Kjarnorkuvopn af þessu tagi eru hönnuð til að vera notuð á víglínum og voru þróuð á tímum Sovétríkjanna til að brjóta leið fyrir sovéska herinn í gegnum varnir Atlantshafsbandalagsins, andstætt stærri kjarnorkuvopnum sem hönnuð eru til að granda borgum og iðnaðarmiðstöðum.
Rússar eru taldir eiga um tvö þúsund lítil kjarnorkuvopn en þessi tegund vopna hefur aldrei verið notuð í átökum. Hægt er að skjóta þeim með hefðbundnum eldflaugum eða jafnvel með stórskotaliðsvopnum.
Bandaríkjamenn komust á snoðir um þessar umræður um miðjan október, samkvæmt heimildarmönnum New York Times, og leiddu þær til aukinna áhyggja en á sama tíma héldu Rússar því fram að Úkraínumenn ætluðu að sprengja frumstæða kjarnorkusprengju í Úkraínu.
Síðan þá hefur dregið verulega úr áhyggjum Bandaríkjamanna.
Hafa minni áhyggjur
Þrátt fyrir umræðuna segjast Bandaríkjamenn ekki hafa séð nein ummerki um það að Rússar hafi á einhverjum tímapunkti undirbúið notkun kjarnorkuvopna. Þá hringdu bandarískir embættismenn í rússneska og ræddu við þá en meðal annars töluðu varnarmálaráðherra ríkjanna tvisvar sinnum saman.
Þessi símtöl eru sögð hafa dregið úr áhyggjum Bandaríkjamanna.
Nýleg ræða Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, þar sem hann sagði ríkisstjórn sína ekki sjá nokkurn tilgang í því að nota kjarnorkuvopn í Úkraínu, hefur einnig leitt til minni áhyggja vestanhafs. Hann kom ekki að viðræðum leiðtoga hersins um notkun kjarnorkuvopna, svo vitað sé.
Hann er eini maðurinn í Rússlandi sem gæti tekið ákvörðun um notkun kjarnorkuvopna, samkvæmt NYT.
Evrópskur embættismaður sagði ræðu Pútíns vera í takt við fyrri hegðun Pútíns. Hann hefði oft aukið spennu viljandi, fylgst með viðbrögðum Vesturlanda og dregið svo í land.
Pútín sagði í áðurnefndri ræðu að innrásin í Úkraínu væri á áætlun og sagðist ekki hafa vanmetið Úkraínu.
Upprunalega reyndu Rússar að hernema Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, og ætluðu að ná allri Svartahafsströnd landsins á sitt vald. Það mistókst þó og síðan þá hafa Rússar dregið úr markmiðum sínum í nokkrum áföngum.
Nú eru hersveitir Rússlands víðast hvar í varnarstöðu á víglínunum í Úkraínu.
Búast við átökum næstu vikurnar
Úkraínumenn hafa á undanförnum vikum sótt fram gegn Rússum bæði í Kherson-héraði í suðri og í austurhluta Úkraínu.
Umfangsmikil herkvaðning í Rússlandi hefur gert rússneskum herforingjum kleift að senda tugi þúsunda manna á víglínurnar í Úkraínu. Þeir hermenn eru lítið þjálfaðir en geta verið notaðir til að fylla upp í göt í vörnum Rússa og hjálpað þeim að halda þeim svæðum sem Rússar hafa hernumið í Úkraínu.
Sérfræðingar búast við því að bardagar muni halda áfram næstu vikurnar en með vetrinum muni átökin minnka, þar til vorar á ný. Þangað til veturinn kemur er búist við hörðum átökum í Kherson-héraði en þar reyna Úkraínumenn að reka Rússa frá vesturbakka Dniproár.
Leppstjórar Rússlands í suðurhluta Úkraínu hafa tilkynnt að fleiri íbúar verði fluttir frá Kherson-héraði en þegar hefur verið gert. Umræddir íbúar búa við austurbakka árinnar en mögulegt er að Rússar ætli sér að láta hermenn búa í húsum fólksins í vetur.
Sjá einnig: 75 ára kona barin, skorin og nauðgað
Ráðamenn í Rússlandi lýstu því nýverið yfir að þeir myndu slíta sig frá kornsamkomulaginu svokallaða eftir að Úkraínumenn gerðu árás á nokkur skip í Svartahafsflota Rússlands og þar á meðal nýtt flaggskip Rússa í Svartahafi.
Úkraínumenn héldu þrátt fyrir það áfram að senda kornskip frá Odessa.

Þá tilkynntu Rússar óvænt í morgun að kornsamkomulagið stæði enn. Tyrkir og Sameinuðu þjóðirnar hafa komið að samkomulaginu, sem hefur gert Úkraínumönnum kleift að flytja mikið magn korns en samkomulagið er talið talið hafa átt stóran hlut í lækkandi matvælaverði á heimsvísu síðustu mánuði.
Sjá einnig: Rússar slíta sig frá kornsamkomulaginu vegna árásar við Krímskaga
Blaðamaður Wall Street Journal segir að Rússar hafi staðið frammi fyrir tveimur kostum vegna þess að Úkraínumenn, Tyrkir og SÞ hafi haldið áfram að flytja korn frá Odessa. Þeir kostir hafi verið að sökkva annað hvort farmskipum ríkja sem hafa ekki komið að átökunum í Úkraínu eða hætta við að slíta samkomulaginu. Hann segir Pútín hafa valið seinni kostinn.
Russia withdrew from the grain deal 4 days ago. The UN, Turkey and Ukraine called Moscow s bluff, continuing the ship convoys regardless. Faced with the choice of sinking third-country merchant ships or an embarrassing climbdown, Putin chose a climbdown. https://t.co/Wvwat7m00p
— Yaroslav Trofimov (@yarotrof) November 2, 2022