Bjarni Ben: Gylfi getur ekki firrt sig ábyrgð 12. ágúst 2010 14:15 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd/GVA
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að viðskiptaráðherra geti ekki firrt sig ábyrgð á því að ekki hafi verið gripið aðgerða vegna upplýsinga sem viðskiptaráðuneytið bjó yfir um ólögmæti gengistryggðra lána. Bjarni segir málið það alvarlegt að kalla verði Alþingi saman og þá telur hann að ríkisstjórnin eigi að víkja. Fram hefur komið að í meira en ár hafi starfsmenn innan stjórnkerfisins búið yfir upplýsingum um ólögmæti gengistryggðra lána. Þá hefur verið fullyrt að Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, hafi sagt Alþingi ósatt þegar hann sagðist ekki hafa aflað sér lögfræðiálits um lögmæti lánanna. Bjarni gefur lítið fyrir þær útskýringar sem Gylfi hefur gefið undanfarna daga. „Útskýringar viðskiptaráðherra á því að það hafi legið fyrir lögfræðiálit en það hafi annað hvort engu máli skipt eða ráðherrann sjálfur hafi ekki af því vitað eru óskiljanlegar. Ráðherrann er ekki eitthvert eyland í viðskiptaráðuneytinu."„Hversu mikið tap er þetta?" Þá segir Bjarni mikilvægt að fram komi hvort að ríkisstjórnin með Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, broddi fylkingar hafi ákveðið að taka ekki mið af umræddum upplýsingum þegar eignasöfn nýju bankanna voru metin. Hann vill einnig vita hvort að samningarnir hafi gert ráð fyrir að ef eignir gömlu bankanna yrðu meira virði þá ætti að koma viðbótargreiðsla en ef þær yrðu minni virði, eins allt stefni nú í, myndi það þýða tjón fyrir ríkið. „Samdi fjármálaráðherra um að stofna Landsbankann og leggja honum til hlutafé á þessum forsendum vitandi af því að það væru miklar líkur til þess að eignir í bankanum yrði mun minna virði en út frá var gengið? Og hversu mikið tap er þetta?"Staða Gylfa veik Bjarni segir málið í heild sinni það alvarlegt að full tilefni sé til að kalla saman Alþingi og fá skýringar frá forystu ríkisstjórnarinnar. Aðspurður hvort hann telji að Gylfi eigi að segja af sér sem viðskiptaráðherra segir Bjarni: „Viðskiptaráðherra hefur veitt algerlega ófullnægjandi skýringar og staða hans er í miklu uppnámi. Hann sækir sitt umboð til stjórnarmeirihlutans. Ég er þeirra skoðunar að öll ríkisstjórnin eigi að víkja. Þetta er bara enn eitt málið."
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Sjá meira