Tónlist

DJ Muscle boy og Jóhanna Guðrún saman á toppi Íslenska listans

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa
Lagið Boom frá DJ Muscle boy og Jóhönnu Guðrúnu er á toppi Íslenska listans þessa vikuna.
Lagið Boom frá DJ Muscle boy og Jóhönnu Guðrúnu er á toppi Íslenska listans þessa vikuna. Samsett

Íslenski listinn fór skemmtilega af stað í dag með heitustu lögum okkar Íslendinga. Ég ákvað samhliða listanum að fara í spennandi ferðalag um tónlistarsöguna, í svokallaða tónlistar-tímavél, og skoða hvaða lög sátu á toppnum fyrir 10 og 20 árum síðan. Skoðum það aðeins!

2011 var mikið gróskuár í popp tónlist og ómuðu ódauðlegir smellir á dansgólfum allra heitustu skemmtistaðanna. Í nóvember mánuði var eitt ákveðið lag sem sló algjörlega í gegn um allan heim og þar á meðal hér á Íslandi en þetta lag er ennþá gífurlega vinsælt og mun eflaust vera það um ókomna tíð. Þegar skoski plötusnúðurinn Calvin Harris og súperstjarnan Rihanna sameinuðu krafta sína varð nefnilega lagið We Found Love til - og allt trylltist! We Found Love sat á toppnum í ótal margar vikur árið 2011.

Dóra Júlía sér um Íslenska listann á FM957 alla laugardaga frá 14 til 16.

Í nóvember 2001, fyrir 20 árum síðan, var það svo engin önnur en Mary J. Blidge, ofurtöffari og legend, sem sat í fyrsta sæti á bandaríska Billboard Hot 100 listanum með lagið Family Affair. Ég var 9 ára á þessum tíma en man vel eftir að hafa dansað við þetta lag inn í herbergi hjá mér og fannst það sko mega cool. Family Affair er líka ódauðlegur smellur og svínvirkar á dansgólfinu enn þann dag í dag.

Við fórum einnig yfir afmælisbarn helgarinnar sem er engin önnur en Carly Rae Jepsen og fagnar hún 36 árum. Jepsen sló algjörlega í gegn árið 2012 með laginu Call Me Maybe og hafa sumir kallað hana one-hit-wonder þrátt fyrir að hún hafi gefið út ýmis önnur lög. Við bíðum spennt eftir öflugu come-backi og óskum henni innilega til hamingju með afmælið.

Það er mjög skemmtilegt að tengja gamla hittara við nýjustu og heitustu lögin í dag. Gaman að sjá hvað hefur breyst - og hvað ekki - en tónlistin getur svo sannarlega alltaf verið að koma manni í gott skap, bæði gömul og glæný. Íslenskt tónlistarfólk átti mörg lög á lista í þessari viku en má meðal annars nefna að Birnir var með þrjú lög og Aron Can tvö. Adele var svo að gefa út nýja plötu þannig að það verður spennandi að sjá hvað gerist næstu helgi. Hér fyrir neðan er svo listinn í heild sinni og ég hlakka til að vera með ykkur í góðum gír næsta laugardag! 

Íslenski listinn vikuna 13. til 20. nóvember 

  1. DJ Muscleboy Ft. Yohanna - Boom
  2. Adele - Easy On Me
  3. Aron Can - Blindar Götur
  4. Ed Sheeran - Shivers
  5. Elton John Ft. Dua Lipa - Cold Heart (PNAU remix)
  6. Birnir Ft. Aron Can - F.C.K
  7. Shouse - Love Tonight
  8. Birnir - Baugar
  9. Justin Bieber - Ghost
  10. Ed Sheeran - Visiting Hours
  11. Lil Nas X Ft. Jack Harlow - Industry Baby
  12. Jón Jónsson - Fyrirfram
  13. Clubdub ft. Mambakid- Frikki Dór 2012
  14. Coldplay Ft. BTS - My Universe
  15. Joel Corry Ft. Charlie XCX - Out Out
  16. Karen Ósk Ft. Friðrik Dór - Haustið
  17. Becky Hill Ft. Topic - My Heart Goes
  18. Lil Nas X - Thats What I Want
  19. Hugo - Farinn
  20. Camila Cabello - Don’t Go Yet

Tengdar fréttir

Dóra Júlía tekur við Íslenska listanum á FM957

Plötusnúðurinn og fjölmiðlakonan Dóra Júlía Agnarsdóttir hefur verið ráðin til Sýnar og fer hún af stað með sinn fyrsta þátt af Íslenska listanum á FM957 á laugardag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×