópu­meisturunum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Evrópumeistarinn Jack Grealish.
Evrópumeistarinn Jack Grealish. Marc Atkins/Getty Images

Jack Grealish var ekki meðal þeirra sjö leikmanna Manchester City sem komst í lið ársins í Meistaradeild Evrópu. Það er samt eitthvað svo mannlegt við Grealish að það er ekki annað hægt en að líka vel við hann, þó þú haldir með rauða liðinu í Manchester-borg.

Manchester City varð á laugardag Evrópumeistari í fyrsta sinn. Með sigrinum varð liðið einnig aðeins annað lið í sögu Englands til að vinna þrennuna, það er Englands-, bikar- og Evrópumeistari.

Eðlilega hafa margir leikmenn liðsins átt frábært ár og þá verður ekki nóg skrifað um þjálfara þess Pep Guardiola. Þá má einnig skrifa eitthvað um ákærurnar 115 sem hanga yfir félaginu eins og grátt rigningarský en það sem undirritaður vill ræða er hinn 27 ára gamli Jack Grealish.

Vængmaðurinn knái gekk í raðir Man City sumarið 2021 frá uppeldisfélagi sínu Aston Villa. Þar var hann kóngur í ríki sínu og fékk að gera nánast það sem hann vildi. Lengi vel virtist sem leikstíll Man City sem og 100 milljón punda verðmiðinn væri að halda Grealish niðri en hann átti verulega erfitt uppdráttar eftir að hafa fært sig um set til Manchester.

Grealish hefur hins vegar verið frábær í ár og er mikilvægur hlekkur í mögnuðu liði Man City þó svo að margir leikmenn skili betri tölum þegar kemur að mörkum og stoðsendingum. Alls spilaði Grealish 50 leiki á nýafstaðinni leiktíð, skoraði 11 mörk og gaf 5 stoðsendingar. Þrátt fyrir að gefa aðeins eina stoðsendingu í Meistaradeildinni þá skapaði hann samt sem áður flest færi á leiktíðinni.

„Þetta er það sem maður vinnur að allt sitt líf. Ég er svo hamingjusamur,“ sagði tárvotur Grealish eftir sigurinn gegn Inter í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Hann viðurkenndi svo að hann hefði ekki átt sinn besta dag.

„Ég var svo „dauður“ í dag, ég var skelfilegur. Mér er samt í hreinskilni sagt alveg sama. Að vinna þrennuna, með þessum hóp leikmanna og starfsliði, er einstakt.“

„Allir sem þekkja mig vita hversu mikill fjölskyldumaður ég er, hversu mikið ég elska fótbolta og hversu mikið ég hef lagt á mig allt mitt líf. Maður hugsar til fólksins sem hefur hjálpað manni þangað sem maður er kominn. Bara að sjá fjölskylduna mína í stúkunni gerir mig meyran.“

Að lokum hrósaði hann Pep Guardiola, þjálfara liðsins.

„Hann er snillingur. Ég þakkaði honum einfaldlega fyrir eftir leik. Hann kom mér hingað, hann keypti mig á allan þennan pening.“

Grealish var meyr eftir leik og hefur verið mjúkur síðan. Þó undirritaður ætli ekki að fara dásama neyslu áfengis þá er gaman að sjá leikmenn fagna árangri sem þessum vel og innilega. Eins og staðan er í dag er ætlast til að íþróttamenn á hæsta getustigi séu vélmenni, menn spila að því virðast á þriggja daga fresti allan ársins hring, sýni engar tilfinningar og hafi sér eins og dýrlingar frá morgni til kvölds.

Nú, þegar ekki eru liðnir tveir sólarhringar síðan leik lauk, þegar hafa myndbönd birst á samfélagsmiðlum af Grealish að fagna vel og innilega. Hvort hann hafi fagnað titlinum án þess að fara í sturtu verður ósagt látið en sá orðrómur fékk byr undir báða vængi á samfélagsmiðlum eftir að myndbandið hér að neðan fór á flug.

Vængmaðurinn komst einnig í fréttirnar eftir að Man City varð Englandsmeistari vorið 2022 þegar hann hélt ræðu en kom varla út úr sér orði. Höfðu margir sérfræðingar orð á því að það virtist sem Grealish væri að missa sig í gleðinni og mögulega myndi hann ekki höndla frægðina sem fylgdi því að vera Englandsmeistari.

Ef eitthvað er virtist Grealish stíga upp eftir að verða Englandsmeistari. Hann er hinn fullkomni vængmaður fyrir þann fótbolta sem Guardiola spilar í dag. Leikmaðurinn er tilbúinn að fórna eigin velgengni fyrir liðið og uppskar eftir því.

Stóra spurningin nú er náttúrulega hvernig Grealish höndlar það að vera Evrópumeistari. Mögulega biður hann Guardiola um það sem Dwight Yorke bað Sir Alex Ferguson um eftir að Manchester United vann þrennuna vorið 1999: Ársfrí til að fagna.

Það sem gerir Grealish jafn mennskan og raun ber vitni er ekki eingöngu sú staðreynd að hann virðist njóta þess að vinna titla sem og að fagna þeim. Það er hvernig hann kemur fram við annað fólk og þá sérstaklega yngri aðdáendur sína. Grealish er hrósað mikið fyrir að gefa sér alltaf tíma fyrir aðdáendur sína, eitthvað sem íþróttamenn í dag eiga það til að gleyma.

Aftur, undirritaður tekur fram að hér er ekki markmiðið að dásama áfengisneyslu. Að því sögðu er eitthvað fallegt við að sjá íþróttamann á hæsta stigi njóta eigin velgengni jafn mikið og Grealish gerir á sama tíma og hann virðist með hjartað á réttum stað þegar kemur að stuðningsfólki og aðdáendum sínum.

Undirritaður er blaðamaður og harður stuðningsmaður Manchester United.

Jack Grealish er engum líkur.EPA-EFE/PETER POWELL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×