Grænmeti stolið frá sjö ára börnum í Kópavogi Boði Logason skrifar 12. ágúst 2010 10:40 Þó nokkuð af káli var stolið frá nokkrum krökkum í skólagörðum við Dalveg í Kópavogi. Mynd tengist frétt ekki beint. Mynd/Úr safni „
Auðvitað er þetta mjög leiðinlegt og krakkarnir eru mjög leiðir," segir Bryndís Pétursdóttir, garðstjóri í skólagörðum við Dalveg í Kópavogi. Á þriðjudaginn var hvítkáli og hnúðkáli stolið úr skólagörðum sem sextíu og fimm krakkar á aldrinum 7 til 12 ára hafa verið að rækta í allt sumar. Einungis kálið var tekið og blöðin skilin eftir en engin skemmdarverk voru unnin á görðunum að öðru leyti. „Við erum búin að vera vinna í þessu síðan í lok maí. Þannig við erum búin að bíða í allt sumar eftir að grænmetið verði tilbúið og svo loksins þegar það er að verða tilbúið þá kemur þetta upp," segir Bryndís en krökkunum var mjög brugðið að hennar sögn. „Við, starfsmennirnir, vorum líka rosalega reið. En sem betur fer erum við með auka garða sem við erum búin að vera rækta þannig þau fá það grænmeti í staðinn, en auðvitað finnst þeim þetta samt mjög leiðinlegt." Bryndís segir að grænmetinu hafi verið stolið að nóttu til þar sem allt var á sínum stað á mánudeginum þegar þau fóru úr vinnunni. Aðspurð hvern hún gruni um að hafa verið að verki segir Bryndís að það sé ómögulegt að segja en „mér finnst líklegt að þetta hafi ekki verið krakkar að leika sér því þá hefðu þau varla skilið bara eftir blöðin, sá sem stal þessu vissi greinilega hvað hann var að gera." Fimm skólagarðar eru í Kópavogi í sumar og segir Bryndís að hennar garður sé sá eini sem hafi lent í þessu. „Ég var hérna í fyrra líka og varð þá ekki var við neitt svona," segir Bryndís en ekki var haft samband við lögreglu en hún lét yfirmenn sína hjá Kópavogsbæ vita.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Sjá meira