Tónlist

Þessi eru til­nefnd til Ís­lensku tón­listar­verð­launanna 2023

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Marína Ósk, Gugusar, Ásgeir Trausti og Magnús Jóhann eru meðal tilnefndra.
Marína Ósk, Gugusar, Ásgeir Trausti og Magnús Jóhann eru meðal tilnefndra. Marína Ósk/Vilhelm/Ásgeir Trausti/Dóra Dúna

Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna voru tilkynntar rétt í þessu en fjölbreyttur hópur ólíks tónlistarfólks er tilnefnt í ár. Verðlaunin verða veitt í Silfurbergi, Hörpu, miðvikudaginn 22. mars næstkomandi. Kynnar á verðlaunahátíðinni verða leik- og söngdrottningin Selma Björnsdóttir og rapparinn og leiklistarneminn Kristinn Óli Haraldsson (Króli).

Tónlistarárið 2022 var með sanni viðburðaríkt og í tilkynningu frá Íslensku tónlistarverðlaununum segir að það hafi verið stappfullt af nýjum stjörnum í bland við eldri, uppfullt af glæsilegum viðburðum af öllum toga og útgáfa í öllum flokkum tónlistar í sérlegum blóma. Allt þetta má glöggt sjá á tilnefningunum, sem eru afar fjölbreyttar í ár og breiddin mjög mikil.

Landamærin milli tónlistarstefna að mást út

„Fjöldi innsendinga voru í meira lagi, tæplega 800 talsins og verkefnin þar undir mýmörg í öllum flokkum tónlistar. Einnig vekur það athygli dómnefndarfólks sem og aðstandenda hvernig landamærin milli tónlistarstefna eru að mást út þar sem mörg tónskáld og flytjendur flakka á milli þeirra og dvelja ekki við að flokka sín verkefni sérstaklega. Það rímar einnig við þá flóðbylgju ungs og efnilegs tónlistarfólks sem er við það að springa út í sínum fjölbreyttu verkefnum.

Talsverðar breytingar voru gerðar á verðlaunaflokkum í ár, sameinað undir stærri flokka og samræmt milli helstu yfirflokkana. Verðlaunað er fyrir tónlistarflutning, söng, lög/tónverk og hljómplötur eða stærri verk. Nokkur verðlaun eru veitt þvert á alla flokka, s.s eins og fyrir upptökustjórn, myndbönd, viðburði og umslagshönnun. Síðastnefndu verðlaunin verða nú í fyrsta sinn veitt í samvinnu við Félag íslenskra teiknara á svokölluðum FÍT verðlaunum sem afhent verða seinna í mánuðinum,“ segir í tilkynningunni.

Sem dæmi má nefna að djass tónlistarkonan Marína Ósk hlýtur fjórar tilnefningar í ár sem og píanóleikarinn Magnús Jóhann. Gugusar, Friðrik Dór og Ásgeir Trausti eru hvert fyrir sig tilnefnd í þremur flokkum. 

Eftirtaldir hljóta tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2023: 

​​Tónlistarflytjendur ársins

Djasstónlist

  • Andrés Þór
  • Haukur Gröndal
  • Marína Ósk
  • Rebekka Blöndal
  • Stórsveit Reykjavíkur

Sígild og samtímatónlist

  • Barokkbandið Brák
  • Jónas Ásgeir Ásgeirsson
  • Kammersveit Reykjavíkur
  • Sæunn Þorsteinsdóttir
  • Víkingur Heiðar Ólafsson

Popp-, rokk-, hipp hopp- og raftónlist

  • Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir
  • Una Torfadóttir
  • Magnús Jóhann Ragnarsson
  • Friðrik Dór Jónsson
  • FLOTT

Önnur tónlist

  • Lón
  • Mugison
  • Magnús Jóhann
  • Arnar Guðjónsson
  • Guðrún Ólafsdóttir (RÚN)

Söngur ársins

Djasstónlist

  • Marína Ósk
  • Rebekka Blöndal
  • Silva Þórðardóttir
  • Steingrímur Teague
  • Stína Ágústsdóttir

Popp-, rokk-, hipp hopp- og raftónlist

  • Ásgeir Trausti Einarsson
  • Margrét Rán Magnúsdóttir
  • Ylfa Þöll Ólafsdóttir (Dead Herring)
  • Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir
  • Una Torfadóttir

Sígild og samtímatónlist 

  • Andri Björn Róbertsson
  • Hildigunnur Einarsdóttir
  • Dísella Lárusdóttir
  • Oddur A. Jónsson
  • Ólafur Kjartan Sigurðarson

Lög/tónverk ársins

Djasstónlist

  • Another Time - ASA Trio + Jóel Pálsson, tónverk: Scott McLemore
  • Milder's Mailbox - Baldvin Hlynsson, tónverk: Baldvin Hlynsson
  • Prikó - ADHD, tónverk: ADHD
  • Ray of Light - Haukur Gröndal, tónverk: Haukur Gröndal 
  • The Moon and the Sky - Marína Ósk, tónverk: Marína Ósk

Sígild og samtímatónlist 

  • Fasaskipti - Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, tónverk: Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, texti: Þórdís Helgadóttir 
  • FEAST - Daníel Bjarnason, tónverk: Daníel Bjarnason
  • Gemæltan - Veronique Vaka, tónverk: Veronique Vaka 
  • Glerhjallar - Sveinn Lúðvík Björnsson, tónverk: Sveinn Lúðvík Björnsson 
  • Guðspjall Maríu (The Gospel of Mary) - Hugi Guðmundsson, tónverk: Hugi Guðmundsson, texti: Niels Brunse og Nila Parly

Popp-, rokk-, hipp hopp- og raftónlist 

  • Vinir - Elín Hall. Lag: Elín Sif Halldórsdóttir, Reynir Snær Magnússon, texti: Elín Sif Halldórsdóttir
  • Á óvart (ásamt Kött Grá Pjé & Urður) - Benni Hemm Hemm. Lag og texti: Benedikt Hermann Hermannsson, Atli Sigþórsson
  • Rhodos - Ultraflex. Lag og texti: Katrín Helga Andrésdóttir og Kari Jahnsen
  • Klisja - Emmsjé Gauti. Lag: Emmsjé Gauti og Þormóður Eiríksson, texti: Emmsjé Gauti
  • Ungfrú Ísland - Kvikindi. Lag: Friðrik Margrétar Guðmundsson, Brynhildur Karlsdóttir, texti: Brynhildur Karlsdóttir
  • Bleikur og blár - Friðrik Dór. Lag og texti: Friðrik Dór Jónsson, Pálmi Ragnar Ásgeirsson
  • Snowblind - Ásgeir Trausti. Lag: Ásgeir Trausti Einarsson, texti: Ásgeir Trausti Einarsson, Pétur Ben
  • Allt - russian.girls og Bngrboy. Lag: russian.girls & Bngrboy, texti: Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko
  • Uppá rönd (ásamt GDRN) - Hjálmar. Lag: Sigurður Guðmundsson. Texti: Sigurður Guðmundsson og Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir
  • EF ÞEIR VILJA BEEF (ásamt Joey Christ) - Daniil. Lag og texti: Daníel Moroshkin og Jóhann Kristófer Stefánsson

Önnur tónlist 

  • the world is between us - Árný Margrét. Lag og texti: Árný Margrét
  • We could stay - Ólafur Arnalds og Josin. Lag: Ólafur Arnalds & Josin, texti: Josin
  • Haustdansinn - Mugison. Lag og texti: Mugison
  • Runaway (ásamt RAKEL) - Lón. Lag og texti: Ásgeir Aðalsteinsson, Ómar Guðjónsson og Valdimar Guðmundsson)
  • Rome - Jelena Ćirić. Lag og texti: Jelena Ćirić

Hljómplata ársins

Sígild og samtímatónlist 

  • Fikta - Jónas Ásgeir Ásgeirsson
  • Quanta - Einar Torfi Einarsson
  • Two Sides - Barokkbandið Brák
  • VÍDDIR - Bára Gísladóttir
  • Windbells - Hugi Guðmundsson og Kammersveit Reykjavíkur

Kvikmynda- og leikhústónlist 

  • The Essex Serpent - Herdís Stefánsdóttir og Dustin O'Halloran
  • Jaula - Snorri Hallgrímsson
  • OWLS - Magnús Jóhann
  • Surface - Ólafur Arnalds
  • Un Monde Nouveau - Arnar Guðjónsson

Djasstónlist

  • ADHD 8 - ADHD
  • Aether - Iceland's Liberation Orchestra
  • Another Time - ASA Trio + Jóel Pálsson
  • Five angles - Haukur Gröndal
  • One Evening in July - Marína Ósk

Popp-, rokk-, hipp hopp- og raftónlist 

  • Ungfrú Ísland - Kvikindi
  • Hvernig ertu? - Prins Póló
  • Vök - Vök
  • Dætur - Friðrik Dór
  • 12:48 - gugusar

Önnur tónlist

  • they only talk about the weather - Árný Margrét
  • Fossora - Björk
  • Tempó Prímó - Uppáhellingarnir
  • While We Wait - RAKEL, Salóme Katrín & ZAAR
  • Thankfully Distracted - LÓN

Upptökustjórn ársins

  • Two sides - Barokkbandið Brák. Upptökustjórn: Ragnheiður Jónsdóttir
  • More Than you Know - Silva Þórðardóttir & Steingrímur Teague. Upptökustjórn: Styrmir Hauksson, Ragna Kjartansdóttir, Steingrímur Teague & Silva Þórðardóttir 
  • Time is on my Hands - Ásgeir. Upptökustjórn: Guðmundur Kristinn Jónsson & Ásgeir Trausti Einarsson
  • Fossora - Björk. Upptökustjórn: Björk Guðmundsdóttir
  • OWLS - Magnús Jóhann. Upptökustjórn: Magnús Jóhann Ragnarsson

Tónlistarviðburður ársins

  • ErkiTíð 2022
  • 30 ára afmælistónleikar Stórsveitar Reykjavíkur
  • Moses Hightower & Prins Póló í Gamla Bíó
  • Guðspjall Maríu
  • Apparition

Tónlistarmyndband ársins

  • Drift - Daniel Wohl. Leikstjórn: Máni M. Sigfússon

  • The world is between us - Árný Margrét. Leikstjórn: Erlendur Sveinsson

  • Ósýnileg - Eliza Newman. Leikstjórn: Margrét SeemaTakyar

  • Það vex eitt blóm fyrir vestan - Rún. Leikstjórn: Viktor Sigurjónsson

  • Rome - Jelena Ćirić. Leikstjórn: Sigurlaug Gísladóttir

Plötuumslag ársins

Kemur síðar í sameiginlegri tilkynningu Íslensku tónlistarverðlaunanna og FÍT.


Tengdar fréttir

Þessi hlutu Ís­lensku tón­listar­verð­launin

Hljómsveitin FLOTT og Mono Town, rapparinn Birnir og tónlistarkonurnar Bríet og Anna Gréta Sigurðardóttir hlutu öll tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaunin sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Hörpu fyrr í kvöld. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×