Tónlist

Þessi hlutu Ís­lensku tón­listar­verð­launin

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Öll hlutu þau tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Öll hlutu þau tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum. Vísir

Hljómsveitin FLOTT og Mono Town, rapparinn Birnir og tónlistarkonurnar Bríet og Anna Gréta Sigurðardóttir hlutu öll tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaunin sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Hörpu fyrr í kvöld. 

Valgerður Guðnadóttir, söng- og leikkona, veislustýrði ásamt Guðmundi Felixsyni leikara. Hljómsveitirnar BSÍ og FLOTT stigu á stokk, sem og píanóleikarinn Magnús Jóhann, rapparinn Birnir og Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Lilja Alfreðsdóttir ráðherra menningar- og viðskipta afhenti heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna og píanóleikarinn Anna Guðný Guðmundsdóttir var valin heiðursverðlaunahafi ársins. Þá afhenti Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands björtustu vonum íslenskrar tónlistarflóru verðlaunin í ár.

Birnir með bestu rappplötu ársins

Hljómsveitin FLOTT var valin bjartasta vonin í flokki popp, rokk, rapp, hipp hopp og raftónlistar og hljómsveitin hlaut þar að auki verðlaun fyrir lag ársins „Mér er drull.“ Þá hlaut hljómsveitin Mono Town verðlaun fyrir rokkplötu ársins og sem lagahöfundur ársins í áðurnefndum flokki.

Rapparinn Birnir fékk verðlaun fyrir bestu plötu ársins í flokki rapp og hipp hop með plötunni Bushido auk rapplags ársins með laginu „Vogur“ af fyrrnefndri plötu. Þá fékk djasspíanistinn og tónlistarkonan Anna Gréta Sigurðardóttir verðlaun fyrir plötu ársins í flokki djass- og blústónlistar auk verðlauna sem lagahöfundur ársins í sama flokki.

Verðlaunahafar Íslensku tónlistarverðlaunanna 2022:

POPP, ROKK, RAPP & HIPP HOPP OG RAFTÓNLIST

POPP - PLATA ÁRSINS

Mobile Home - GusGus

ROKK - PLATA ÁRSINS

Mono Town Time Vol. I - Mono Town

RAPP&HIPPHOPP - PLATA ÁRSINS

Bushido - Birnir

RAFTÓNLIST - PLATA ÁRSINS

radio vatican - sideproject

POPP - LAG ÁRSINS

Mér er drull - FLOTT

ROKK - LAG ÁRSINS

Vesturbæjar Beach - BSÍ

RAPP&HIPPHOPP - LAG ÁRSINS

Vogur - Birnir

RAFTÓNLIST - LAG ÁRSINS

Halda áfram - russian.girls

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS

Kveðja, Bríet - Útgáfutónleikar í Eldborg

TEXTAHÖFUNDUR ÁRSINS

Teitur Magnússon

LAGAHÖFUNDUR ÁRSINS

Mono Town

SÖNGUR ÁRSINS

John William Grant

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS

Bríet Ísis Elfar

BJARTASTA VONIN Í SAMVINNU VIÐ RÁS 2

FLOTT

SÍGILD OG SAMTÍMATÓNLIST

PLATA ÁRSINS

Ethereality - Berglind María Tómasdóttir

TÓNVERK ÁRSINS

CATAMORPHOSIS - Anna Þorvaldsdóttir

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS – HÁTÍÐIR

Björk Orkestral, Live from Reykjavík

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS – TÓNLEIKAR

Óperan KOK – Þórunn Gréta Sigurðardóttir

SÖNGUR ÁRSINS

Herdís Anna Jónasdóttir

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS - EINSTAKLINGAR

Víkingur Heiðar Ólafsson

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS – HÓPAR

Mótettukórinn

BJARTASTA VONIN

Rannveig Marta Sarc

DJASS- OG BLÚSTÓNLIST

PLATA ÁRSINS

Nightjar in the Northern Sky - Anna Gréta

TÓNVERK ÁRSINS

Hlýnun - Tumi Árnason

LAGAHÖFUNDUR ÁRSINS

Anna Gréta

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS - EINSTAKLINGAR

Magnús Trygvason Eliassen

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS – HÓPAR

Hljómsveit Sigmars Þórs Matthíassonar

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS

Tónleikaröð á Skuggabaldri

BJARTASTA VONIN

Hróðmar Sigurðsson

ÖNNUR TÓNLIST: OPINN FLOKKUR, ÞJÓÐLAGA- OG HEIMSTÓNLIST, KVIKMYNDA- OG LEIKHÚSTÓNLIST

PLATA ÁRSINS – KVIKMYNDA- OG LEIKHÚSTÓNLIST

Y: The Last Man - Herdís Stefánsdóttir

PLATA ÁRSINS – ÞJÓÐLAGATÓNLIST

Brek – Brek

PLATA ÁRSINS – OPINN FLOKKUR

Mother Melancholia - sóley

LAG/TÓNVERK ÁRSINS – OPINN FLOKKUR

Vertu úlfur, titillag - Emilíana Torrini, Markéta Irglová

TÓNLISTARMYNDBAND ÁRSINS

Ég er bara að ljúga er það ekki? - Annalísa. Leikstjórn: Annalísa Hermannsdóttir

Klippa: Annalísa - Ég er bara að ljúga er það ekki?

PLÖTUUMSLAG ÁRSINS

Án tillits - Magnús Jóhann & Skúli Sverrisson. Hönnun: Halldór Eldjárn

Án tillits með Magnúsi Jóhanni og Skúla Sverrissyni.

UPPTÖKUSTJÓRN ÁRSINS

Ox - Gyða Valtýsdóttir. Upptökustjórn: Gyða Valtýsdóttir og Úlfur Hansson


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×