Tónlist

FLOTT sendir frá sér nýtt lag þar sem húmor og alvara lífsins mætast

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hljómsveitin FLOTT sendir frá sér lagið FLOTT á morgun.
Hljómsveitin FLOTT sendir frá sér lagið FLOTT á morgun. Aðsend

Stelpusveitin FLOTT sendir frá sér glænýjan smell á morgun, föstudag, og þurftu þær ekki að leita langt eftir titli á lagið sem heitir einfaldlega FLOTT, í höfuðið á hljómsveitinni.

FLOTT kom inn í íslenska tónlistarheiminn á síðari hluta ársins 2020 og hefur vakið athygli fyrir grípandi textasmíði og tóna sem auðvelt er að dilla sér við. Má þar nefna lög á borð við Segðu það bara, Mér er drull og að sjálfsögðu Áramótaskaupslagið Ef þú hugsar eins og ég. Blaðamaður heyrði í Vigdísi Hafliðadóttur, FLOTTu söngkonu hljómsveitarinnar og fékk að heyra söguna á bak við lagið.

Tækifæri sem varð spark í rassinn

„Lagið FLOTT varð til í sumar í tímapressu. Okkur bauðst að hita upp fyrir Vök í Gamla bíó sem okkur fannst ótrúlega spennandi en verandi ný hljómsveit sem hafði þá gefið út þrjú lög, þá áttum við ekki mikið efni,“ segir Vigdís og bætir við: „Við ákváðum að nota þetta tækifæri sem spark í rassinn. Ragnhildur hafði gert þetta beat í lagahöfunda búðum sem hún var í fyrr um árið hjá NordicLA, ég skellti mér í að semja textann og laglínuna og Eyrún samdi þetta geggjaða riff sem gerir mjög mikið fyrir lagið og hefur haldist út framleiðsluferlið.“

Lagið kemur á streymisveitur á miðnætti í kvöld en þó hafa einhverjir nú þegar heyrt lagið, bæði í lifandi flutningi og svo fór viðlag lagsins á smá flug á samfélagsmiðlinum TikTok.

„Þar voru einhver sem hvöttu okkur til að gefa lagið út, en önnur sem báðu okkur um að gera það ekki. 

Ég verð bara að biðja þennan seinni hóp afsökunar og vona að lagið geri þeim ekki lífið leitt.“

Húmorinn auðveldar tilveruna

Hugmyndin að titli lagsins kom til vegna húmorsins en eins svo oft áður fylgir gríninu alvara.

„Ég ákvað að lagið ætti að heita FLOTT aðallega vegna þess að mér fannst það fyndið, auðvelt fyrir fólk að muna og viðlagið var það fyrsta sem varð til. Svo gat þessi grín hugmynd af sér texta sem er bara alls ekkert grín, heldur nokkuð raunsæ lýsing á tilfinningu og andlegu ástandi sem eflaust margir kannast við – sérstaklega þegar það er dimmt og kalt eins og núna.

En ég reyni samt alltaf að nálgast það sem ég geri af einhverjum húmor, það hefur gert tilveru mína auðveldari allavega.

Annars vil ég almennt segja lítið um textana og leyfa fólki að túlka þá sjálft.“

Samningur og tilnefning

Það er mikið um að vera hjá þessari öflugu stelpuhljómsveit og ásamt því að hafa skrifað undir spennandi samning fengu þær tilnefningu á Hlustendaverðlaununum í ár.

„Við erum á fullu að semja og vorum að skrifa undir samning hjá Sony Music Iceland sem er mjög spennandi og mikil viðurkenning. Það verður gaman að sjá hvert það leiðir okkur. Við erum líka tilnefndar sem nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. Kannski vinnum við þau og það væri frábært og flott, kannski vinnur einhver annar og það er bara flott líka,“ segir Vigdís að lokum.


Tengdar fréttir

FLOTT skrifar undir hjá Sony: „Við erum bara í skýjunum“

Hljómsveitin FLOTT hefur skrifað undir samning hjá útgáfufyrirtækinu Sony í Danmörku. Vigdís Hafliðadóttir, söngkona hljómsveitarinnar, segir hljómsveitarmeðlimi í skýjunum enda sé um mikla viðurkenningu að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×