Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum

Sindri Sverrisson skrifar
Alexander Isak og Bradley Barcola fagna eftir mark Isaks sem Barcola lagði upp.
Alexander Isak og Bradley Barcola fagna eftir mark Isaks sem Barcola lagði upp. Getty

Liverpool varð í dag fyrsta liðið til að vinna Brentford á þessari leiktíð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Brentford missti mann af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik og annan undir lok leiks.

Liverpool vann leikinn 2-1 þrátt fyrir að hafa lent undir þegar Keane Lewis-Potter skoraði með frábærum skalla á 44. mínútu.

Það skyggði þó á gleði Liverpool-manna að Dominik Szoboszlai, nýmættur aftur úr meiðslum, skyldi fara meiddur af velli eftir aðeins um hálftíma leik.

Í uppbótartíma fyrri hálfleiksins missti Úkraínumaðurinn Yehor Yarmoliuk stjórn á sér í örskamma stund og skallaði Jérémy Jacquet þegar beðið var eftir hornspyrnu. Klárt rautt spjald.

Liverpool nýtti sér liðsmuninn þegar leið á seinni hálfleik og jafnaði Victor Munoz með frábærum hætti áður en Alexander Isak, mættur aftur eftir meiðsli, skoraði sigurmark eftir sendingu frá Bradley Barcola.

Rétt fyrir leikslok fékk Vitaly Janelt sitt annað gula spjald og þar með rautt svo heimamenn enduðu með aðeins níu leikmenn inni á vellinum.

Liverpool er með 12 stig í 5. sæti en Brentford sæti neðar með 10 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira