Tónlist

Endurreisn Beyoncé færir hana nær toppnum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Beyoncé nálgast toppsæti íslenska listans.
Beyoncé nálgast toppsæti íslenska listans. Getty/Kevin Winter/PW18

Beyoncé situr í öðru sæti íslenska listans þessa vikuna með nýjasta smellinn sinn Break My Soul. Lagið er að finna á nýútgefnu plötunni RENAISSANCE og hækkar sig um sex sæti á milli vikna.

Platan hefur að mestu leyti hlotið lof frá gagnrýnendum og verður spennandi að fylgjast með því hvort það endi á toppnum á komandi vikum. Nú á dögunum birti Beyoncé svokallað Cliquebait með brot úr tónlistarmyndbandi við lagið Break My Soul og bíða aðdáendur spenntir eftir lokaútkomunni. 

Breska poppstjarnan Harry Styles skipar fyrsta sæti listans að þessu sinni með lagið Late Night Talking sem er að finna á plötunni Harry’s House. Fyrri smellur plötunnar, As It Was, sat í nokkrar vikur á toppnum fyrr í sumar.

Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á FM957 frá klukkan 14:00-16:00.

Íslenski listinn í heild sinni:

Íslenski listinn á Spotify:


Tengdar fréttir

Ólga vegna nýrrar tón­listar Beyoncé

Beyoncé gaf út plötuna „Renaissance“ nú á dögunum en ekki hafa allir verið sáttir við lög plötunnar. Beyonce hefur neyðst til þess að breyta tveimur lögum á nýju plötunni og hefur Monica Lewinsky nú blandað sér í málið.

Beyoncé gefur út fyrsta lagið af væntanlegri plötu

Söngkonan Beyoncé gaf út fyrsta lagið af væntanlegri plötu sinni í gær og heitir lagið Break My Soul. Platan sem kemur út í lok júlí mun bera heitið Renaissance og verður fyrsta sóló platan hennar síðan 2016.

Sia er óstöðvandi

Söngkonan Sia er mætt á Íslenska listann á FM957 með lagið Unstoppable í nýjum búning tónlistarmannsins R3HAB. Sia hefur verið virk í tónlistarheiminum síðastliðna tvo áratugi og slær ekki slöku við, því má með sanni segja að hún sé óstöðvandi eins og lagið gefur til kynna.

Lizzo í fyrsta sæti: „Kominn tími til“

Söngkonan Lizzo trónir á toppi íslenska listans um þessar mundir með nýjasta lagið sitt About Damn Time. Lagið, sem hefur náð miklum vinsældum um allan heim, hefur hækkað sig upp listann á undanförnum vikum.

Harry Styles nær toppnum og stefnir á tónleikaferðalag

Harry Styles situr á toppi íslenska listans þessa vikuna með nýjasta lagið sitt As It Was. Lagið hefur verið á stöðugri siglingu upp á við undanfarnar vikur og hefur náð gríðarlegum vinsældum víða um heiminn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×