Tónlist

Nýtt lag frá Baggalút: „Extra sjálfhverfur og sjálfumglaður“

Elísabet Hanna skrifar
Baggalútur fær útrás fyrir áttublæti sínu í nýja laginu. Gamlir hljóðgervlar voru ræstir upp í Hljóðrita og helstu einkennishljóð 9. áratugarins fá að hljóma.
Baggalútur fær útrás fyrir áttublæti sínu í nýja laginu. Gamlir hljóðgervlar voru ræstir upp í Hljóðrita og helstu einkennishljóð 9. áratugarins fá að hljóma.

Hljómsveitin Baggalútur gefur frá sér glænýjan hásumarsmell sem fær hlustendur til þess að dansa og dilla sér á björtum sumarnóttum. Þeir eru að sjóða saman nýja plötu og eru strax byrjaðir að huga að jólagleðinni. 

Í texta lagsins lýsir ljóðmælandi hugljúfri og eldheitri ástarsögu og þá sérstaklega upptendraðri upplifun gagnkvæms ástaðila á þeim kynnum. Þeir Bragi Valdimar Skúlason og Guðmundur Pálsson sömdu lagið og textann. 

Blaðamaður hafði samband við Braga Valdimar Skúlason og fékk að heyra hvaðan innblásturinn að laginu hafi komið:

Sjálfhverfur og sjálfumglaður texti

„Okkur langaði til að búa til mjög hresst og sumarlegt lag, um leið og við gætum fengið smá útrás fyrir uppsafnað áttublæti okkar, enda er lagið undir umtalsverðum og greinilegum „eighties“ áhrifum. Við ræstum upp alla gömlu hljóðgervlana í Hljóðrita, fundum öll helstu einkennishljóð 9. áratugarins og vöktum meira að segja upp forláta trommuheila sem leiðir okkur staðfastlega gegnum lagið,“ segir hann. 

„Textinn er í raun frekar einfaldur, ástaróður nema hvað að þarna er ljóðmælandi í raun að lýsa upplifun „ásthafans“ af sambandinu. Í stað þess að segja „Ég man þegar ÉG sá þig fyrst“ segir hann „Ég man þegar ÞÚ sást mig fyrst“. Þetta gefur textanum dálítið skemmtilega vídd og verður í raun alveg extra sjálfhverfur og sjálfumglaður. Sem er stuð.“

Dansa upp á húsgögnum

„Við mælum sérstaklega með að hlustað sé á lagið í opnu rými, þannig að auðvelt sé að bresta í dans og jafnvel príla upp á nærliggjandi húsgögn. Eins er gott að hlusta í fjölmenni til að hámarka áhrifin og nýta þessar fáu mínútur sem lagið tekur í spilun sem allra best,“ segir hann. Samkvæmt Braga er ýmislegt framundan hjá Baggalút:

„Að njóta sumarsins, sjóða saman nokkur lög á nýja plötu og fara svo fljótlega að huga að næstu jólatörn. Það þarf að fara að finna eitthvað geggjað til að hafa á sviðinu, annað en okkur auðvitað“ segir Bragi.


Tengdar fréttir

„Það er ekki bannað að hafa gaman“

Bagga­lútur harmar mjög ef að sótt­varna­brot voru framin á tón­leikum þeirra í gær eins og lög­reglan greindi frá í dag. Hljóm­sveitin hafi látið al­manna­varnir taka út fyrir­komu­lag viðburðarins í síðustu viku til að passa að allt væri í sam­ræmi við gildandi reglur og eina brotið sem með­limir hljóm­sveitarinnar hafi tekið eftir í gær hafi verið grímu­leysi margra gesta, sem er ef­laust vanda­mál við flesta við­burði í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×