Enski boltinn

Sjö leik­­menn eftir í leik­manna­hópi Liver­pool síðan liðið tapaði síðast deildar­leik á Anfi­eld

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Klopp var ekki beint sáttur í leikslok er Liverpool tapaði 0-1 gegn Burnley í vikunni.
Klopp var ekki beint sáttur í leikslok er Liverpool tapaði 0-1 gegn Burnley í vikunni. Peter Powell/Getty Images

Tapleikur Liverpool gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni á fimmtudaginn var fyrsti tapleikur Englandsmeistaranna á Anfield – heimavelli sínum – frá því liðið tapaði 2-1 gegn Crystal Palace þann 23. apríl 2017. Alls lék liðið 69 leiki án taps á Anfield.

Segja má að Jürgen Klopp – þjálfari Liverpool – hafi tekið til hendinni frá því hann kom fyrst til Liverpool en hann tók við liðinu 8. október 2015. Hann hafði breytt liðinu töluvert þegar það loks mætti Palace í apríl 2017 og hefur Klopp haldið því áfram frá tapinu óvænta. 

Christian Benteke skoraði tvívegis fyrir Palace. Sam Allardyce var þjálfari Palace þá en hann þjálfar í dag West Bromwich Albion. Philippe Coutinho skoraði mark Liverpool en hann leikur í dag með Barcelona á Spáni.

Ásamt Coutinho í byrjunarliðinu voru þeir Simon Mignolet, Nathaniel Clyne, Joël Matip, Dejan Lovren, James Milner, Emre Can, Lucas Leiva, Georginio Wijnaldum, Roberto Firmino og Divock Origi.

Alls eru fimm af 11 leikmönnum enn í herbúðum Liverpool. Það eru þeir Matip, Milner, Wijnaldum, Firmino og Origi.

Á varamannabekk Liverpool voru þeir Loris Karius, Joe Gomez, Marko Grujić, Alberto Moreno, Rhian Brewster, Ben Woodburn og Trent Alexander-Arnold.

Af þessum sjö leikmönnum eru aðeins tveir leikmenn enn í leikmannahóp Liverpool. Það eru þeir Gomez – sem er á meiðslalistanum – og Alexander-Arnold. Tæknilega séð er Ben Woodburn enn á mála hjá félaginu en hann er á láni hjá Blackpool í dag.

Byrjunarlið Liverpool í óvæntu 0-1 tapi liðsins gegn Burnley á fimmtudaginn var eftirfarandi: Alisson, Trent, Matip, Fabinho, Andrew Robertson, Xerdan Shaqiri, Wijnaldum, Alex Oxlade-Chamberlain, Origi og Sadio Mané.

Varamannabekkur liðsins í leiknum taldi níu leikmenn að þessu sinni. Þeir Firmino og Milner voru í byrjunarliðinu gegn Palace en Klopp ákvað að geyma þá á bekknum gegn Burnley þremur árum síðar ásamt Caoimhin Kelleher, Mo Salah, Curtis Jones, Takumi Minamino, Konstantinos Tsimikas, Nathaniel Phillips og Neco Williams.

Stóra spurningin er hversu margir verða eftir í leikmannahóp Liverpool þegar liðið tapar næst heimaleik í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×