Bíó og sjónvarp

Neist­ar mill­i Leð­ur­blök­u­manns­ins og Katt­a­kon­unn­ar í nýrr­i stikl­u

Samúel Karl Ólason skrifar
BatCat

Það neistar milli Leðurblökumannsins og Kattakonunnar í nýrri stiklu kvikmyndarinnar The Batman. Stiklan, sem ber titilinn Leðurblakan og kötturinn, fjallar að mestu um samband þeirra tveggja og baráttu Batman við The Riddler.

Þau virðast taka höndum saman gegn óvinum Gotham og þar á meðal The Riddler, sem leikur íbúa borgarinnar grátt, veit hver Batman er og varpar ljósi á dularfullt leyndarmál Gotham, miðað við það sem fram kemur í stiklunni.

Myndin státar af þeim Robert Pattenson (Batman), Zoë Kravitz (Catwoman), Andy Serkis (Alfred), Colin Farrell (Oswald Cobblepot), Paul Dano (The Riddler) og Jeffrey Wright (James Gordon), auk fjölmargra annarra leikara.

The Batman verður frumsýnd í mars.

Kvikmyndin átti upprunalega að tilheyra kvikmyndasöguheimi DC Comics og Warner Bros en hætt var við það eftir að Ben Affleck hætti við að leikstýra myndinni og leika í henni. Á sama tíma voru forsvarsmenn Warner Bros að endurskoða hugmyndir sínar um að byggja sameiginlegan söguheim fyrir ofurhetjur þeirra, sem þeir höfðu hvort eð er gert illa ef satt skal segja.

Því var ákveðið að gera sérstaka og eina mynd um Leðurblökumanninn sem gerist jafnvel í dekkri heimi en gengur og gerist í kvikmyndunum um auðjöfurinn Bruce Wayne.


Tengdar fréttir

Covid-smit hægir á Leðurblökumanninum

Robert Pattinson, aðalleikarinn í væntanlegri kvikmynd um Leðurblökumanninn, er sagður smitaður af Covid-19. Framleiðsla á myndinni hefur verið stöðvuð tímabundið af þeim sökum en tökur voru nýhafnar.

Það besta af DC FanDome: Wonder Woman, Batman og Snyder

WarnerMedia og DC Entertainment sýndu fjölda nýrra stikla og annað efni á DC FanDome. Þar er um að ræða nokkurs konar net-ráðstefnu/hátíð þar sem fyrirtækin sýndu það sem er í vændum frá söguheimi DC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×