Erlent

Bakhjarlar Úkraínu leggja til undanhald frá Bakhmut

Samúel Karl Ólason skrifar
Úkraínskir hermenn nærri Bakhmut.
Úkraínskir hermenn nærri Bakhmut. Getty/John Moore

Úkraínumenn segjast ætla að halda Bakhmut í Dónetskhéraði, þrátt fyrir erfitt ástand þar og að Rússum hafi vaxið ásmegin. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, fundaði með herforingjaráði Úkraínu þar sem talað var um að senda meiri liðsauka á svæðið.

Í yfirlýsingu á vef forsetaembættisins frá því í dag segir að farið hafi verið yfir stöðuna við Bakhmut og á öðrum víglínum í Úkraínu. Herforingjaráðið hafi lýst yfir vilja til að halda áfram að verja Bakhmut og styrkja stöðu úkraínska hersins þar.

Fregnir hafa þó borist af því að Úkraínumenn hafi dregið einhverjar hersveitir frá Bakhmut en þeim færslum hefur ekki verið lýst sem undanhaldi af embættismönnum, heldur hafi verið að skipta út hersveitum á víglínunum.

Sérfræðingar segja mögulegt að Úkraínumenn séu byrjaðir að hörfa frá Bakhmut.

Hvetja til undanhalds

Ráðamenn í Bandaríkjunum og öðrum ríkjum sem styðja við bakið á Úkraínumönnum hafa kvatt þá til að hörfa frá bænum og byggja upp betri og hentugri varnir en Rússar hafa næstum því umkringt bæinn. Úkraínskir hermenn hafa gert gagnárásir gegn Rússum um helgina, eftir að liðsauki barst á föstudaginn en þær virðast ekki hafa skilað miklum árangri

Rússar hafa reynt að ná Bakhmut frá síðasta sumri. Umfangsmiklir og harðir bardagar geisað þar og þúsundir manna hafa fallið. Þar sem Rússar hafa að mestu verið að sækja fram þá hefur mannfallið líklega verið meira hjá þeim en Úkraínumönnum. Það hefur þó að einhverju leyti breyst undanfarnar vikur, samhliða hægum árangri Rússa í að umkringja Bakhmut.

Hér að neðan má sjá hreyfimynd af kortum sem byggja meðal annars á kortum bandarísku hugveitunnar Institute for the study of war sem sýnir hvernig víglínurnar við Bakhmut hafa breyst á undanförnum níu mánuðum.

Bærinn hefur náð táknrænni merkingu fyrir báðar fylkingar. Hernám Bakhmut yrði fyrsti sigur Rússa í Úkraínu um langt skeið en Rússar vonast til þess að geta notað bæinn sem stökkpall lengra inn í Dónetskhérað og Donbas svæðið allt.

Sjá einnig: Segjast enn verja Bakhmut

Úkraínumenn vilja þvinga Rússa til að gera árásir á víggirtar varnir þeirra í og við Bakhmut og valda sem mestu mannfalli hjá Rússum, sem njóta töluverðra yfirburða varðandi mannafla eftir að á þrjú hundruð þúsund menn voru skikkaðir til herþjónustu í fyrra.

Sannfærður um að varnirnar muni halda

Blaðamaður New York Times ræddi við yfirmann hersveitanna í Bakhmut sen sá sagðist sannfærður um að varnir Úkraínumanna muni halda. Úkraínski herinn hefði burði til að reka Rússa á brott en enn sem komið er væri markmið þeirra að reyna að valda sem mestu mannfalli hjá Rússum.

Hermenn sem NYT ræddi við sögðust þreyttir en voru ekki tilbúnir til að gefast upp.

Einn hermaður sagði NYT að Úkraínumenn stöðvuðu um fimmtán til tuttugu árásir á dag. Það hafi gengið vel en skortur á skotfærum fyrir stórskotalið hafi komið niður á vörnum þeirra.

Heimildarmenn CNN segja að Selenskí vilji halda Bakhmut. Það muni gera Úkraínumönnum auðveldara að ná aftur Donbassvæðinu svokallaða seinna meir. Hann er einnig sagður telja að fall Bakhmut myndi gefa Rússum tækifæri til að sækja fram í átt að borgunum Slovíansk og Kramatórsk.

Fregnir hafa borist af því að Rússar hafi átt í vandræðum með skotfæri fyrir stórskotalið. Deilur auðjöfursins Yevgeny Prigozhin, sem rekur málaliðahópinn Wagner Group, við forsvarsmenn hersins, hafa gefið þessum fregnum byr undir báða vængi.

Vilja leggja áherslu á sókn í suðri

Þrír bandarískir embættismenn fóru til Kænugarðs í síðustu viku, samkvæmt heimildum CNN, og ræddu við ráðamenn þar. Þeir lögðu til að Úkraínumenn hörfuðu frá Bakhmut og einbeittu sér þess í stað að því að undirbúa sókn í suðurhluta Úkraínu í vor.

Þessir embættismenn voru Jon Finer, aðstoðarþjóðaröryggisráðgjafi, Wendy Sherman, aðstoðarutanríkisráðherra, og Colin Kahl, aðstoðarvarnarmálaráðherra. Þau lögðu samkvæmt heimildum CNN til að Úkraínumenn reyndu losna úr þessum staðbundnu og mannskæðu átökum við Rússa og notast frekar við hraðskreiðar hersveitir til að gera árásir sem Rússar ættu ekki von á.

Vestrænir skrið- og bryndrekar sem Úkraínumenn hafa fengið og eru að fá eru til þess ætlaðir að hjálpa til við slíkar árásir.

Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði þar að auki í dag að hann teldi það hafa lítil áhrif á stríðið í Úkraínu ef Úkraínumenn hörfa frá Bakhmut. Rússar myndu vinna táknrænan sigur en ekki taktískan eða strategískan sigur.

Þá sagði Austin að Rússar væru að dæla lítið þjálfuðum og illa búnum hermönnum í Bakhmut en á sama tíma væru Úkraínumenn að byggja upp nýjar sveitir annars staðar í landinu og undirbúa sig fyrir árásir í vor.


Tengdar fréttir

Leiðtogi Wagner segir Bakhmut fallna

Yfirmaður rússnesku Wagner málaliðanna segir þá hafa umkringt borgina Bakhmut þar sem aðeins væru eftir börn og gamalmenni til að berjast gegn innrás þeirra. Yfirvöld í nágrannahéraðinu Kharkiv hafa síðan fyrirskipað fjölskyldum með börn og öðrum viðkvæmum hópum að yfirgefa borgina Kupiansk vegna látlausra loftárása Rússa.

Segjast enn verja Bakhmut

Embættismenn í Úkraínu segja úkraínska hermenn enn verja bæinn Bakhmut í Dónetskhéraði. Yfirmaður herafla Úkraínu í austri er sagður hafa heimsótt hermennina þar í dag. Hersveitir Rússa eru þó nærri því að umkringja bæinn og eru sagðar beina fallbyssum sínum að einu birgðaleið Úkraínumanna inn og út úr bænum.

Sprengdu brýr við Bakhmut og virðast ætla hörfa

Útlit er fyrir að úkraínskir hermenn ætli sér að hörfa eða séu þegar byrjaðir að hörfa frá Bakhmut í Dónetskhéraði. Rússar hafa gert umfangsmiklar árásir á bæinn um mánaða skeið og hafa nú nærri því umkringt hann.

Skilaboð Blinkens til Lavrovs voru einföld og skýr

Skuggi innrásar Rússa í Úkraínu skyggði á öll önnur málefni á fundi utanríkisráðherra 20 helstu iðnríkja heims á Indlandi í dag. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna skoraði á Rússa að láta af hernaði sínum og utanríkisráðherra Rússlands sagði aldrei hafa staðið á Rússum að semja við Bandaríkin um örlög Úkraínu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×