Íslenski boltinn

Lof og last 16. um­ferðar: Sigurður Heiðar, Skagamenn skoruðu mörkin, óvæntur Rodri og frammistaða HK

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sigurður Heiðar stýrði Leikni til sigurs gegn Íslandsmeisturum Vals um helgina.
Sigurður Heiðar stýrði Leikni til sigurs gegn Íslandsmeisturum Vals um helgina. Vísir/Hulda Margrét

16. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur mikið gengið á undanfarna daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last. Taka skal fram að þetta er eingöngu skoðun blaðamanns og er aðallega gert til skemmtunar.

Lof

Varnarleikur Leiknis og kænska Sigurðar 

Nýliðar Leiknis Reykjavíkur seldu Sævar Atla Magnússon - sinn langbesta mann á tímabilinu - til Danmerkur á dögunum. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari, brást við með því að breyta um leikkerfi er Íslandsmeistarar Vals heimsóttu Breiðholtið.

Fór það svo að Leiknir hélt hreinu – eitthvað sem ekkert lið hafði gert í meira en 12 mánuði gegn Val – og skoraði eitt glæsilegt mark. Varnarleikurinn upp á 10 og það virðist sem Sigurður Heiðar geti vart tekið ranga ákvörðun er kemur að liði sínu.

Gulir og glaðir

„Skagamenn skoruðu mörkin“ segir í laginu fræga og það gerðu þeir svo sannarlega þegar HK kom í heimsókn upp á Skipaskaga. Um var að ræða leik neðstu tveggja liða deildarinnar en það var ekki að sjá á spilamennsku heimamanna.

Skagamenn léku með sjálfstrausti sem hefur ekki sést oft á tímabilinu og unnu frábæran 4-1 sigur þökk sé frábærri frammistöðu frá aftasta manni til þess fremsta. Skagamenn halda því enn í vonina að halda sæti sínu í deildinni.

Rodrigo Gomes Mateo

KA sótti stig í Fossvoginn eftir að hafa átt í stökustu vandræðum framan af leik. Akureyringar geta þakkað Rodri fyrir stigið en þessi stóri og stæðilegi leikmaður skoraði tvennu í leiknum. Fyrir mann sem hafði skorað sex mörk í 142 leikjum til þessa á Íslandi verður það að teljast nokkuð gott að tvö hafi komið í einum og sama leiknum.

Höskuldur Gunnlaugsson

Fyrirliði Breiðabliks virðist njóta sín hvað mest í frábæru liði Breiðabliks um þessar mundir. Höskuldur skoraði tvö mörk er Breiðablik vann góðan 3-1 sigur á Stjörnunni í Garðabænum. Hann var nálægt því að skora þrennu en Arnari Darri Pétursson varði góða aukaspyrnu Höskuldar undir lok leiks.

Hægt væri að taka fleiri leikmenn Blika fyrir eða einfaldlega liðsheildina en Höskuldur fær hrósið að þessu sinni.

Baráttuandi Stjörnumanna

Það er vissulega erfitt að hrósa liði sem lendir 0-3 undir á heimavelli en Stjarnan sýndi þó smá lífsvilja undir lok leiks gegn Blikum. Það var ljóst að mönnum var ekki alveg sama og höfðu lítinn áhuga að því að endurtaka leikinn fyrr á tímabilinu þar sem Breiðablik vann þægilegan 4-0 sigur.

Last

Andleysti Stjörnunnar framan af

Eins og undirritaður nefndi er erfitt að hrósa liði sem lendir 0-3 undir. Frammistaða Stjörnunnar framan af leik var ekki boðleg og ekkert í líkingu við það sem við erum vön að sjá þegar heimamenn stíga á teppið í Garðabænum.

Guðmundur Kristjánsson

Guðmundur átti að mörgu leyti fínan leik í hjarta varnar FH er liðið sótti stig í Vesturbæ Reykjavíkur. Hann fékk þó tvö gul spjöld í síðari hálfleik sem þýddi að hans menn voru manni færri í drykklanga stund.

Síðara spjaldið var klaufalegt en Guðmundur reif þá í Pálma Rafn Pálmason sem féll í jörðina og í kjölfarið fékk miðvörðurinn sitt annað gula spjald. Með fullri virðingu fyrir Pálma Rafni þá er hann kominn af sínu léttasta skeiði og var lítil hætta er Guðmundur togaði í hann við miðlínu.

Hugmyndaleysi KR manni fleiri

KR-ingar virtust ekki hafa hugmynd um hvernig þeir ættu að sækja þrjú stig eftir að FH var manni færri í leik liðanna um helgina. Liðið virkaði þreytt og þungt er það reyndi að sækja sigurmark og áttu FH-ingar ekki í miklum vandræðum með að verja stigið.

Frammistaða HK

Að tapa 4-1 í sex stiga botnbaráttuslag er einfaldlega ekki boðlegt. Flóknara er það ekki.


Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×