Tónlist

Taylor Swift heldur á tón­­leika­­ferða­lag

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Taylor tilkynnti dagsetningar Bandaríkjahluta tónleikaferðalagsins fyrr í dag.
Taylor tilkynnti dagsetningar Bandaríkjahluta tónleikaferðalagsins fyrr í dag. Getty/Terry Wyatt, Twitter/Taylor Swift

Söngkonan ástsæla, Taylor Swift tilkynnti aðdáendum sínum fyrr í dag að nýtt tónleikaferðalag hennar, „Eras Tour“ myndi hefjast í mars á næsta ári.

Þetta er fyrsta tónleikaferðalag Swift síðan árið 2018 þegar hún fór um víðan völl vegna plötu sinnar „Reputation.“ Dagsetningarnar sem kynntar hafa verið ná aðeins yfir Bandaríkin og virðist sá hluti tónleikaferðalagsins standa yfir frá mars fram í ágúst á næsta ári. Dagsetningar fyrir önnur lönd heimsins hafa ekki verið kynntar að svo staddar en þær eru sagða væntanlegar. Variety greinir frá þessu.

Frá því að hún hélt síðast á tónleikaferðalag hefur Swift gefið út 4 nýjar plötur, þær „Lover,“ „Folklore,“ „Evermore,“ og „Midnights“ ásamt því að hafa einnig gefið út tvær plötur í endurupptöku. Því er óhætt að segja að af nógu sé að taka fyrir Swift þegar hún kemur fram á ný.

Tónlistarfólkið sem mun hita upp fyrir hana á tónleikaferðalaginu er ekki af verri endanum en það eru Haim systur, Hljómsveitin Paramore og Phoebe Bridges ásamt fleirum.

Nýjasta plata Swift „Midnights“ hefur vakið mikla lukku eftir að hún kom út 21. október. Tónlistarkonan hefur til dæmis slegið met hvað varðar fjölda laga í topp tíu sætum Billboard listans en lög hennar af nýju plötunni skipa öll sætin. Þetta er í fyrsta sinn í 64 ára sögu listans sem þetta gerist.


Tengdar fréttir

Taylor Swift boðar tónleikaferðalag í bráð

Söngkonan Taylor Swift boðar tónleikaferðalag í náinni framtíð í viðtali Graham Norton. Hún gaf nýlega út plötuna Midnight sem sló öll met á Spotify og varð mest spilaða platan á einum degi. Myndband við eitt laganna á plötunni hefur þó verið umdeilt og talið ýta undir fitufordóma.

Taylor Swift skráir sig í sögu­bækurnar

Lög söngkonunnar Taylor Swift skipa öll tíu efstu sæti Billboard listans í Bandaríkjunum. Hún er fyrsti tónlistarmaðurinn í 64 ára sögu listans sem nær þessum árangri.

Mið­­nætur­­söngvar Taylor Swift opin­bera þrá­hugsanir og drauma

Ný plata Taylor Swift „Midnights“ birtist á helstu tónlistarveitum í nótt. Platan er stútfull af nýjum lögum, nánar til tekið tuttugu talsins. Platan einkennist af einskonar rafpoppi og er uppfull af einstakri textasmíð Swift sem aðdáendur og aðrir áhugasamir ættu að geta tengt við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×