Mourin­ho hafði betur gegn hár­fagra þunga­rokkaranum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gareth Ainsworth og Mourinho á hliðarlínunni í kvöld.
Gareth Ainsworth og Mourinho á hliðarlínunni í kvöld. Tottenham Hotspur FC/Getty

Tottenham er komið í sextán liða úrslit enska bikarsins eftir 4-1 sigur á B-deildarliðinu Wycombe. Í sextán liða úrslitunum verður mótherjinn Everton en leikurinn fer fram um miðjan febrúar.

Gareth Ainsworth er þjálfari Wycombe en hann er afar skemmtilegur karakter. Hann var í leðurjakkanum á hliðarlínunni í kvöld og Jose Mourinho ræddi meðal annars um hárið hans fagra fyrir leik kvöldsins.

Það voru heimamenn sem komust yfir á 25. mínútu með marki Fred Onyedinma en hann fékk boltann í teignum eftir darraðadans og kláraði færið vel. Gareth Bale var í byrjunarliði Tottenham og hann jafnaði metin á 45. mínútu.

Staðan var jöfn allt þangað til á 86. mínútu er Harry Winks skoraði og kom Tottenham yfir. Tanguy Ndombele skoraði þriðja markið á 87. mínútu og í uppbótartíma var það Tanguy Ndombele sem skoraði fjórða markið. Lokatölur 4-1.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira