Jákvæðni íbúa kom ánægjulega á óvart 12. ágúst 2010 03:15 Tómas Sturlaugsson við störf sín í afleysingum í Drangshlíðardal undir Eyjafjöllum. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég ákvað að sækja um stöðuna þegar hún var auglýst,“ segir Tómas Sturlaugsson búfræðingur sem undanfarið hefur leyst af bændur á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli þegar þeir hafa farið í frí. „Ég er með aðsetur á Seljavöllum, þar sem bændur hafa brugðið búi um skeið. Þaðan fer ég á þann bæ sem ég er að hugsa um hverju sinni,“ sagði Tómas sem í gær var staddur á bænum Drangshlíðardal við Skógaá. „Hingað til hef ég verið á kúabúum og þá snýst starfið fyrst og fremst um mjaltir kvölds og morgna. Inn á milli geri ég það sem fellur til, mála eða þríf útihúsin svo dæmi séu nefnd.“ Tómas segist hafa kviðið því töluvert að hitta fyrir bændur í sveitinni sem svo illa varð fyrir barðinu á eldgosinu í Eyjafjallajökli. „Ég óttaðist að andrúmsloftið yrði þungt, að fólk væri illa stemmt eftir hörmungarnar. En fólk er að jafna sig, það horfir fram á veginn, er að framkvæma og fjárfesta og ætlar að halda áfram.“ Tómas segir að vel hafi verið tekið á móti sér. „Það er alltaf eitthvað í ísskápnum handa manni,“ segir hann og hlær. „Þetta er alveg voðalega skemmtileg lífsreynsla og gefandi að hitta allt þetta fólk sem hefur mikla sögu að segja.“ Tómas er borgarbarn, alinn upp í Reykjavík en var á sumrum í sveit undir Eyjafjöllum. „Þannig að ég þekki mig aðeins hér. Svo lærði ég í Bændaskólanum á Hvanneyri og það má segja að draumurinn hafi alltaf verið að verða bóndi.“ Undanfarin ár hefur Tómas unnið á dönskum kúabúum. Spurður um muninn á að vinna á íslensku og dönsku kúabúi segir hann að hann liggi einkum í stærðinni, dönsku býlin séu svo miklu stærri. sigridur@frettabladid.is
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Sjá meira