Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn

Sindri Sverrisson skrifar
Pedro Neto sá til þess að Chelsea færi með sigur af hólmi með tveimur mörkum.
Pedro Neto sá til þess að Chelsea færi með sigur af hólmi með tveimur mörkum. Getty/Molly Darlington

Pedro Neto skoraði bæði mörk Chelsea þegar liðið varð það fyrsta á þessari leiktíð til að vinna Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Chelsea fagnaði 2-0 sigri en Neto kom liðinu yfir strax í upphafi seinni hálfleiks með skoti úr teignum eftir góðan undirbúning Jorrel Hato sem kom inn í byrjunarlið Chelsea.

Staðan var svo 1-0 þar á lokamínútu venjulegs leiktíma þegar Neto skoraði aftur en boltinn hrökk þá til hans í teignum eftir aukaspyrnu og hann kláraði færið fagmannlega.

Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn en Chelsea er núna í 4. sæti með 13 stig, fimm stigum á eftir toppliði Manchester City sem á leik sinn við Ipswich til góða í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira