Tónlist

Úkraínsku stjörnurnar í Go_A mæta í Söngvakeppnina

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Kateryna Pavlenko, Taras Shevchenko, Ihor Didenchuck og Ivan Hryhoriak úr Go_A heilluðu marga upp úr skónum í fyrra. 
Kateryna Pavlenko, Taras Shevchenko, Ihor Didenchuck og Ivan Hryhoriak úr Go_A heilluðu marga upp úr skónum í fyrra.  EPA/Sander Koning

Úkraínska hljómsveitin Go_A sem dáleiddi heimsbyggðina þegar Eurovision fór fram í Hollandi í fyrra mæta til að trylla lýðinn þegar úrslit Söngvakeppninnar fara fram þann 12. mars.

Elektróbandið lenti í fimmta sæti í keppninni í fyrra með lagið Shum en óhætt er að segja að lagið hafi verið dáleiðandi á ákveðinn hátt. Íslenskir áhorfendur gáfu laginu átta stig í símakosningu.

Sú hefð hefur skapast undanfarin ár að Eurovision stjörnur spili á úrslitunum hér á landi. Árið 2020 mættu til að mynda norsku stjörnurnar úr Keiino en síðastliðinn ár hafa meðal annars Eleni Foureira, Måns Zelmerlöw, Loreen og Sandra Kim glatt íslenska áhorfendur á sviðinu.

Að því er kemur fram í tilkynningu um málið verða áhorfendur á öllum viðburðum í ljósi rýmkaðra samkomutakmarkana og hefst miðasala fyrir viðburðina fjóra, það er að segja undanúrslitin tvö, generalprufuna og úrslitakvöldið, á hádegi 16. febrúar.

Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri keppninnar, segir þau hlakka til að fylla Gufunesið, þar sem keppnin fer fram, af fólki. Gert er ráð fyrir að um þúsund manns geti komið saman á hverjum viðburði.

„Það hefur myndast gríðarleg stemning á keppnum síðustu ára og það er ekki síst vegna þeirra sem mæta á staðinn og njóta með vinum og fjölskyldu,“ segir Rúnar en Gunni og Felix hita upp á öllum viðburðum auk þess sem skemmtiatriði verða. „Þetta verður ótrúlega gaman,“ segir Rúnar.


Tengdar fréttir

Stað­festir ekkert um lekann: „Opnar maður ekki jóla­pakkann á að­fanga­dag?“

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, sjónvarpskona og einn skipuleggjenda Söngvakeppni Sjónvarpsins, hvetur fólk til þess að fylgjast með sérstökum kynningarþætti fyrir keppnina í kvöld, þar sem til stendur að afhjúpa þau lög sem keppast um að verða framlag Íslands til Eurovision í ár. Fyrr í dag var greint frá því að lögunum í keppninni hefði verið lekið.

MIKA kynnir Eurovision í ár

Breski söngvarinn MIKA sem gerði garðinn frægan með laginu Grace Kelly verður einn af kynnum Eurovision hátíðarinnar 2022. Ásamt honum verða ítalska söngkonan Laura Pausini og ítalski þáttastjórnandinn Alessandro Cattelan kynnar en keppnin fer fram á Ítalíu.

Ísland mun keppa í fyrri undankeppni Eurovision

Það er komið í ljós að Ísland muni taka þátt í fyrri undankeppni Eurovision þann 10. maí í Tórínó. Atriði Íslands mun stíga á svið seinnihluta kvöldsins og alls keppa átján lönd í fyrri undankeppninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×