Tónlist

Frumsýning: Gusgus og Æði strákarnir í eina sæng

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Æði strákarnir leika í nýju tónlistarmyndbandi Gusgus við lagið Hold me in your arms again.
Æði strákarnir leika í nýju tónlistarmyndbandi Gusgus við lagið Hold me in your arms again. Stikla úr myndbandi

Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi við glænýtt lag hljómsveitarinnar Gusgus. Lagið ber nafnið „Hold me in your arms again“ og hér skína Æði strákarnir skært við grípandi tóna en Jóhann Kristófer Stefánsson, leikstjóri Æði þáttanna, er einnig leikstjóri myndbandsins.

Hér má sjá myndbandið:

Blaðamaður tók púlsinn á Jóhanni Kristófer.

„Biggi Veira hafði samband við mig í sumar og sagði mér frá því að GusGus væru að fara gefa út smáskífu með remixi af gömlu Italo Disco lagi sem heitir Bolero. Hann langaði að gera myndband og verandi mikill aðdáandi Æði vildi hann fá þá í myndbandið og mig til að leikstýra því,“ segir Jóhann um upphaf samstarfsins.

Lagið kom út á labeli sem heitir The Weird & The Wonderful og auk Bigga Veiru syngur John Grant á því.

Dýrmæt lexía

Söguþráðurinn er með sanni áhugaverður:

„Í myndbandinu sjáum við þá Patta Jaime, Bassa Maraj og tvíburanna Gunnar og Sæmund í myndatöku hjá hinum geðþekka ljósmyndara Franz Aragosta, leikinn af Hákoni Jóhannessyni. Patti virðist eiga erfitt uppdráttar, finnst allt ómögulegt og kemur illa saman við ljósmyndarann sem og alla aðra á settinu. 

Óþægindi hans stigmagnast og þegar þau ná hámarki hverfur hann inn í aðra vídd þar sem Veiran sjálf kennir honum dýrmæta lexíu,“ 

segir Jóhann.

Patrekur Jaime hverfur í aðra vídd.Stikla úr myndbandi

Æði gengið augljóst val

Að sögn Bigga Veiru kom ekkert annað til greina en að fá Æði strákana í lið með sér:

Hold me in your arms again eða Bolero eins og frumútgáfan heitir, er fyrir mér gleðismellur fyrir ástina í sjálfum þér, þá er ég að meina þá ást sem þú gefur öðrum. 

Að elska óeigingjarnt krefst sjálfsástar sem er einungis möguleg ef sá lifir ekki í skömm. Sumir eru hataðir fyrir það sem þeir eru í kjarnanum. 

Æði gengið var augljóst fyrsta val í verkið.“

Patrekur Jaime og Biggi Veira í faðmlögum.Stikla úr myndbandi

Klassískur boðskapur

„Boðskapur myndbandsins er fyrir mér klassískur, að komast í gegnum ótta og inn í ástina,“ segir Jóhann og bætir við: „Þegar manneskjur leyfa sér að vera, sleppa takinu á kvíða og endalausum hugsunum byggðum á því sem áður hefur gengið, þá er allt hægt.“

Myndbandið var skotið og klippt af Tómasi Sturlusyni, um búninga og listræna stjórnun sá Júlía Gronvaldt og þær Kolbrún Anna Vignisdóttir og Elín Arna Ringsted sáu um förðun.


Tengdar fréttir

Raggi Kjartans kenndi Æði strákunum gjörningalist á typpinu

„Þetta var alveg með topp þremur steiktustu mómentum lífs míns. Að vera fokking öskrandi, ber að ofan, á meðan Patti er að mála með typpinu og það er einhver fimmtugur karlmaður hoppandi á typpinu í sófanum,“ segir Bassi Maraj um upplifun sína af listgjörning með Ragga Kjartans í síðasta þætti ÆÐI.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×