Tónlist

Nýjasta plata Hips­um­haps fjar­lægð af Spoti­fy vegna á­greinings

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Hipsumhaps gaf út sína aðra breiðskífu í maí. Fannar Ingi Friðjónsson samdi lögin og fjármagnaði upptöku plötunnar sjálfur.
Hipsumhaps gaf út sína aðra breiðskífu í maí. Fannar Ingi Friðjónsson samdi lögin og fjármagnaði upptöku plötunnar sjálfur.

Það hefur vakið athygli aðdáenda hljómsveitarinnar Hipsumhaps að nýjasta plata þeirra, Lög síns tíma, hefur verið fjarlægð af streymisveitunni Spotify. Platan kom út í síðasta mánuði.

„Platan er tímabundið niðri vegna ágreinings tveggja aðila sem þarf að leysa,“ segir Fannar Ingi Friðþjófsson annar forsprakki hljómsveitarinnar. Hann kveðst þó ekki vilja tjá sig frekar um málið að svo stöddu, 

Jón Gunnar Ásbjörnsson, lögmaður hljómsveitarinnar, segir plötuna hafa verið fjarlægða vegna tilkynningar um höfundalagabrot sem barst Spotify. „Þá er verkferillinn hjá Spotify þannig að það efni sem er tilkynnt, það er bara tekið út á meðan það er verið að ráða fram úr því hvað sé rétt í þessu,“ segir Jón.

Rifti samningnum

Forsaga málsins er sú að hljómsveitin gerði samning við plötuútgáfuna Record Records. Jón segir þann samning hafa verið óhagstæðan og að hljómsveitin meti það svo að Record Records hafi vanefnt samninginn.

Lífið sem mig langar í er líklega þekktasta lag Hipsumhaps. Sveitin flutti lagið ásamt stúlknakór á Hlustendaverðlaununum 2020.

„Þá ákveður Fannar í rauninni að rifta samningnum sem honum er fullkomlega heimilt, af því hann á allan rétt á tónlistinni og hann hafði verið að veita þarna leyfi til þess að tónlistin yrði notuð til þess að dreifa plötunni. Með þessari riftun, þá fellur niður þetta leyfi og hann er þá bara eigandi af allri þessari tónlist.“

Í kjölfarið hafi Record Records sent inn tilkynningu um höfundalagabrot til Spotify. Jón segir Fannar Inga vera eiganda allrar tónlistar á plötunni. „Hann á lögin á henni og hann á upptökurnar. Hann fjármagnaði upptöku plötunnar algjörlega sjálfur. Þannig hann á öll réttindi á plötunni sem hægt er að tala um í höfundalagaskilningi.“

Segir útgáfu plötunnar ólöglega

„Þetta er í rauninni mjög afdrifarík ákvörðun hjá einhverjum sem hafði bara samning um dreifingu tónlistarinnar sem búið er að rifta, að fara fram á að hún sé tekin út af streymisveitunni,“ segir Jón.

Hann segist vona að málið leysist sem fyrst, það sé í vinnslu. „Það væri allra hagur að platan kæmi aftur inn á Spotify sem fyrst.“

Hér að neðan má heyra lagið Þjást sem er að finna á plötunni.

Haraldur Leví Gunnarsson, eigandi plötuútgáfunnar Record Records heldur því fram við Vísi að útgáfufyrirtæki hans eigi réttinn á plötunni. Hann segir þá útgáfu sem fór inn á Spotify ekki hafa verið komna frá Record Records og þar með sé hún ólögleg. Hann vildi ekki tjá sig frekar um málið.

Haraldur situr bæði í stjórn Félags hljómplötuframleiðenda, hagsmunasamtaka fyrirtækja í hljómplötuútgáfu á Íslandi, og í stjórn Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda, sem er innheimtusamtök tónlistaflytjenda og plötuframleiðenda.

Uppfært klukkan 16:53

Eins og segir að ofan vildi Haraldur lítið segja við Vísi um málið við gerð fréttarinnar, en eftir að fréttin birtist sendi Record Records frá sér tilkynningu þar sem fyrirtækið greinir frá sinni hlið á málinu. 



Hér að neðan má sjá myndbandið við lagið Meikaða en þegar það var frumsýnt sagði Fannar að gerð plötunnar hefði verið fjármögnuð með sölu á auglýsingum í myndbandinu.

Klippa: Hipsumhaps - Meikaða

Tengdar fréttir

Hipsumhaps gefur út nýja plötu

Önnur breiðskífa Hipsumhaps er komin út ber heitið Lög síns tíma. Um er að ræða samtímaverk sem að hefur verið í vinnslu frá því að samkomubannið var sett á í mars á síðasta ári






Fleiri fréttir

Sjá meira


×