Tónlist

21 hljómsveit og listamenn tilnefnd til Kraumsverðlaunanna í ár

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá Kraumsverðlaununum 2022.
Frá Kraumsverðlaununum 2022. Aðsent

Tilkynnt var um tilnefningar til Kraumsverðlaunanna á Degi íslenskrar tónlistar,1. desember.

Kraumsverðlaunin, árleg plötuverðlaun Auroru velgerðarsjóð, verða afhent í fimmtánda sinn síðar í þessum mánuði fyrir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr ár árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika.

Meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa verðlaunin frá því þau voru fyrst veitt árið 2008 eru; Ásgeir, Cell7, Daníel Bjarnason, FM Belfast, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Lay Low, Mammút, Moses Hightower, Ólöf Arnalds, Retro Stefson og Sóley.

Margir með fyrstu breiðskífu

Kraumsverðlaunum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa hátt í áttatíu listamenn og hljómsveitir hlotið verðlaunin fyrir plötur sínar, flestir snemma á ferli sínum.

„Dómnefnd verðlaunanna í ár hefur nú valið þær plötur er hljóta tilnefningar til Kraumsverðlaunanna í ár, hinn eina sanna Kraumslista. Það sem einkennir tilnefningarnar í ár er sá fjöldi listamanna sem nú kemur fram á sjónarsviðið með sínum fyrstu breiðskífum. Einnig er sú mikla gróska er ríkir í rafskotinni popp-, pönk- og danstónlist ábrandi í tilnefningum ársins. Annars ræður fjölbreynin för og listinn inniheldur verk af ýmsum togar, meðal annars popp og þungarokk, fönk og reggí, jazz og house, tónverka- og tilraunatónlist,“ segir í tilkynningu um tilnefningarnar.n Það er Aurora velgerðarsjóður sem stendur að Kraumsverðlaununum.

Tilnefningar til Kraumsverðlaunanna 2022, Kraumslistann, má sjá hér fyrir neðan. 

  • Alfreð Drexler - Drexler’s Lab
  • Ari Árelíus - Hiatus Terræ
  • Ástþór Örn - A machine that runs on blood
  • Final Boss Type ZERO - 1000 Cuts
  • Fríða Dís Guðmundsdóttir - Lipstick On
  • Guðir hins nýja tíma - Ég er ekki pervert, ég er spæjari
  • gugusar - 12:48
  • Kraftgalli – Kúlomb
  • Kruklið - SAMHERJI: The musical
  • KUSK - Skvaldur
  • Kvelja - Andþrot
  • Kvikindi - Ungfrú Ísland
  • Lilja María Ásmundsdóttir & Ines Zinho - Internal Human
  • Oh Mama - Hamraborg
  • Óskar Kjartansson - Gork
  • Ronja - 00000
  • Siggi Olafsson (Berglind Ágústsdóttir) - Lost at war
  • Skurken - Dagur
  • Stirnir - Beautiful Summer, Big Stjarna
  • Ultraflex - Infinite Wellness
  • Una Torfa – Flækt og týnd og einmana

Kraumsverðlaunin 2022 eru valin af átta manna dómnefnd skipuð fólki með margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina skipa; Árni Matthíasson (formaður dómnefndar), Arnar Eggert Thoroddsen, Helga Þórey Jónsdóttir, María Lilja Þrastardóttir, Óli Dóri, Rósa Birgitta Ísfeld, Trausti Júlíusson og Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir.

Meðal Kraumsverðlaunhafa fyrri ára má nefna: Auður, ADHD, Agent Fresco, Amiina, Anna Þorvaldsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Ásgeir, Between Mountains, Bjarki, BSÍ, Cell7, Daníel Bjarnason, FM Belfast, GDRN, GKR, Grísalappalísa, Gunnar Andreas Kristinsson, Gyða Valtýsdóttir, Hafdís Bjarnadóttir, Helgi Hrafn Jónsson, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Hugi Guðmundsson, Ísafold kammersveit, JDFR, Kælan mikla, Lay Low, Mammút, Moses Hightower, Misþyrming, Ojba Rasta, Ólöf Arnalds, Retro Stefson, Samaris, Sin Fang, Skrattar, Sóley og fjölmargir fleiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×