Mikil þörf fyrir aðstoð í Pakistan 12. ágúst 2010 10:54 Íbúar Basera í miðhluta landsins flýja heimili sín í gær. Mynd/AP
Rauði krossinn kallar eftir tafarlausri aðstoð til Pakistans. Ekkert lát hefur verið á úrfellinu vegna monsúnrigninga í landinu og er nú um 70% af öllu landinu undir vatni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Rauða krossi Íslands. Talið er að um 14 milljónir manna hafi orðið fyrir áföllum vegna flóðanna og að um 6 milljónir þurfi á tafarlausri aðstoð að halda eigi íbúar að lifa hamfarirnar af á næstu vikum. Þetta eru verstu flóð í sögu landsins. Alþjóða Rauði krossinn kallar nú eftir enn meira fjármagni í neyðarbeiðni sína sem hljóðar upp á tvo milljarða íslenskra króna. Rauði kross Íslands hefur þegar sent 3,5 milljónir króna úr neyðarsjóðum sínum til hjálparstarfsins og hefur einnig opnað fyrir söfnunarsíma sinn 904-1500 fyrir þá sem vilja styrkja neyðaraðstoðina.Múlasnar ferja hjálpargögn Sjálfboðaliðar Rauða hálfmánans í Pakistan hafa lagt dag við nótt við dreifingu hjálpargagna síðan flóðin hófust og hafa þegar náð til um 100 þúsund íbúa. Fram kemur í tilkynningunni Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn hafa notast við múlasna til að ferja hjálpargögn til einangraðra fjallaþorpa þar sem mjög víða er ófært á flóðasvæðunum. Þá hafa heilsugæslulið Rauða hálfmánans veitt um 30 þúsund manns í afskekktum héruðum læknisaðstoð.Kalo Mai er ein þeirra sem hafa þurft að flýja heimili sitt. Hér sést hún í grennd við neyðarskýli í borginni Multan í miðhluta Pakistans. Mynd/APFramkvæmdastjóri Alþjóða Rauða krossins, Bekele Geleta, kom til Pakistans í dag til að kynna sér ástandið í landinu og sýna Rauða hálfmánanum í Pakistan stuðning. Tæp fimm ár eru liðin frá jarðskjálftanum mikla í norðvesturhluta landsins, en þá þurftu milljónir manna á neyðaraðstoð að halda.Söfnunarsími og hjálparsjóður Rauði krossinn minnir á söfnunarsíma sinn 904-1500 fyrir þá sem vilja leggja hjálparstarfinu í Pakistan lið. Þegar hringt er í númerið bætast 1.500 krónur við næsta símreikning. Einnig er hægt er að styrkja hjálparstarf Rauða krossins með því að greiða inn á reikning hjálparsjóðs í banka 0342, hb. 26, reikn. 12, kt. 530269-2649.
Mest lesið Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Erlent Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Innlent Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Innlent Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Innlent Lýsa eftir Hlyni Innlent Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Innlent Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Innlent Hörður Svavarsson er látinn Innlent Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Innlent Fleiri fréttir Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Kalli Snæ biðst afsökunar Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Sjá meira