Tónlist

Stranger Things setur Kate Bush aftur á topplistann með 37 ára gamalt lag

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Lagið Running Up That Hill með söngkonunni Kate Bush hleypur upp hæðirnar þessa dagana. 
Lagið Running Up That Hill með söngkonunni Kate Bush hleypur upp hæðirnar þessa dagana.  Getty

Eftir að lagið Running Up That Hill með Kate Bush var notað í nýjustu þáttum Stranger Things hefur lagið heldur betur fengið endurnýjun lífdaga og er nú á topp tíu listum í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar.

Hleypur upp hæðirnar eftir Stranger Things

Söngkonan, sem er mikill Stranger Things aðdáandi, segir þættina hafa gefið laginu nýtt líf og að hún sé afar þakklát öllum þeim sem hafi stutt lagið. Sjálf geti hún vart beðið eftir að sjá seinni hluta þáttaraðarinnar í júlí. 

Fyrri hluti fjórðu þáttaraðar Stranger Things var gefinn út á Netflix í síðustu viku. Lagið spilar lykilhlutverk sem uppáhaldslag persónunar Max sem leikin er af Sadie Sink. Það hefur náð sérstaklega miklum vinsældum hjá Z-kynslóðinni, sem eru einstaklingar fæddir á árunum 1997-2012. 

Síðan lagið kom fyrir í þættinum í síðustu viku hefur það klifrað upp lista út um allar grundir og er í dag meðal annars mest streymda lagið á Spotify í Bretlandi, Bandaríkjunum, hér á Íslandi og víðar. 

Hér fyrir neðan má sjá lagið í Stranger Things. Höskuldarviðvörun: Þeir sem hafa ekki enn séð Stranger Things 4 en ætla sér að gera það ættu að sleppa því að horfa á myndbandið.  

Fyrsta konan til að ná fyrsta sæti á breska listanum 

Lagið komst áður hæst númer þrjú á breska vinsældarlistanum þegar það var upphaflega gefið út árið 1985 og er eitt af vinsælustu lögum söngkonunnar. Lagið er af plötunni Hounds of Love sem var hennar fimmta, og að mati gagnrýnanda, besta plata.

Árið 1978 var Kate Bush fyrsta konan, með frumsamið lag, til að ná inn í 1. sæti á breska vinsældarlistann en lagið, Wuthering Heights, hélt 1. sæti listans í fjórar vikur samfleytt. 

Tónlist áttunda áratugarins er áberandi í nýustu seríu Stranger Things og verður spennandi að sjá hvaða lög eða lag munu setja mark sitt á lokaþættina sem væntanlegir eru á Netflix þann 1. júlí. 

Hér fyrir neðan má sjá myndband Kate Bush við slagarann lífsseiga, Running Up That Hill, sem svo sannarlega hleypur upp allar hæðir þessa dagana. 


Tengdar fréttir

Kate Bush þakkar aðdáendum

Kate Bush segir að endurkomutónleikar hennar í London hafi verið ein "ótrúlegasta upplifun“ lífs síns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×