Tónlist

„Konur mega bara taka meira pláss alls staðar í samfélaginu“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Álfrún Helga Örnólfsdóttir er meðlimur hljómsveitarinnar The Post Performance Blues Band og jafnframt leikstjóri kvikmyndarinnar BAND sem segir frá hljómsveitinni.
Álfrún Helga Örnólfsdóttir er meðlimur hljómsveitarinnar The Post Performance Blues Band og jafnframt leikstjóri kvikmyndarinnar BAND sem segir frá hljómsveitinni. Aðsend

Gjörningahljómsveitin „The Post Performance Blues Band“ gerir allt til þess að finna velgengni í nýju kvikmyndinni BAND. Blaðamaður tók púlsinn á leikstjóranum Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur en hún segir myndina sameina gjörningalist, tónlist, kvennakraft og kvikmyndalist í góðu flæði.

Sameiginlegur draumur

The Post Performance Blues Band (ThePPBB) varð til á blautu fimmtudagskvöldi í október árið 2016 í Gerðasafni í Kópavogi. Við vorum allar saman í meistaranámi í sviðslistum og áttum þann sameiginlega draum að vera í hljómsveit þannig að við ákváðum bara að kýla á það,“ segir Álfrún um upphaf sveitarinnar. 

Allar komu þær með eitthvað til borðsins en ásamt Álfrúnu eru það þær Saga Sigurðardóttir og Hrefna Lind Lárusdóttir sem mynda The PPBB.

„Ein mætti með nokkra takta á tölvu, önnur með fagurbleikan bassa, við réðum stílista og förðunardömu, hringdum svo í umboðsmann drauma okkar sem festist reyndar í umferð og náði bara lokalaginu. 

En það urðu til einhverjir töfrar þetta kvöld og hljómsveitin varð til. 

Síðan þá höfum við spilað á flestum tónleikastöðum borgarinnar, á tónleikahátíðinni Norðanpaunki, í listasöfnum, í London og á Álandseyjum.“

Fastar í jaðarsenunni

Fyrir þremur árum síðan var hljómsveitin orðin þreytt á því að komast ekki upp úr jaðartónlistarsenunni en þær langaði inn í meginstrauminn.

„Við hituðum upp fyrir Hatara og FM Belfast en einhvern veginn náðum við samt ekki að slá í gegn sem var pínu frústrerandi. 

Þannig að mér datt í hug að gera mynd um eitt ár í lífi bandsins þar sem við gerum allt til að finna velgengni, þetta var spurning um heimsyfirráð eða dauða.“

Hún segir myndina hafa gert góða hluti fyrir sveitina en hún hefur vakið athygli víða.

„Myndin hefur í rauninni náð því markmiði sem bandið náði ekki, að slá í gegn. Kannski af því að hún er miklu meira mainstream heldur en bandið. 

Það er svo geggjað að hún hefur komist inn á fullt af flottum kvikmyndahátíðum út um allan heim en vænst þykir mér samt um móttökurnar hér heima. Ég bjóst ekki við að það yrði grátið úr hlátri eins og gerðist á frumsýningunni og það gerir mig óendanlega glaða að finna að fólk tengir bæði við BAND tilfinningalega en skemmtir sér ekki síður.“

Bráðnauðsynleg hlátursköst og gleði listarinnar

Band er fyrst kvikmyndin sem Álfrún leikstýrir en hún hefur tekið þátt í ýmsum verkefnum í heimi leiklistarinnar.

„Mér líður núna eins og ég sé loksins komin heim í listinni. Öll reynslan sem ég hef sem leikkona og leikstjóri í leikhúsi nýtist mér 100% sem kvikmyndaleikstjóri.“

Hún segir samstarfið klárlega standa upp úr í þessu ferli.

„Saga Sigurðardóttir og Hrefna Lind Lárusdóttir úr ThePPBB eru svo hæfileikaríkar að mér líður eins og það sé hægt að búa til endalaust af list með þeim hvort sem það er tónlist, myndbönd, gjörningar, dansverk eða kvikmyndir. 

Og við fáum reglulega hláturskast sem er gott merki um að það sé neisti í samstarfinu nú fyrir utan hvað hlátursköst eru bráðnauðsynleg í lífinu.“

Fjölbreyttar tónlistarkonur

Þegar talið berst að konum í tónlistarheiminum spyr blaðamaður hvort Álfrúnu finnist konur fá nægilega athygli á sviði tónlistar hérlendis.

„Konur mega bara taka meira pláss alls staðar í samfélaginu,“ svarar Álfrún og bætir við: „Mér finnst margar konur í tónlistarsenunni fá verðskuldaða athygli núna, þær eru að gera ólíka músík og presentera sig á mismunandi hátt sem er virkilega gaman að fylgjast með. 

Það sem við í ThePPBB erum að skoða er svolítið hvaða væntingar eru gerðar til kvenna og snúa upp að það og leika okkur með kynjahlutverkin.“

Myndlistarheimurinn næstur

Það er ýmislegt á döfinni hjá The Post Performance Blues Band sem bíða spenntar eftir næstu áskorunum.

„Hrefna Lind, aðal textahöfundurinn og söngkonan okkar er með nýfætt barn. 

Við náðum samt að koma fram á Airwaves sem var ansi hetjulegt af henni en núna leyfum við henni að gefa brjóst næstu mánuði áður en við plönum næstu sigra. 

Okkur finnst svolítið spennandi að reyna næst að meika það í myndlistarheiminum. Tónlistarbransinn er svo mikill frumskógur, segir Álfrún og bætir að lokum við tilvitnun í Ragnar Kjartans úr myndinni BAND: 

„Það er miklu auðveldara að meika það í myndlist en tónlist. Maður þarf ekki að ná til krakkanna, bara til einhvers gamals fólks. Miklu minni pressa.“


Tengdar fréttir

Myndaveisla: BAND er hljómsveit sem er ekki hljómsveit

„Meiksaga hljómsveitar sem á líklega ekki eftir að meika það og er í raun ekki hljómsveit,“ var frumsýnd á dögunum. Það er heimildamyndinni BAND í leikstjórn Álfrúnar Örnólfsdóttur.

Gjörningar út úr þokunni á Listasafni Reykjavíkur

Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir gjörningalistahátíð um helgina þar sem Hafnarhúsið er undirlagt af gjörningum, uppákomum og umræðum um listformið á Gjörningaþoku. Blaðamaður ræddi við Kristínu Dagmar Jóhannesdóttur verkefnastjóra Hafnarhússins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×