Misskilningur milli stofnana 12. ágúst 2010 06:00 Benedikt stefánsson Aðstoðarmaður ráðherra telur að jafnvel þótt skuldarar hefðu vitað af minnisblaði Seðlabankans síðastliðið sumar hefðu þeir ekki endilega haft sterkt vopn í uppgjöri við bankana. Enn sé deilt um lánin.
Þegar starfsmaður viðskiptaráðuneytisins fékk þrjú skjöl send frá Seðlabankanum um heimild til gengistryggingar, með því fororði að eitt þeirra væri trúnaðarmál og einungis til að hafa til hliðsjónar, hélt starfsmaðurinn að sama gilti um öll skjölin, að sögn aðstoðarmanns viðskiptaráðherra, Benedikts Stefánssonar. Fram kom í blaðinu í gær að aðallögfræðingur Seðlabankans, í samráði við aðstoðarbankastjóra, sendi skjölin ráðuneytinu til upplýsingar. Að einungis aðkeypta skjalið hefði verið sent í trúnaði en að niðurstaðan, um ólögmæti gengistryggingar lána í íslenskum krónum, hefði einnig verið reifuð í hinum skjölunum, með þeim fyrirvara að dómstólar þyrftu að skera úr um málið. „Eftir á að hyggja virðast starfsmenn Seðlabanka hafa haft aðrar væntingar. En það var skilningur þessa starfsmanns að hún hefði fengið öll skjölin í trúnaði," segir Benedikt. Hann telur þó að aðalatriði málsins sé að enn sé deilt um lögmæti þessara lána, eða öllu heldur hvað teljist gengislán og hvað ekki. Skoðun framkvæmdavaldsins breyti ekki öllu um það og hefði ekki gert á sínum tíma. „Það þarf að taka hvern samning fyrir sig til að vita hvort hann fellur undir þessi lög. Það er enginn lokadómur fólginn í þessum skjölum. Ég hvet fólk bara til að lesa þau," segir Benedikt. - kóþ
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira