Sport

Dagskráin í dag - Hvað er að gerast í NBA?

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Kjartan Atli Kjartansson og félagar fara yfir allt það helsta í NBA.
Kjartan Atli Kjartansson og félagar fara yfir allt það helsta í NBA.

Þrír vikulegir þættir eru á dagskrá sportstöðva Stöðvar 2 í kvöld.

Lögmál leiksins, vikulegur körfuboltaþáttur þar sem Kjartan Atli Kjartansson og félagar fara yfir allt það helsta sem gerðist í NBA-deildinni í liðinni viku er á sínum stað á Stöð 2 Sport 2 klukkan 20:00

Nú er farið að draga til tíðinda í NBA þar sem lítið er eftir af deildarkeppninni og úrslitakeppnin á næsta leyti.

Á sama tíma á Stöð 2 Sport verður Seinni bylgjan á dagskrá þar sem sérfræðingar Stöðvar 2 Sports gera upp alla leikina í 20. umferð Olís deildar kvenna.

Á Stöð 2 ESport verður GameTíví á sínum stað eins og alltaf á mánudagskvöldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×