Var að horfa á konuna en ekki köttinn Vésteinn Örn Pétursson skrifar 24. október 2021 13:30 „Á meðan ég var að föndra við hjólið mitt og tefja tímann áður en ég lagði af stað í Melabúðina þá hugsaði ég hvernig ég gæti vakið athygli þína eitt augnablik,“ skrifar Þröstur meðal annars í færslunni. Vísir/Samsett Færsla sem ljósmyndarinn Þröstur Guðlaugsson birti í Facebook-hópi Vesturbæinga hefur vægast sagt fengið mikil og góð viðbrögð. Færslunni er beint að konu sem hann átti í stuttum orðaskiptum við fyrir utan Kaffi vest í gær. Hann segir markmiðið með færslunni ekki hafa verið að hafa uppi á konunni, en í ljósi viðbragðanna gæti þó verið gaman að komast að því hver hún er. Færsla Þrastar er svohljóðandi: Til þín sem komst inn á Kaffivest áðan, horfðir yfir salinn í leit að sæti og fannst þú ekki finna það, fékkst þér vatnssopna horfðir aftur beint í augu mér og gekkst svo út. Það var laust sæti en kannski varstu svona hógvær, og þegar ég fór út nokkru seinna sá ég að þú hafðir fengið þér sæti á bekknum fyrir utan kaffihúsið og gulur köttur hreiðraði um sig í kjöltu þinni. Þú horfðir aftur beint í augu mín og brostir. Á meðan ég var að föndra við hjólið mitt og tefja tímann áður en ég lagði af stað í Melabúðina þá hugsaði ég hvernig ég gæti vakið athygli þína eitt augnablik svo ég stoppaði fyrir framan þig á bekknum og sagði “falleg” eða eitthvað svoleiðis held ég, þú leist upp og síðan á köttinn og sagðir “já er hún ekki kósý”.......... Ég vildi bara koma því til skila að ég átti ekki við köttinn heldur þig. Ps. Eftir að hafa keypt mér hálfann kjúkkling og Pepsímax í Melabúðinni og var á leiðinni heim þá ásótti mig hugsunin um að skrifa um þetta atvik en ég veit ekkert af hverju ég set þessar hugsasnir fyrir almanna sjónir hérna en vanalega fara smásögurnar mínar beina leið í pappakassann hjá barnafötunum uppi á háalofti. ps.ps þetta bréf er ekki kostað af Melabúðinni, PepsiMax eða Kaffivest. Kveðja úr Vesturbænum. Hissa á miklum viðbrögðum Vesturbæinga Þegar þetta er skrifað hafa yfir átta hundruð meðlimir hópsins brugðist við færslunni, langflestir með like-putta eða hjarta. Verður það að teljast til marks um að færslan hafi vakið nokkra lukku í hópnum, hvar oftar en ekki er lýst eftir stolnum hjólum, týndum köttum eða athygli vakin á því sem ungdómurinn í hverfinu er að bardúsa hverju sinni. Í samtali við Vísi segist Þröstur einfaldlega hafa verið í góðu skapi í gær og ákveðið að setja færsluna inn. Hann skrifi sjálfur af og til lýsingar á hversdagsleikanum, sem hann leggi þó ekki í vana sinn að deila með öðrum. Hann bjóst alls ekki við að viðbrögðin yrðu jafn mikil og raun bar vitni. „Bara alls ekki. Ég er búinn að sitja á mér að svara þessu öllu,“ segir Þröstur. Fjöldi meðlima í hópnum hefur lýst yfir áhuga á að fá að fylgjast með framvindunni. Ekki hugsunin að hafa uppi á konunni En hefur konan gefið sig fram og hefur Þröstur yfir höfuð áhuga á því að vita hver konan er? „Það var nú ekki hugsunin í upphafi, að leita eftir einhverju svari. En það væri voðalega gaman svona í þessari dramatík,“ segir Þröstur og vísar þar til þeirrar miklu athygli sem pósturinn hefur fengið. „Ég held að hún sé nú jafnvel búin að læka þetta, en það er erfitt að sjá á Facebook.“ Þröstur segir af viðbrögðunum ljóst að fólk hafi áhuga á sögum sem þessum úr hversdagsleikanum. „Sérstaklega á þessum tímum þegar fólk er að skríða út úr holunni eftir Covid, farið að horfast í augu og kynnast náunganum upp á nýtt. Reykjavík Ástin og lífið Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Bíó og sjónvarp Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? Áskorun Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Lífið Fleiri fréttir Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Sjá meira
Hann segir markmiðið með færslunni ekki hafa verið að hafa uppi á konunni, en í ljósi viðbragðanna gæti þó verið gaman að komast að því hver hún er. Færsla Þrastar er svohljóðandi: Til þín sem komst inn á Kaffivest áðan, horfðir yfir salinn í leit að sæti og fannst þú ekki finna það, fékkst þér vatnssopna horfðir aftur beint í augu mér og gekkst svo út. Það var laust sæti en kannski varstu svona hógvær, og þegar ég fór út nokkru seinna sá ég að þú hafðir fengið þér sæti á bekknum fyrir utan kaffihúsið og gulur köttur hreiðraði um sig í kjöltu þinni. Þú horfðir aftur beint í augu mín og brostir. Á meðan ég var að föndra við hjólið mitt og tefja tímann áður en ég lagði af stað í Melabúðina þá hugsaði ég hvernig ég gæti vakið athygli þína eitt augnablik svo ég stoppaði fyrir framan þig á bekknum og sagði “falleg” eða eitthvað svoleiðis held ég, þú leist upp og síðan á köttinn og sagðir “já er hún ekki kósý”.......... Ég vildi bara koma því til skila að ég átti ekki við köttinn heldur þig. Ps. Eftir að hafa keypt mér hálfann kjúkkling og Pepsímax í Melabúðinni og var á leiðinni heim þá ásótti mig hugsunin um að skrifa um þetta atvik en ég veit ekkert af hverju ég set þessar hugsasnir fyrir almanna sjónir hérna en vanalega fara smásögurnar mínar beina leið í pappakassann hjá barnafötunum uppi á háalofti. ps.ps þetta bréf er ekki kostað af Melabúðinni, PepsiMax eða Kaffivest. Kveðja úr Vesturbænum. Hissa á miklum viðbrögðum Vesturbæinga Þegar þetta er skrifað hafa yfir átta hundruð meðlimir hópsins brugðist við færslunni, langflestir með like-putta eða hjarta. Verður það að teljast til marks um að færslan hafi vakið nokkra lukku í hópnum, hvar oftar en ekki er lýst eftir stolnum hjólum, týndum köttum eða athygli vakin á því sem ungdómurinn í hverfinu er að bardúsa hverju sinni. Í samtali við Vísi segist Þröstur einfaldlega hafa verið í góðu skapi í gær og ákveðið að setja færsluna inn. Hann skrifi sjálfur af og til lýsingar á hversdagsleikanum, sem hann leggi þó ekki í vana sinn að deila með öðrum. Hann bjóst alls ekki við að viðbrögðin yrðu jafn mikil og raun bar vitni. „Bara alls ekki. Ég er búinn að sitja á mér að svara þessu öllu,“ segir Þröstur. Fjöldi meðlima í hópnum hefur lýst yfir áhuga á að fá að fylgjast með framvindunni. Ekki hugsunin að hafa uppi á konunni En hefur konan gefið sig fram og hefur Þröstur yfir höfuð áhuga á því að vita hver konan er? „Það var nú ekki hugsunin í upphafi, að leita eftir einhverju svari. En það væri voðalega gaman svona í þessari dramatík,“ segir Þröstur og vísar þar til þeirrar miklu athygli sem pósturinn hefur fengið. „Ég held að hún sé nú jafnvel búin að læka þetta, en það er erfitt að sjá á Facebook.“ Þröstur segir af viðbrögðunum ljóst að fólk hafi áhuga á sögum sem þessum úr hversdagsleikanum. „Sérstaklega á þessum tímum þegar fólk er að skríða út úr holunni eftir Covid, farið að horfast í augu og kynnast náunganum upp á nýtt.
Til þín sem komst inn á Kaffivest áðan, horfðir yfir salinn í leit að sæti og fannst þú ekki finna það, fékkst þér vatnssopna horfðir aftur beint í augu mér og gekkst svo út. Það var laust sæti en kannski varstu svona hógvær, og þegar ég fór út nokkru seinna sá ég að þú hafðir fengið þér sæti á bekknum fyrir utan kaffihúsið og gulur köttur hreiðraði um sig í kjöltu þinni. Þú horfðir aftur beint í augu mín og brostir. Á meðan ég var að föndra við hjólið mitt og tefja tímann áður en ég lagði af stað í Melabúðina þá hugsaði ég hvernig ég gæti vakið athygli þína eitt augnablik svo ég stoppaði fyrir framan þig á bekknum og sagði “falleg” eða eitthvað svoleiðis held ég, þú leist upp og síðan á köttinn og sagðir “já er hún ekki kósý”.......... Ég vildi bara koma því til skila að ég átti ekki við köttinn heldur þig. Ps. Eftir að hafa keypt mér hálfann kjúkkling og Pepsímax í Melabúðinni og var á leiðinni heim þá ásótti mig hugsunin um að skrifa um þetta atvik en ég veit ekkert af hverju ég set þessar hugsasnir fyrir almanna sjónir hérna en vanalega fara smásögurnar mínar beina leið í pappakassann hjá barnafötunum uppi á háalofti. ps.ps þetta bréf er ekki kostað af Melabúðinni, PepsiMax eða Kaffivest. Kveðja úr Vesturbænum.
Reykjavík Ástin og lífið Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Bíó og sjónvarp Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? Áskorun Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Lífið Fleiri fréttir Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Sjá meira