Innlent

Skúli Tómas færður til í starfi þar til skýrari mynd fæst á at­burðina á HSS

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Læknirinn hefur verið í endurmenntun og þjálfun á Landspítala eftir að hann fékk takmarkað læknaleyfi hjá embætti landlæknis. Hann hafði missti leyfið í kjölfar atburðanna á HSS. 
Læknirinn hefur verið í endurmenntun og þjálfun á Landspítala eftir að hann fékk takmarkað læknaleyfi hjá embætti landlæknis. Hann hafði missti leyfið í kjölfar atburðanna á HSS.  Vísir/Vilhelm

Skúli Tómas Gunnlaugsson, læknir sem er til rannsóknar hjá lögreglu vegna andláta sex sjúklinga og mála fimm annarra á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, hefur verið færður til í starfi innan Landspítalans. 

Þetta segir í yfirlýsingu frá Landspítalanum. Skúli hefur undanfarið verið í endurmenntun og þjálfun á Landspítalanum eftir að embætti landlæknis gaf honum takmarkað lækningaleyfi eftir að hann missti það vegna atburða sem áttu sér stað á HSS. Segir í yfirlýsingu Landspítalans að hann verði ekki í sjúklingasamskiptum á meðan skýrari mynd fæst af þeirri atburðarás sem nú er til rannsóknar hjá lögreglu. 

Með þessu sé ekki verið að leggja mat á sekt eða sakleysi í málinu en forstjóra og stjórnendum spítalans beri að standa vörð um það traust sem til spítalans sé borið og verði sjúklingar því ætið að njóta vafans. 

Eins og áður segir er aðkoma Skúla og annarra starfsmanna HSS að málum ellefu sjúklinga til skoðunar hjá lögreglu. Sex sjúklinganna létust á meðan þeir dvöldu á HSS. 

Beggi Dan, sonur eins sjúklinganna sem lést í umsjá Skúla, lýsti lokadögum móður sinnar á HSS í skoðanapistli sem birtist á Vísi í lok nóvembermánaðar. Lýsti hann því til að mynda að móðir hans hafi verið lögð inn í hvíldarinnlögn á HSS en hafi verið sett á lífslokameðferð samdægurs án samráðs við aðstandendur. Þar með hafi henni ekki verið hjúkrað á viðeigandi hátt, hún þjáðst af legusárum og sýkingum og hafi hún til að mynda fengið drep í annað eyrað sem endaði þannig að hluti af því datt af. 

Beggi lýsti yfir vantrausti á stjórnendur Landspítala í greininni vegna þess að Skúli fengi að starfa þar. Taldi hann ljóst að stjórnendur spítalans væru ekki meðvitaðir um þá meðhöndlun sem Skúli veitti móður hans. 

„Forsenda farsæls starfs á Landspítala sem og annars staðar í heilbrigðisþjónustu á Íslandi er að almennt traust sé borið til starfseminnar. Þá er í lögum um réttindi sjúklinga lögð rík áhersla á mikilvægi trausts í samskiptum heilbrigðisfólks og sjúklinga,“ segir í yfirlýsingu Landspítala.

Yfirlýsingu Landspítalans má lesa í heild sinni hér að neðan: 

Vegna læknis með tímabundið og takmarkað starfsleyfi á Landspítala

Forsenda farsæls starfs á Landspítala sem og annars staðar í heilbrigðisþjónustu á Íslandi er að almennt traust sé borið til starfseminnar. Þá er í lögum um réttindi sjúklinga lögð rík áhersla á mikilvægi trausts í samskiptum heilbrigðisfólks og sjúklinga.

Undanfarið hefur á Landspítala starfað læknir með takmarkað lækningaleyfi frá embætti landlæknis til endurmenntunar og þjálfunar. Læknirinn var ráðinn til endurmenntunar og þjálfunar á Landspítala í kjölfar sviptingar lækningaleyfis vegna atburða sem áttu sér stað þegar viðkomandi var læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Settur forstjóri Landspítala hefur í ljósi þessa fært umræddan lækni til í starfi og mun hann ekki vera í sjúklingasamskiptum meðan skýrari mynd fæst af þeirri atburðarrás sem nú er til rannsóknar hjá lögreglu. Með þessu er ekki lagt mat á sekt eða sakleysi í málinu, en forstjóra og stjórnendum spítalans ber að standa vörð um það traust sem til spítalans er borið og verða sjúklingar ætíð að njóta vafans.


Tengdar fréttir

Lífs­loka­læknirinn og meintur mis­skilningur

Fyrrum yfirlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sætir nú lögreglurannsókn. Hann er grunaður um stórkostleg brot í starfi, m.a. að vera valdur að dauða nokkurra sjúklinga sinna.

Fleiri kærur í undir­­búningi á hendur Skúla Tómasi

Fleiri kærur eru í undirbúningi á hendur lækni á Landspítalanum, sem grunaður er um að hafa borið ábyrgð á dauðsföllum fjölda sjúklinga sinna, að sögn lögmanns. Ellefu mál eru nú þegar til rannsóknar hjá lögreglu. Heilbrigðisráðherra segist ekki ætla að leggja mat á það hvort eðlilegt sé að læknirinn sé enn við störf á spítalanum. Landspítalinn hyggst senda frá sér yfirlýsingu eftir helgi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×