Tónlist

„Er í fyrsta skipti að semja lög út frá hjartanu en ekki bara að syngja um Dicks“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Ingi Bauer er í fyrsta skipti að semja lög frá hjartanu.
Ingi Bauer er í fyrsta skipti að semja lög frá hjartanu. Aðsend

Tónlistarmaðurinn Ingi Bauer var að gefa út lagið HUGSANIR en þetta er fyrsta lag af væntanlegri plötu frá honum sem mun bera nafnið ÁST.

Ingi Bauer hefur komið víða að í íslenska tónlistarheiminum og er hvað þekktastur fyrir smellinn Upp til hópa með Herra Hnetusmjöri og Dicks með Séra Bjössa.

„Þessi plata er frekar ólík því en það sem ég hef verið að gefa út. Ég er í fyrsta skipti að semja lög út frá hjartanu en ekki bara að syngja um Dicks. Ég fór nefnilega einn í húsbíl í kringum landið eftir smá erfiða tíma og sambandsslit og ákvað að byrja að semja út frá hjartanu.“

Hann segir að persónulegar breytingar í hans lífi endurspegli nýju tónlistina.

„Ég er eiginlega að opna hjartað mitt alveg upp á gátt fyrir alla til að heyra svo að ég er bæði stressaður og spenntur. Það er alveg skrítin pæling að vera einn einhvers staðar að semja um það sem maður hefur lent í og erfiðar tilfinningar og svo bara setur þú það á Spotify og allir geta heyrt.“

Lagið HUGSANIR varð hins vegar til heima hjá Inga á fallegum rigningardegi eftir að ferðinni lauk.

„Lagið var reyndar fyrst high school rokk lag en ég breytti því svo seinna. Aldrei að vita nema maður gefi rokk útgáfuna líka út einhvern tíma,“ segir Ingi glettinn að lokum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×