Sport

Setti tvö Ís­lands­met í snörun á Evrópu­mótinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórbergur Ernir Hlynsson bætti sig á Evrópumótinu og enginn Íslendingur hefur lyft meiri í snörun í hans þyngdarflokki.
Þórbergur Ernir Hlynsson bætti sig á Evrópumótinu og enginn Íslendingur hefur lyft meiri í snörun í hans þyngdarflokki. @icelandicweightlifting

Þórbergur Ernir Hlynsson varð sjötti í sínum þyngdarflokki á Evrópumeistaramóti U23 í ólympískum lyftingum sem fór fram í Durrës í Albaníu.

Þórbergur Ernir keppti í -110 kg og bætti tvö Íslandsmet fullorðinna í keppninni. Hann lyfti 326 kílóum samanlagt sem er eins kílóa bæting á Íslandsmetinu.

Þórbergur Ernir setti nýtt Íslandsmet fullorðinna í snörun þegar hann lyfti 148 kílóum í þriðju lyftu sinni. Hann bætti gamla metið um þrjú kíló.

Áður hafði hann misst fyrstu lyftu við 143 kíló en fór svo létt með sömu þyngd í annarri lyftu. Hann byrjaði örugglega í jafnhendingu á 172 kílóum og fór þaðan í 178 kíló sem fóru upp. Á þessum tímapunkti var hann búinn að bæta Íslandsmet fullorðinna í samanlögðum árangri. Síðasta lyftan við 184 kíló var fyrir nýju Íslandsmeti í jafnhendingu en því miður fór hún ekki upp.

Frábær árangur hjá Þórbergi sem er á góðu skriði fyrir heimsmeistaramótið sem fer fram í Kína mánaðarmótin október/nóvember.

Þórbergur varð Norðurlandameistari U20 árið 2025 og hefur einnig unnið til sigra á Smáþjóðamótinu og Íslandsmeistaramóti unglinga.

Á Íslandsmeistaramótinu í febrúar 2026 lyfti Þórbergur 145 kílóum í snörun og 180 kílóum í jafnhendingu, samtals 325 kílóum. Það var jafnframt hans besti skráði árangur í samanlögðu þar til á þessu móti. Hann hefur áður sett fjölmörg Íslandsmet á ferlinum.

Hér fyrir neðan má sjá hann setja Íslandsmetið í snörun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×