Eld­gos á Reykja­nes­skaga

Eld­gos á Reykja­nes­skaga

Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það tólfta varð norðan Grindavíkur í júlí 2025.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Svartir svanir á Reykja­nesi

Að kvöldi 10. nóvember 2023 var Grindavík rýmd. Á fáeinum klukkustundum yfirgáfu um 3.700 manns heimili sín. Bærinn sem þau skildu eftir var annar en sá sem þau höfðu vaknað í um morguninn; sprungur lágu í gegnum götur og garða, landið hafði sigið og undir byggðinni lá kvikugangur.

Skoðun
Fréttamynd

„Af hverju má ég vera í Hvera­gerði en Grind­víkingar ekki í Grinda­vík?“

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin verði að koma til móts við Grindvíkinga sem eru margir ósáttir við nýja hollvinasamninga sem fasteignafélagið Þórkatla kynnti á dögunum. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna félagið vilji takmarka dvöl Grindvíkinga í bænum við tólf nætur í senn.

Innlent
Fréttamynd

Þór­katla slökkvi vonar­neistann með nýjum samningi

Fasteignafélagið Þórkatla vinnur nú að uppfærslu hollvinasamninga og gistiviðauka þeirra sem gerir ráð fyrir að frá og með 1. september geti hollvinir ekki gist fleiri en tólf nætur á mánuði í eignunum. Bæjarfulltrúi er ósáttur en bæjarstjórn fundar með stjórn Þórkötlu á morgun. 

Innlent
Fréttamynd

Skjálfta­hrinan mallar enn

Skjálfta­hrinan við Hellis­heiði heldur áfram en auk þess hefur virkni mælst í dag við Kleifar­vatn á Reykja­nes­skaga og á Reykja­nes­hrygg. Náttúru­vársér­fræðingur segir virknina vera eðli­lega.

Innlent
Fréttamynd

Skjálfta­hrina úti af Reykja­nesi

Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg í gærkvöldi og hefur stærsti skjálftinn mælst 3,5 að stærð. Ekki mælist órói á svæðinu, að sögn Veðurstofu.

Innlent
Fréttamynd

Kjaftfullt í golfinu í Grinda­vík

Það sem er að gerast hjá Golfklúbbi Grindavíkur jaðrar við að mega heita kraftaverk. Fyrir tveimur árum, í kjölfar eldanna á Reykjanesi, sendu forráðamenn klúbbsins út hálfgert neyðarkall og voru komnir á fremsta hlunn með að hætta starfseminni. Bærinn var tómur en golfvöllurinn stóð keikur.

Innlent
Fréttamynd

Ráða verk­efnis­stjóra í málum Grinda­víkur

Skarp­héðinn Berg Steinars­son hefur verið ráðinn til tveggja ára sem verk­efnis­stjóri for­sætis­ráðu­neytisins í mál­efnum Grinda­víkur. Skarp­héðinn hefur setið í Grinda­víkur­nefnd frá vorinu 2025. Hann mun stýra sam­hæfingu af hálfu ríkisins varðandi Reykja­neselda og upp­byggingu Grinda­víkur­bæjar. Verk­efnis­stjóri í mál­efnum Grinda­víkur mun eiga náið sam­starf við Grinda­víkur­bæ, lög­reglu og al­manna­varnir, svo eitt­hvað sé nefnt.

Innlent
Fréttamynd

Eld­gos enn lík­legasta sviðs­myndin

Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni er áfram líklegasta sviðsmyndin á Reykjanesskaganum að mati Veðurstofu Íslands. Áfram mælist lítil jarðskjálftavirkni á landinu.

Innlent
Fréttamynd

„Við verðum að fá fólk heim aftur“

Grindvískt fjölskyldufyrirtæki vinnur nú að því að fylla upp í allt að 15 metra djúpa sprungu við íþróttahúsið í Grindavík. Framkvæmdastjórinn segir verkið snúast um að gera bæinn öruggan á ný fyrir börn og fjölskyldur.

Innlent
Fréttamynd

Reiði yfir pítsupartíi: Aug­lýst á fundi án sam­ráðs

Grindvíkingar og aðrir virðast verulega reiðir yfir því að valkyrjurnar svokölluðu hafi hist heima hjá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í kvöld og borðað saman pítsu. Mörgum finnst það miður þar sem Kristrún hafi verið beðin um að mæta á íbúafund í Grindavík í dag. Kristrún tilkynnti á mánudaginn að hún kæmist ekki á fundinn og spilar kvöldverðurinn ekki þar inn í.

Innlent
Fréttamynd

Vilja ræða um varnar­garða en byggja meira á hraunum

Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði kalla eftir samtali við ríkið um mótvægisaðgerðir, eins og að undirbúa gerð varnargarða, vegna nýrrar skýrslu Veðurstofu um hættu á hraunrennsli yfir hluta byggðarinnar. Bæjarstjórinn telur ekki ástæðu til að falla frá áætlunum um ný hverfi á hraunasvæðum.

Innlent
Fréttamynd

Varnar­garðar á Reykja­nesi: Verk­efnið ríkislög­reglu­stjóra of­viða

Ríkisendurskoðun gerir ýmsar athugasemdir við það hvernig staðið var að undirbúningi og gerð varnargarða við Svartsengi og Grindavík. Lögum samkvæmt var ríkislögreglustjóra falið að fara með framkvæmd aðgerða en Ríkisendurskoðun kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að verkefnið hafi af ýmsum ástæðum reynst embættinu ofviða.

Innlent
Fréttamynd

Við þurfum að vera til­búin að takast á við eldgosavá

Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Grinda­vík og Hvera­gerði talin í mestri hættu vegna eld­gosa

Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi.

Innlent
Fréttamynd

Kviku­hlaup enn lík­legasta sviðs­myndin

Landris og kvikusöfnun heldur áfram með svipuðu móti og undanfarnar vikur, þar sem innstreymi kviku er hægt en stöðugt. Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er enn talin líklegasta sviðsmyndin. 

Innlent