Tónlist

„Tilfinningin er hreint út sagt alveg mögnuð“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Eydís Evensen byrjaði aðeins sex ára gömul að æfa á píanó. Eitt lag á plötunni Bylur byrjaði hún að semja tólf ára gömul.
Eydís Evensen byrjaði aðeins sex ára gömul að æfa á píanó. Eitt lag á plötunni Bylur byrjaði hún að semja tólf ára gömul. Saga Sig

Eldgosið við Fagradalsfjall spilar stórt hlutverk í nýju myndbandi píanóleikarana og tónskáldsins Eydísar Evensen. Lagið Bylur er af samnefndri plötu Eydísar, sem kom út í dag. Platan er gefin út af Sony útgáfufyrirtækinu XXIM Records.

„Tilfinningin er hreint út sagt alveg mögnuð og tilfinningarík. Ég hef unnið að tónlist plötunnar í rúma tvo áratugi og ég er full af þakklæti að fá að gefa þessi verk loksins út,“ segir Eydís í samtali við Vísi.

Plötuumslagið fyrir BylurSaga Sig

„Myndverkið eftir Einar Egils sýnir ferðalag þess að fá að upplifa undurfallegt eldgos, aðeins sautján klukkustundum eftir að gosið byrjaði. Ég hafði fengið hugmyndina fyrir sjö vikum þegar fréttir bárust um mögulegt gos; að mögulega innihalda eldgosið sem part af þeim sjónræna heimi sem hefur fæðst í kringum útgáfu plötunnar. Það var einstök upplifun að fá að vera vitni af fæðingu nýrrar jarðar. Myndverkið tengir saman allan tilfinningaskalann á því að fá að upplifa eldgosið, við allan tilfinningaskalann sem platan fer í gegnum, en Einar nær að sýna þessar tilfinningar á mjög hreinskilinn hátt með verkinu,“ útskýrir Eydís.

TIlfinningalegt uppgjör

„Jörðin skelfur undir fótum landsbyggðarinnar. Vindurinn hvín, ber með sér djúpar drunur er skjálftarnir kljúfa bergjörðina gjörvalla. Ný jörð, blóðrauður himinn,“ segir meðal annars í upphafi þessa einstaka myndbands.

Platan Bylur er draumkennd, tilfinningaþrungin og dáleiðandi.Saga Sig

Eins og Eydís sagði frá í helgarviðtali hér á Vísi fyrr á árinu, var platan tekin upp hjá Valgeiri Sigurðssyni í Greenhouse Studios í Reykjavík. Platan er tilfinningalegt uppgjör listakonunnar og spannar meira en tuttugu ára þroskaferli. Dáleiðandi verk, sem hreifir við hlustendum.

Fyrsta lagið á plötunni, Deep Under, byrjaði Eydís að semja þegar hún var aðeins tólf ára gömul. Eydís ólst upp á Blönduósi, þar sem bylur barðist oft á herbergisglugga æskuheimilis hennar.

Aðeins er sungið í einu lagi á plötunni. Midnight Moon er samvinnuverkefni Eydísar og söngkonunnar GDRN og má hlusta á lagið í spilaranum hér fyrir neðan. Myndbandinu leikstýrði einnig Einar Egils en Erna Gunnarsdóttir og Andrean Sigurgeirsson dansa.

Lögin Wandering og Wandering II voru innblásin af lífi Eydísar áður en hún fór að einbeita sér eingöngu að tónlistarferlinum. Vann hún meðal annars sem fyrirsæta og flakkaði um allan heim vegna starfsins. Hún var samt alltaf með aðgang að píanói hvar sem hún bjó og hætti aldrei að skapa.

Lögin á plötunni Bylur eru Eydísi einstaklega persónuleg. Aðeins er sungið á einu lagi.Saga Sig

Platan er persónuleg og hvert lag hefur mikla þýðingu fyrir tónskáldið. Fyrir Mikael er tileinkað litlum frænda hennar sem þjáist af Louis-Bar heilkenni. Lagið Dagdraumur skrifaði hún þegar fjölskyldumeðlimur féll frá. Brotin er hennar einlægasta lag frá upphafi, hrátt og algjörlega berskjaldað.

Plötuna í heild sinni má heyra á Spotify.


Tengdar fréttir

„Ég er svolítið að henda mér í djúpu laugina“

Í gær kynnti tónlistarrisinn Sony um nýtt útgáfumerki á sínum vegum, XXIM Records. Fyrsti listamaðurinn sem útgáfufyrirtækið kynnir er hin íslenska Eydís Helena Evensen, píanóleikari og tónskáld frá Blönduósi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×